Vísir - 08.03.1960, Blaðsíða 4
vfSIB
Þriðjudaginn 8. marz 1960
T18IK
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
_ _ . . Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði.
Kr. 2,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Ekki vantar mannaiætin.
Fyrir nokkru var haldinn hér í
bænum aðalfundur mið-
stjórnar Framsóknarflokks-
J Ins. Þar var, eins og gefur að
skilja, gerð samþykkt varð-
. andi stjórnmálaviðhorfið, og
hefst hún á því, að flokkur-
inn er talinn hafa sérstaklega
f þýðingarmiklum hlutverkum
að gegna eins og sakir:
standi. hefir verið bent lít-
illega á það hér í blaðinu,
hvernig aðalhlutverk flokks-
ins hefir snúizt upp í það að
gerast fullkomið handbendi
kommúnista og reka erindi
þeirra í einu og öllu.
En í ályktuninni segir enn-
fremur: „Framsóknarflokk-
urinn mun af alefli berjast
' fyrir því, að framfaraþró-
unin hefjist á ný og aftur-
haldsöflunum takist ekki til
frambúðar að buga hana með
samdráttar- og kreppustefnu
sinni.“ Margir munu brosa,
þegar þeir lesa þessa yfir-
lýsingu, því að hún hljóm-
ar dálítið skoplega, þegar
hún kemur frá Framsóknar-
flokknum, ekki sízt af því að
með ráðleysi sínu í ríkis-
stjórninni, sem kölluð hefir
verið vinstri stjórnin, undir-
bjó hann dyggilega að kalla
kreppu yfir fslendinga með
fálmi sínu, káki og hræðslu
við að horfast í augu við
veruleikann.
Þegar litlir menn ætla að
glíma við mikil verkefni,
vill oft illa til takast. Þetta
sannaðist áþreifanlega á
Frámsóknarflokknum, þeg-
ar hann var síðast í stjórn.
í hvert skipti sem taka
þurfti ákvörðun um lausn
vandamálanna, kaus hann
það ráð að velta vandanum
yfir á framtíðina, og þegar
erfiðleikarnir höfðu vaxið
eins og snjóbolti, sem velt-
ur niður brekku, hlupu
Framsóknarkempurnar bara
frá öllu saman. Þetta er nú
sannleikurinn í þessu efni,
og það eru hlægileg manna-
læti og mont, þegar Fram-
sóknarlyddurnar þykjast
geta barizt fyrir einhverri
framfaraþróun.
Barátta Framsóknar.
Þó skyldu menn ekki ætla, að ið alla tíð og verður um alla
Framsóknarflokkurinn sé framtíð.
ekki stundum fús til að berj- Þessi barátta flokkrins hefir
ast. Hann getur einmitt bar-
izt af miklum móði, ef hann
er að berjast fyrir hagsmun-
um þeirrar þröngu klíku,
sem myndar foringjahópinn.
Þá stendur ekki á því, að
> menn sé fúsir til að leggja
jafnvel nótt við dag í bar-
áttunni.
Það er nefnilega sannleikur-
inn um Framsóknarflokkinn.
Hann er fyrst og fremst
stofnaður til að skapa á-
kveðnum hópi manna sér-
réttindi innan þjóðfélagsins.
Öll hans þjóðmálabarátta
miðast við að vernda þessi
sérréttindi og auka þau, þeg-
ar þess er kostur. Þannig
• hefir starfsemi flokksins ver-
leitt til þess, að foringja-
klíkan hefir'. glatað dóm-
greind sinni að nokkru. Vold
ugir menn innan samtaka
Framsóknarflokksins og
kaupfélaganna hafa fengið
þá flugu, að þeir væru hafn-
ir yfir lögin, sem aðrir verða
að hlíta. Þetta hefir leitt þá
út á ógæfubraut — þeir hafa
gerzt brotlegir við landslög,
eins og öllum er kunnugt.
Það væri því þessum mönn-
um fyrir beztu, ef þeir gerðu
sér grein fyrir því, að um
þá verða að gilda sömu lög'
og aðra. Það mun firra þá
allskonar vonbrigðum og
vansæmd.
fyllti kirkjurnar.
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar
ber góðan árangur.
Gleggsta dæmiö.
Eitt gleggsta dæmið um það,
hvernig Framsóknarmenn
eru búnir að koma ár sinni
fyrir borð, er tekjuskattur-
inn, sem lagður er á sam-
vinnuhreyfinguna. Um langt
að af þessari miklu veltu,
sem nemur hundruðum mill-
jóna og ef til vill milljörð-
um, greiða þeir aðeins 1.3 af
hundraði af tekjuskattinum,
sem ríkissjóður innheimtir.
skeið hafa samvinnufélögin Þegar ríkissjóður fær 100 krón-
ur af tekjuskattinum, er að-
eins kr. 1.30 —ein króna og
þrjátíu aurar — frá sam-
vinnuhreyfingunni og kaup-
félögunum með allra þeirra
státað af því, að þau hefðu
um það bil þriðjUng allrar
verzlunarveltu í landinu. En
fyrir- óeigingjarna baráttu
Framsóknarflokksins hefir
•-tk
verið;i6ið:^yö úm hþútana, velt^. Fká; öð'rpm kömá kr. j eru núsfcúhhaíiáúst'.
