Vísir - 05.03.1960, Blaðsíða 1
10. árg.
Laugardaginn 5. marz 1960
54. tbl.
Reykvíkingar greidd rúml. hálf-
iarö í beina skatta 1959.
/%ð w&r&is f///r 700O kr.
hvrrn hœjnrhúa.
n
Aleira esi Iielniin&|ui*íiiii íer
í ríkissjóð.
'Gjaldabyrðar Reykvíkinga,
samkvæmt yfirlitsskýrslu skatt
stofunnar, námu á árinu sem
leið rösklega hálfum milljarð
króna, eða nánar tiltekið
506.826.304 krónum. Þetta jafn-
gildir um 7250 króna nefskatti
á'hvert mannsbarn í bænum.
‘ Meir en helmingur þessara
álagna rennur til ríkisins, eða
röskar 265 milljónir króna, en
tæp 242 milljónir í bæjarsjóð.
í bæjarsjóð renna útsvörin,
sem. námu 182.3 millj. kr. á
einstaklinga, 54.6 millj. kr. á
félög og nær tvær milij. kr. á
vátryggingafélög. Auk þess.
gjaldársútsvör að upphaeð 2.4
millj. kr. og samvinnuskattar
•serri nemur tæpum 350 þús. kr.
í gær tók að snögghlýna
norðanlands og austan.
Lægð suður í hafi gæti verkað tii frekari
hlýinda á morgun.
Horfur voru þær í gær, að
sópa myndi burt kalda loftinu
fyrir norðan.
Síðdegis í gær var enn tals-
vert eftir af því. Kl. 2 var t. d.
9 stiga frost á Akureyri og 7
á Nautabúi og Sauðárkróki og
logn á öllum þessum stöðum.
Hitinn var 0 stig á Raufarhöfn
og kominn 7 stiga hiti á Dala-
tanga. Enn snjóaði mikið
nýrðra. Horfur eru á þíðviðri
um austanvert landið.
Hér í Rvík var 2 stiga hiti, en
4 stiga hiti og rigning á Síðu-
niúla og 6 í Vestmannaeyjum.
Horfur eru sem sé, að hlýna
muni á Norður- og Norðaust-
Sandys vlil skflja.
Dancan Sandys flugmálaráð-
herra Bretlands vill skilja við
konu sína, Diönu, en hún er
elzta dóttir Winstons Chur-
chills.
Þau voru gefin saman 1935
og eiga einn son og tvær dæt-
ur. Þau hjón hafa ekki búið
saman um nokkurí skeið.
urlandi. Hér syðra kynni að
vera dálítill afturkippur, en
lægð er suður í hafi, sem kann
kð vera hér til frekari hlýinda
síðdegis á morgun.
Öll önnur gjöld renna til r.ík-
issjóðs, en það er fyrst og fremst
tekjuskattur, sem nemur sam-
tals 105.2 millj. kr. Þar af
82.574.185 kr. á einstaklinga,
21.057.559 kr. á félög, 707.458
kr. á vátryggingarfélög og
907.563 kr. gjaldársskattur.
Eignaskattur sem lagður var
á Reykvíkinga árið sem leið,
nam nær 9.5 millj. kr. Af því
verða einstaklingar að greiða
7.565.128 kr. félög 1.878.768 kr.
og vátryggigarfélög röskar 20
þúsund krónur.
Stór liður í álögunum var
söluskattur og útflutningssjóðs-
gjöld, sem námu samtals 84.7
millj. krónum.
Af öðrum gjöldum má nefna
kirkjugjald 2.6 millj. kr. kirkju
garðsgjald 3 millj. kr. náms-
gjald 615 þús. kr.., persónu-
tryggingargjald 26.3 millj. kr.,
gjaldárstryggingargjald 418.5
þús. kr., slysatrygginggargjöld
15.7 millj. kr., atvinnuleysis-
tryggingarsjóðs gjöld 6.2 millj.
kr., farmiðagjald 3.3 millj. kr.,
iðgjaldaskattur 7.5 millj. kr.
og loks skyldusparnaður sem
nam 88.5 þús kr.
