Vísir - 09.04.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 09.04.1960, Blaðsíða 1
10. árg. Laugardaginn 9. apríl 1960 84. tbl, ST JÚRN ARFRUMV ARP UMINN- FLUTNING OG GJALDEYRISMÁL. Leyfi þarf fyrir 10-15% af innfBiitningi tiE Bandsins. í gœr var lagt fram á Alþingi miiklvœgt frumvarp um skipun innflutnings- og gjald&yrismála. Það er samið og flutt að til- hlutan ríkisstjórnarinnar. í fyrsta kafla segir m. a.: Innflutningur á vörum til landsins skal vera frjáls, nema annað sé ákveðið í sérstökum lögum eða í reglugerð, sem rík- isstjórninni er heimilt að gefa út samkvæmt þessum lögum, að höfðu samráði við Landsbanka íslands, Seðlabankann. Sama gegnir um gjaldeyrisgreiðslur til útlanda. Úthlutun gjaldeyris- og inn- flutningsleyfa fyrir vörum og gjaldeyrisgreiðslum annast þeir viðskiptabankar, sem hafa með höndum kaup og sölu á erlend- um gjaldeyri. Allur erlendur gjaldeyrir, sem hérlendir aðiljar eiga eða eignast fyrir vörur, þjónustueða á annan hátt, skal seldur Lands- banka íslands, Seðlabankanum eða öðrum bönkum, sem hafa heimild til að verzla með er- lendan gjaldeyri, án óeðlilegs dráttar. Um undanþágu getur verið að ræða frá þessu. Ríkisstjórninni er heimilt að setja með reglugerð takmark- anir á útflutning og innflutning íslenzkra peningaseðla, skipti- myntar, skuldabréfa og hvers konar skuldbindinga, sem hljóða um greiðslu í íslenzkum gjaldeyri. Sama máli gildir um erlenda seðla og skiptimynt. Ekki mega opinberir aðiljar né einkaaðiljar semja um lán erlendis til lengri tíma en eins árs, nema með samþykki ríkis- stjórnarinnar. Til lána telst í þessu sambandi einnig hvers konar greiðslufrestur á vörum og þjónustu til lengri tíma en eins árs. í 2. kafla segir: Ríkisstjórninni er heimilt að ákveða, að vörur megi ekki bjóða til sölu, selja til útlanda eða flytja úr landi, nema að fengnu leyfi hennar. / Samráð skal hafa við Lands- banka íslands, Seðlabankann, um veitingu leyfa til útflutn- ings, er greiðist í jafnkeypis- gjaldeyri, ef sá uúflutningur er umfram þær upphæðir, sem gildandi viðskiptasamningar við hlutaðeigandi jafnkeypislönd' gera ráð fyrir. Úr 3. kafla: Framkvæmdabanki íslands skal semja áætlun um þjóðar- tekjurnar, myndun þeirra, skipt- ingu og notkun. Þá skal bank- inn semja skýrslur um fjárfest- ingu í landinu og vera ríkis- stjórninni til ráðuneytis um fjárfestingarmál. Hlutaðeigandi aðiljum skal skylt að veita Framkvæmdabanka íslands all- ar upplýsingar, sem hann þarfn- ast í þessu sambandi. í 4. kafla: Það kviknaði bara í cEíufýringunni". Egill „Skaili66 brunninn að innan. „Það er alveg agalegt að sjá þetta,“ sögðu Iandkrabbarnir, þegar þeir sáu skemmdirnar á Agli Skallagrímssyni, er hann kom til hafnar í fyrradag. . . . og auðvitað fór fréttarit- ari Vísis á stúfana. Hvað var um að vera? Jú. Það kviknaði í Agli, þeg- ar hann hafði verið í tvo daga úti á Eldeyjarbanka. Olíufyr- ingin niðri tók upp á þeim ó- sóma að kveikja í sér, og eld- urinn logaði um allt fýringar- plássið. Hásetarnir sváfu svefni hinna réttlátu þarna rétt fyrir innan, og vissu ekki fyrr en þeir voru vaktir af skipsfélög- um sínum. Flestir þeirra fóru út í rólegheitum, framhjá eld- inum og reyknum, og varð ekki meint af, en tveir tóku heldur þann kosinn að fara krókaleið- ir, skriðu út í netageymslu og þaðan út í neyðarútgang, sem lika var beint fyrir framan olíufýringuna. Staðreyndin er sú, eftir því sem Rafn Kristjánsson 1. stýri- maður sagði mér „ . . . að það hafði bara kviknað í olíufýr- ingunni, og hún hafði geró- nýtzt. Annað var það ekki Jú . . . málningin eyðilagðist þarna niðri, en annars var það ekkert. Engin töf, nei.