Vísir - 31.03.1960, Blaðsíða 4
,9
^ÍSIB
Fimmtudaginn 31. marz 1960
WÍSIR.
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Víslr kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
'Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Simi: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði.
Kr. 2,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
„Merkilegt píagg."
Þjóðviljinn birti loks í fyrradag
stjórnmálaályktun 12. þings
Sósíalistaflokksins. Segir
1 blaðið að þetta sé „merkilegt
} plagg í íslenzkri stjórnmála-
\ sögu‘‘ og hvetur fólk til að
f lesa það vandlega. Þetta
} „merkilega plagg“ nær yfir
f hér um bil heila opnu í Þjóð-
r viljanum, en þótt vel sé leit-
} að verður ekki séð að mikið
T nýtt komi þar fram. Er því
í vandséð hvað við er átt með
• því, að þetta sé merkilegt
■ plagg í stjórnmálasögunni.
' Hin gömlu kommúnistísku
J slagorð ganga þarna aftur,
■ sama tuggan eins og hægt er
' að lesa daglega í Þjóðviljan-
um.
Þeir sem vilja sjá broslegu
hliðarnar á svona skrifum,
munu eflaust taka eftir því,
f og hafa gaman af, að það
f kvað hafa verið Sósíalista-
1 flokkurinn, sem „fyrstur og
hiklausastur allra flokka
V vann að því, að lýðveldi yrði
stofnað á íslandi“. Þá vita
’ menn það! Hitt skiptir svo
auðvitað engu máli, að löngu
r áður en nokkur kommúnista-
T flokkur, Sósíalistaflokkur,
’ eða hvað hann kann að hafa
? heitið, var til í landinu voru
fslendingar staðráðnir í að
' stofna lýðveldi strax og
,l sambandslagasamningurinn
væri útrunninn. Þjóðin hefur
um fátt eða ekkert staðið
J eins óskipt, og það er mikill
Enn hikar Þórarinn.
Hver er stefna Framsóknarmanna
gagnvart áætlunarbúskap?
barnaskapur hjá kommúnist-|
um, að ætla að reyna að
telja fólki trú um að þeir
hafi gegnt þar einhverju for-
ustuhlutverki. Þjóðin veit
vel hvaða menn stóðu fremst-
ir í sókn íslendinga til full-
komins sjálfstæðis, og.enginn
þeirra mun nokkru sinni
hafa verið bendlaður við
kommúnisma.
Af þessu má m. a. ráða hve
kommúnistum er sýnt um að
fara rétt með staðreyndir!
En þeir sem vita hvernig
lærifeður þeirra í Rússlandi
skrifa mannkynssögu, ættu
ekki að verða hissa, þótt
hlutunum sé hagrætt í sam-
ræmi við þarfir flokksins!
Sögufalsanir Rússa eru orðn-
ar kunnar um heim allan,
og sumar þeirra eru svo
barnalegar, að í lýðfrjálsum
löndum er hlegið að þeim.
Eins verður auðvitað skelli-
hlegið hér nú, ef kommún-
istar ætla að reyna að fara
að halda því fram að þeir
hafi, sem flokkur, flýtt eitt-
hvað fyrir lýðveldisstofnun-
inni eða haft þar einhverju
forustu.
Ekki er því heldur gleymt í
fyrrnefndri stjórnmálaálykt-
un, að þakka Sósíalista-
flokknum kjördæmabreyt-
inguna. Sagt er að hann hafi
„tryggt framgang þessa rétt-
indamáls“.
Broslegt grobb.
Þetta er líka brosleg fullyrðing.
Væri ekki nær að halda því
! fram, ef þakka ætti kjör-
! dæmabreytinguna einhverj-
i um einum flokki, að afstaða
' stærsta flokksins í þinginu
og með þjóðinni hafi ráðið
I þar mestu? Ætli það hefði
Jf ekki orðið lítið úr kjördæma-
9 breytingunni, ef enginn hefði
W verið henni fylgjandi nema
kommúnistar?
JSvipuðu máli gegnir um önnur
1 afrek, sem reynt er að eigna
kommúnistum í þessu
F „merkilega plaggi“. Þeir
hæla sér t. d. af nýsköpun-
I inni, en allir vita að mesti
! Ijóðurinn á ráði hinnar
’ margumtöluðu nýsköpunar-
F stjórnar var sá, að kommún-
^ istar áttu sæti í henni. Og
' fyrir þá sök varð starf henn-
} ar ekki eins gott og ella hefði
Fí getað orðið. Að vísu má
/ segja að það gengi krafta-
T verki næst hvað Ólafi Thors
T tókst vel að halda kommún-
i istum í skefjum og sveigja
;T jþá til hlýðni og.. fylgjs við
viturlegar ráðstafanir, og ó-
líklegt verður að telja að aðr-
ir íslenzkir stjórnmálafor-
ingjar hefðu leikið þetta eft-
ir honum, eða muni geta gert
það. Að minnsta kosti varð
lítið úr Hermanni Jónassyni,
þegar hann ætlaði að fara að
leika hlutverk Ólafs að þessu
leyti. Og þannig mun eflaust
fara fyrir flestum, sem ná-
lægt þeim koma í stjórn-
málalegu samstarfi, að upp-
skeran verður skömm og
skaði.