Þeir koma
margir myndar-
legir á land þessa
dagana, eins og
þessi, sem flak-
aður var og
frystur í Vest-
mannaeyjum um
síðustu helgi. —
Menn eru kátir,
þegar vel aflast,
og myndin ber
það með sér, að
þarna hefur verið
um góðan afla að
ræða.
(Ljósm. Sn. Sn.)
Verður hún sktrð Þorfinnur karlsefni?
LoftSeiðlr taka við síðari Cloudmastervéiiimi á miðvikudaginn.
Næstkomandi miðvikudag
munu íslendingar verða flugvél
ríkari, þegar fulltrúar Loftleiða
táka við síðari Cloudmaster-
\-élinni, sem félagið festi kaup
á á síðasta ári, eins og lesend-
ur Vísis rekur vafalaust minni
til.
Flugvélar þessar eru af gerð-
inni DC-6B, það er að segja
einu eða tveim „númerura
stærri en stritkláfarnir gömlu,
Skymaster-vélarnar, sem félag-
ið hefur notað með ágætum
árangri um langt árabil. Þær
verða teknar inn á áætlun fé-
lagsins í byrjun næsta mánaðar,
Framh. á 2. síðu.
Veðrið verður að vera skrambi vont, til þess að menn fari ekki
á sjó frá Vestmannaeyjum. Jafnvel trillurnar fara út, þótt illt
sé í sjóinn. Hér sjást tveir félagar á leið til lands, trilla og gamall
vélbátur. (Ljósm. Sn. Sn.)
Haitn barði ástmeyna í bræði
en rnyrti hana ekki.
Eftirtektanert morðiiiál iit-
kljjáð í Boston.
Undanfarnar vikur hafa
staðið yfir í Boston réttarhöld
yfir loftskeytamanni á hol-
lenzku skipi.
Var hann sakaður um að
hafa myrt konu nokkra, sem
var farþegi á skipi hans frá
Singapore, og varpað líki henn-
ar fyrir borð í Boston-höfn.
Hann viðurkenndi, að hann
hafði átt vingott við konu
þessa, svo að hún varð barns-
hafandi, og hann játaði einnig,
að hann hefði barið hana í
bræði daginn, sem hún hvarf
af skipinu, en neitaði með öllu,
að hann hefði veitt henni þá á-
verka, sem drógu hana til
dauða eða varpað líki hennar
fyrir borð.
Réttarhöldunum lauk með
því á miðvikudaginn, að maður
þessi, Willem van Rie„ var
sýknaður af morðkærunni og
látinn laus.
Cabot Lodge, aðalfulltrúi
Bandaríkjanna á vettvangi
Sþj., er kominn til Tashk-
ent í Uzbeskistan. Hann er
á hálfs mánaðar ferðalagi
um Bandaríkin.
Frystihúsið í Þoriákshöfn
tilhúið í mánaðarlok.
Nauðsyn að Ijúka hafnargerð
sem fyrst.
Frá fréttaritara Vísis. —
Þorlákshöfn í gær.
Þeir átta bátar sem héðan
róa eru nú byrjaðir á netum.
Þrír aflahæstu bátarnir sem
byrjuðu á línu um miðjan jan-
úar eru búnir að afla yfir 200
lestir.
Þeir eru Fi’iðrik Sigurðsson
með 240 lestir, Þorlákur 2.
224 og' Páll Jónsson með 210.
Um mánaðamótin tóku allir
net og hefur aflinn verið um
6 lestir í róðri að meðaltali. í
m'orgun var kominn suðaustan
vindur allhvass og sjór tekinn
að þyngjast mjög. Allir bátar
voru samt á sjó, enda er meiri
aflavon síðan breytti um átt.
Hið ’ myndarlega frystihús
sem Meitill h.f. er að láta
byggja er það langt komi'ð að
það verður tekið í notkun seint
í þessum mánuði. Afköst þess
eru áætluð 100 lestir af fiski
á 10 klst.
Þegar frystihússbygging-
Framh. á 7. síðu. *
]