Hinn almenni æskulýðsdagur
Þjóðkirkjunnar var s.l. sunnu-
dag. Veður var víðast hvar gott
og þátttakan mjög góð. Fréttir
hafa borizt frá eftirfarandi
stöðuum.
REYKJAVÍK
í Reykjavík var æskulýðs-
guðsþjónusta í öllum kirkjum
bæjarins og í sumum voru tvær
messur auk sunnudagsskóla.
Voru allar kirkjurnarþéttsetnar
og víðast tóku ungmennin sjálf
þátt í messugjörðinni. Um
kvöldið var svo æskulýðssam-
koma í Fríkirkjunni og sóttu
hana um 800 manns. Polyfon-
kórinn og Frikirkjukórinn
sungu, en ræður fluttu séra
Jóhann Hannesson og séra Olaf-
ur Skúlason, en samkomustjóri
var séra Bragi Friðriksson. Séra
Þorsteinn Björnsson, Fríkirkju-
prestur , annaðist helgistund í
lok samkomunnar. Á þessari
samkomu söfnuðust á þriðja
þúsund kr. í ferðasjóð íslenzku
þátttakendanna á æskulýðsmót,
sem haldið verður í Lausanne
í Sviss í júlí í sumar á veg-
um Alkirkjuráðs. Mun 15
manna flokkur halda héðan 2.
júlí með Gullfossi.
Merki voru seld í bænum og
og sölubörnum víðast mjög vel
tekið.
HAFNARFJÖRÐUR
í Hafnarfirði var æskulýðs-
guðsþjónustan geysivel sótt.
Frú Hrefna Tynes, varaskáta-
höfðingi íslands, flutti stutt á-
varp og stjórnaði. sérstakri helgi
athöfn, sem skátar önnuðust.En
prófasturinn, séra Garðar Þor-
steinsson prédikaði. Hafði sér-
stakt messuform verið prentað
með mynd af Hafnarfjarðar-
kirkju á forsíðu. Merki seldust
vel í Hafnarfirði og einnig í
Kálfatjarnarsókn, þar sem öll
merkin seldust upp.
SEYÐISFJÖRÐUR
Á Seyðisfirði sótti allt ungt
fólk §taðarins guðsþjónustuna,
sem séfa Erlendur Sigmunds-
son annaðist. Merkin seldust
mjög vel.
NORÐURLAND
A Norðurlandi var veður
mjög fagurt en illfært um sveit-
ir sökum mikilla snjóa, sem
varð til þess, að æskulýðsguðs-
þjónustur voru ekki haldnar
til sveita. En í Grenjaðarstað-
arsókn fóru meðlimir æskulýðs-
félagsins um sveitina á skíðum
98.70! Það mikla fjármagn,
sem samvinnuhreyfingin hef-
ir getað náð undir sig vegna
forréttindanna á undan-
gengnum áratugum, er því
tekið út úr þjóðarbúskapn-
um að -þessu leyti. Það er
sannarlega ástæða til, að það
fái að inna af hendi sams-
konar hlutverk og fjármun-
ir annarra, sem. skattlagðir
, ■--. v'ji i*. »U*J.: 1 —'f C'.-. >•' _.j-., > wj
til þess að selja merki dagsins,
og seldú vel.
Á SIGLUFIRÐI
Gekk æska bæjarins fylktu
liði í kirkju og hlýddu messu
sóknarprestins, séra Ragnars
Lárussonar. Gengu skátar
fremstir undir fánum en efstu
bekkir barnaskólans fylgdu á
eftir með kennurum sínum.
Unglingarnir tóku virkan þátt
í messunni, fóru t.d. með trúar-
játninguna og Jóhannes 3:16,
og tóku vel undir söng kirkju-
kórsins, sem söng undir stjórn
Páls Erlendssonar, organista.
Merkjasalan gekk mjög vel og
seldust um 500 merki.
Á AKUREYRI
var kirkjukórinn prýddur
fánum Æskulýðsfélagsins, en
lexíur dagsins lásu Guðríður
Þórhallsdóttir og Rafn Hjalta-
lín. Sr. Kristján Róbertsson
þjónaði fyrir altari en sr. Pétur
Sigurgeirsson prédikaði. Jakob
Tryggvason lék á orgelið og
stjórnaði kirkjukórnum, en Ás-
kell Jónsson stjórnaði kór
Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Skólastjórar og flestir kennar-
ar framhaldsskólanna á Akur-
eyri sóttu kirkju með nemend-
um sínum. Börnin í sunnudags-
skólanum seldu merkin, og
frjáls samskot voru í kirkjunni
til stuðnings við æskulýðsstarf-
ið.