Það eina sem kommúnistar geta
með réttu hælt sér af — og
ætti að vera mikið afrek í
þeirra eigin augum —• er að
þeim hafði næstum því tek-
ist að leggja efnahag þjóðar-
innar í rústir, þegar Vinstri
stjórnin hrökklaðist frá
völdum. Hamingja fslands
forðaði þjóðinni þá frá þeim
örlögum, og enn verða allir
þjóðhollir menn að treysta
því, að hún forði okkúr frá
þeim örlögum sem yfiffáðum
.,// kommúnista fylgja. c f.
Þórarinn Þórarinsson Tíma-!
ritstjóri hefur enn ekki svarað (
spurningu VÍSIS frá því á
Iaugardag.
Hún var sú, hvort Framsókn-
arflokkurinn væri búinn að
taka áætlunarúbskap á stefnu-
skrá sína, eða er það skoðun
Þórarins, að svo eigi hann að
gera? Þetta skiptir miklu máli
því frám að þessu hefur Fram-
sókn talið sig milliflokk, sem
veit ekki í hvorn fótinn hann á
að stíga. Fyrrv. Framsóknar-
þingm. lýsti stefnu flokksins
svo, að hún væri „mitt á milli
frostmarks og suðupunkts“, m.
ö. o. hvorki hrá né soðin.
En sósíalismi Þórarins er
óneitanlega í ætt við kommún-j
isma og snertir jafnvel nazism-
ann. Eða vill Þórarinn skýra J
það öðruvísi hvaðan stefnan er
tekin.
Það undrar reyndar engan
þótt Þórarinn Þórarinsson taki
að láni' frá kommúnistum og'
jafnvel steli. Skrif hans eru
orðin slík, að þau eiga vart
heima á síðum Tímans. Hann
gengur orðið svo langt að taka
málstað Rússlands gegn lýð-
ræðisríkjunum. Það kom einnig
berlega í ljós í hinu erlenda yf-
irliti. Hann telur Bevan leið-
toga vinstri manna í verka-
mannaflokknum ætla að taka
þar við forystu flokksins í stað
Gaitskells.
Þá heldur Þórarinn því fram
í greinum sínum og ræðum, að
S.-Afríka
ríkjandi fjármálastefna á vest-
urlöndum nú sé sú sama og á
árunum fyrir heimsstyrjöldina
og sem m. a. varð henni vald-
andi. Hér á sú stefna að hafa
ríkt fyrir 1927, en eftir það
hafi blaðinu verið snúið við.
Og mátti skilja á leiðara Þórar-
ins á sunnudag, að það hefði
verið vegna kreppunnar.
Þetta er sögulega rangt.
Kreppan hefst ekki fyrr en
um 1929 og stefnubreyting
verður ekki veruleg í íslenzk-
um fjármálum fyrr en um
1930—31 og að marki um 1934.
Verkamenn muna allra bezt,
að kjör þeirra hafa sjaldan ver-
ið verri en fyrstu árin eftir
stefnubreytinguna og að mun
lak'ari en fyrir 1927.
Allar tilraunir Þórarins til
að sanna, að verið sé að taka
upp stefnuna fyrir kreppuna,
eru fölsun á staðreyndum.
Dagar hins taumlausa líber-
alisma eru taldir og við hefir
tekið hinn félagslegi mark-
aðsbúskapur eins og við þekkj-
um hann t. d. í V.-Þýzkalandi.
Það verður erfitt fyrir Þórarin
að kalla stefnu Adenauers og
Erhards kreppustefnu og þann
síðarnefnda kreppu-hagfræðing
og rökstyðja það.
Rauða slikjan, sem komin er
á Þórarinn og skrif hans, er
kannske skiljanleg. Það á að
þóknast vinstri armi Fram-
sóknar. Vísbending um vald
vinstri manna í Framsókn.
Sundmótið í gær:
jr
Agústa og Hrafnhildur settu met.
Afreksbikar til Ágústu, árangur Hrafnhildar
afburða góður.
Sundmót KR fór fram í Sund-
höllinni í gær, og settu tvær af
okkar beztu sundmeyjum þrjú
íslandsmet, þær Ágústa Þor-
steinsdóttir og Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, en Ágústa
vann bezta afrek mótsins skv.
stigatöflu og hlaut fyrir „Af-
reksbikar Sundsambands Is-
lands“.