“ Innheimta má af gjaldeyris- og/eða innflutningsleyfum allt að 1% leyfisgjald af fjárhæð þeirri, sem leyfið hljóðar um. Af gjaldi þessu skal allt að helmingur, eftir nánari ákvörð- un ríkisstjórnarinnar, ganga til bankanna til að standa straum af kostnaði við úthlutun leyfa, en að öðru leyti skal þvi varið Framh. a> 4. síðu. Mótmælaorðsend- ing endursend. Fregn frá Moskvu í gær hermir, að sovétstjórnin hafi neitað að taka við vestur-þýzkri mótmælaorðsendingu, sem þar var afhent í fyrradag. í orðsendingu þessari kvart- aði Bonnstjórnin yfir því, að Nikita Krúsév forsætisráðherra hafi á óviðurkvæmilegan hátt veizt að Vestur-Þýzkalandi í ræðum í Frakklandi. í ræðum þessum varð honum tíðrætt um endurvakinn hernaðaranda og áform vestur-þýzkra leiðtoga, og minnti á hvað Sovétríkin og Frakkland og fleiri lönd hefðu orðið að þola af völdum þýzkr- ar hernaðarstefnu í tveimur heimsstyrjöldum. — í Vestur-' Þýzkalandi er litið svo á, að um rógsherferð á hendur V.-Þ. sé að ræða. Hann var dálítið feiminn þar sem hann stóð með stjörnuna framan á sér og heiðursskjalið í hendinni, — en það fór honum bara vel. (Sjá frétt á bls. 8). íslenzkur heiðurspeningur fer í ferðalag — á brjósli Hofger Wollfs. „Sjónarvottar segja, að hefð- uð þér ekki sýnt jafnmikla fórn- arlund og snarrœði, hefði mann- inum ekki verið bjargað“, stend- ur á heiðursskjali þvi, sem stjórn Slysavarnafélags íslands afhenti Holger Wulff í morgun. Skjalinu fylgdi heiðurspen- ingur úr silfri, sem Guðbjartur Ólafsson forseti félagsins nældi á brjóst piltsins. i Holger lærði að synda 15 ára gamll í skóla í Hamborg, þar sem hann er fæddur og uppal- inn. Sund er skyldunámsgrein í skólanum, og þar lærði hann einnig björgunarsund. Foreldr- ar Halgers búa í Hamborg, og þar á hann einnig eina systur — og kærustu. Hann kom á skipið Marga- rethe Bischoff í desember sem „messadrengur“, jafnvel þótt Framh. á 7. síðu. Sameiginleg tillaga Kanada og USA fram í Genf í gær. lögi Genf í gær. Einkaskeyti til Vísis. Eins og getið var í fyrra skeyti var lögð fram í morgun sameiginleg tillaga Kanada og Bandaríkjanna um 6 mílna landhelgi og 6 mílna fiskveiði- lögsögu að auki. Skulu sam- kvæmt henni ríki, sem stundað hafa fiskveiðar við strandríki fá að stunda veiðar á ytra sex mílna beltinu í 10 ár frá 31. okt. 1960 að telja, hafi þau stundað veiðar á bví svæði áð- ur í fimm ár fyrir árslok 1958. Dean fulltrúi Bandaríkjanna og Drew fulltrúi Kanada töluðu fyrir tillögunni. Lögðu þeir áherzlu á, að allir alþjóða- samningar væru háðir mála- miðlun. Hér hefðu nú mörg ríki fært miklar fórnir til þess að samkomulagi mætti verða náð. Tíu-ára tímabilið yrði hvorki stytt né lengt, — fiskveiðiþjóðir Lögð var áherzla á sérstakar ráð- stafanir til öryggis þjóðum, sem eiga afkomu sína undir fiskveiðum. sem stunda veiðar á fjarlægum miðum gætu ekki fallist á stytri tíma, og strandríki ekki sætt sig lengri tíma. Dean kvað mjög margar sendinefndir á ráðstefnunni hafa óskað eftir að tillögur Bandaríkjanna og Kanada væru sameinaðar. Taldi hann í bræðingstillögunni vera öll meginatriði tillögu, sem ætti að geta fengið % atkv. meirihluta. Drew kvað hafa verið sleppt úr tillögunni ýmsum breytingum, sem ýmsar sendinefndir hefðu stungið upp á. Þess vegna væri það eitt í bræðingstillögunni, sem allir ættu að geta verið sammála um. Eftir Dean er haft, að und- antekning sé, þegar um ó- venjulegar aðstæður sé að ræða hjá þjóð, sem að lang- mestu leyti er háð fiskveið- um innan 12 mílna mark- anna og þetta atriði þarfnað- ist velviljaðrar athugunar ráðstefnunnar. Drew sagði: Okkur er hug- leikið, að viðurkenna sérstök vandamál ríkja, sem eru sér- staklega háð fiskveiðum, af- komu íbúa sinna með því að tryggja þeim hæfilegar framkvæmanlegar öryggis- ráðstafanir til verndar fisk- stofnum þéirra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.