Á Húsavík sótti allur gagn-
fræðaskólinn ásamt skólastjóra
og kennurum guðþjónustu,
sem séra Friðrik A. Friðriks-
son annaðist. Frú Gertrude
Friðriksson lék á orgelið
stjórnaði kirkjukórnum.
Þannig mætti halda áfram
að telja upp söfnuð eftir söfn-
uð um allt land. því hvarvetna
var þátttakan afbragsgóð og
mikil ánægja með hið vaxandi
æskulýðsstarf innan kirkjunn-
ar.
Uppkast að Kýpur-
samningi gert.
Julian Amery, aðstoðar-
nýlendmálaráðherra Bretlands,
og höfuðleiðtogarnir á Kýpur
undirrituðu fyrir helgina upp-
kast að samningi varðandi
þjálfun brezkra hersveita á
Kýpur utan herstöðva þeirra,
er þeir fá.
Þar með er hersetumálið
sjálft ekki leyst, þ. e. um land-
stærð þeirra. Sagði Makarios
erkibiskup, að hann sæi enga
von til þess, að deilan leystist,
ef Bretar héldu til streitu kröf-
unni um 300 ferkílómetra land
undir herstöðvar.
og
Þörf þjóðar
einingar.
„Eg, sem þessar línur rita,
hefi hvatt til þess nokkrum sinn-
um, í pistlum birtum í Bergmáli,
að þjóðin sameinaðist um að vísa
á bug öllum tilraunum til trufl-
unar og stöðvunar á vinnumark-
aðinum, þar sem það væri höfuð*
skilyrði fyrir efnahagslegri viðr
reisn, að vinnufriður haldist. Nú
berast fregnir um, að bátar muni
stöðvast í hinni miklu verstöð,
Vestmannaeyjum, í upphafi
næstu viku, ef ekki takist samn-
ingar innan þess tíma (14. marz)
um nýja fisverðssamninga. Um
þessa deilu verður ekki rætt hér
sérstakléga, en bent á hver hætta
er á ferðum, ef verkfallsalda
skyldi rísa.
Ekki vegna efna-
liagsráðstafan-
anna einna.
Það er ekki vegna efnahags-
ráðstafanna ein'na, sem þjóðar-
einingar er þörf. Sendinefnd ls-
lands, sem á að tala máli Islands,
á hinni mikilvægu ráðstefnu, sem
hefst 17. þ.m. í-Genf, um réttar-
reglur á hafinu, á að tala þar
máli okkar í landhelgismálinu,
er á förum þangað að kalla, og
tveir nefndarmanna þegar farn-
ir til undirbúnings. Nú ætti þjóð-
in að einbeita sér að stuðningi
við þessa sendimenn okkar i
þessu mikla réttlætis- og sjálf-
stæðismáli okkar, landhelgismál-
inu, — senda þá til Genfar í
þeirri öruggu vissu, að þeir hafi
þjóðina alla sem einn mann að
baki sér. Og hún ætti ekki ein*
ungis að vera samhend og sam-
huga um þetta. Hún ætti einn-
ig að vera það í því, að skapa
öryggi heima fyrir með þvi að
treysta efnahag landsins, og þar
er höfuðsklyrði, að vinnufriður-
inn haldist.
Vaxandi
skilningur.
Svo virðist sem aukinn skiln-
ingur sé á því, a. m. k. hér í bæ,
að hið eina skynsamlega og
rétta, þegar um efnahagsráð-
stafanir er að ræða, er að biða á-
tekta í bili, og sjá hvernig þess-
ari miklu tih’aun reiðir af. Ég
segi miklu tilraun, því að um
annað er ekki að ræða en viður-
kenna, að hér er um mikla til-
raun að ræða til að rétta efnahag
landsins og álit, og það viður-
kenna jafnvel þeir, sem láta 1
ljós óánægju með það, sem verið
er að gera, en taka þá afstöðu að
„bíða og sjá hváð setur“, a. m. k.
um sinn, enda hafa hinir óá-
nægðu menn, að því er virðist,
ekki nein úrræði sjálfir á tak-
teinum.
Nú er sá tími er þjóðin þarf
að standa saman, ekki að eins
út á við, heldur einnig á inn-
lendum vettvángi. Aldrei hafa
átt betur við varnarorð skálds-
ins: Litla þjóð, sem átti í vök
að verjast, vertu ei við sjálfa
þig að berjast. Borgari."
f Fimmtán menn meiddust í
olíubruna í Buenos Aires á
mánudag. Komst eldur í
fjórar benzínflutningabif-
reiðir og þótti kraftaverk,
að ekki skyldi verða spreng-
ing.
Matsvein og háseta vantar
á netabát- frá Reykjavík.
Upplýsingar í síma 10344.
KSOðaœKKSKKX