Ágústa setti nýtt met í 100
m skriðsundi. á 1:05,7 mín., en
eldra metið setti hún sjálf 1958,
1:06, 4. Þetta er afburða góður
timi
En það var Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, sem setti tvö ný
met. Annað var í 200 m bringu-
sundi, þar komst hún 6 sekúnd-
ur fram úr eldra meti sínu, er
hún setti í fyrra, synti nú á
2:59,6 mín. Þetta met er á
Norðurlandamælikvarða, og
hefur hún náð takmarki, sem
eldri og reyndari sundkonur en
hún hafa lengi þráð. Þá var
millitími Hrafnhildur í 100 m,
1:24,3 mín., staðfestur sem nýtt
met, hið eldra var 1:24,8.
Þrjú beztu afrek mótsins skv.
stigatöflu voru þessi: Ágústa
Frú Mountbatten, sem and-
aðist fyrir skemmstu á
Borneo, lét eftir sig eignir,
sem námu næstum 488 þús.
sterlingspundum.
Þorsteinsdóttir 100 m skriðsund
á 1:05,7 — 916 stig. Guðmund-
ur Gíslason 200 m skriðsund á
2:12,3 stig. Einar Kristinsson
100 m bringusund á 1:15,3 —
850 stig.
Kontmiínistar —
Frh. at 1. síðu.
sjálfir að eflast að mannvali,
víðsýni og þroska. Þetta hafa
að vísu allir vitað nema þeir
sjálfir.
Að síðustu lýsa þeir ýfir að
þeir geti engu komið í fram-
kvæmd nema félagatalan stór-
aukist og alger eining verði í
flokknum.
Einhverjum kann að renna
til rifja hin pólitísku bágindi
kommúnistanna. Þá skortir
mannval, þeir eru blindir af
ofstæki, þeir eru óþroskaðir og
þröngsýnir, félagatalan hryn-
ur niður og flokksmenn berjast
innbyrðis.
Þannig er ástandið sam-
kvæmt Þeirra eigin yfir-
lýsingu. Og þessir vesaling-
ar revna að telia almenn-
ingi trú um að beir einir
geti bjargað landinu!
Framh. af 1. síðu.
té upplýsingar um handtekið
fólk, og mætti svo lengi telja.
Kröfuganga.
fskyggilega mjög þótti horfa
í Höfðaborg í gær, er um 30.000
manna fylking tók sér stöðu þar
og náði hún allt inn í miðhluta
borgarinnar og var þess kraf-
ist, að sleppt yrði úr haldi 243
mönnum, sem handteknir höfðu
verið. Herlið og lögregla í bryn-
vörðum bifreiðum gaf nánar
gætur að öllu og var við öllu
búin, en fylkingin leystist upp
friðsamlega.
Tókst að flýja land.
Fréttir bárust um það í morg-
un, að varaforseta samtakanna
African Kongress hefði tekist
að komast undan á flótta til
Bechuanalands, en þar fara
Bretar með umboðsstjórn, og
væri nú á leið þaðan og ætlaði
að tala á fundi Öryggisráðsins.
Fundur ráðsins.
Hann hófst í gær. Fréttaritar-
ar segja, að ræður manna hafi
frekar borið sorg en gremju
vitni. Bretar og Frakkar sáu sér
ekki annað fært en að greiða
ekki atkvæði gegn umræðunni,
en lýstu að öðru leyti yfir, að
stefna þeirra væri óbreytt um
það, að þetta væri innanlands-
mál «g afskipti af því ólögleg.
— Fulltrúi Suður-Afríku mót-
mælti og á þeim grundvelli og
kvað óheimilt að taka málið til
meðferðar á fundi Öryggisráðs-
ins.
Sitji þá heldur heima.
Brezk blöð í morgun ræða á-
fram atburði í Suður-Afríku.
Þau telja seinustu ráðstafanir
um neyðarástand og herútboð
afsanna það, sem dr. Verwoerd
hafði sagt áður um ástandið.
Daily Mail segir, að ef dr. Ver-
woerd ásetji sér ekki að koma
^með „opinn huga“ á samveldis-
ráðstefnuna í maí, geti hann
eins vel setið heima. Daiíy Her-
old, blað jafnaðarmanna, segir
að það sé engu líkara en að
stjórn S.-A. óski eftir byltingu
í landinu.
Þingfundur í alla nótt.
Fundur í Suður-Afríkuþingi
stóð í alla nótt og var rætt um
frv. til laga um að banna sam-
tök hörundsdökkra manna. Um
þinghúsið er hringur brynvar-
inna bifreiða.
Allmargir þeirra, sem hand-
teknir hafa verið, hafa krafist
þess, að þeim verði sleppt úr
haldi, þar sem þeir hafi verið
handteknir án handtökuheim-
ildar, eða áður en neyðarástand-
ið kom til sögunnar, en það
heimilar að vísu handtökur án
sérstakrar heimildar. — Dómar-
ar úrskurðuðu að 70 skyldi
sleppt, en allir nema 3 voru þeg-
ar í stað handteknir á nýjan
leik.
Eftir seinustu fregnum að
dæma er ókyrrð á nokkrum
stöðum og nokkrir menn særst.
í Somerset West skaut lögregl-
an yfir höfuð manna og dreifði
svo mannfjölda með kylfuárós.