Vísir - 15.06.1960, Side 9

Vísir - 15.06.1960, Side 9
VÍSIB Miðvikudaginn 15. júní 1960 * Iþróttir ör öllum áttum Tony Blue — liann á bezt í ár 1.47.9 mín. Framh. af 4. sí'ðu. A-Þjóðverjar eru engir eft- • irbátar hvað 800 m. snertir, og þeir hafa einnig a.m.k. þrem- ur mönnum á að skipa, þótt einn þeirra muni sennilega ekki geta látið mikið að sér kveða í sumar vegna veikinda. Sá er hinn kunni íþróttamaður Sig- -fried Valentin, sem hljóp í fyrra á 1.47.6 sek. Hann hefur lítið getað stundað æfingar vor. Þekktur er einnig Manfred Matuchewski: Hann hljóp í fyrra á 1.48.9 sek. og er talinn ■ mjög líklegur til stórafreka einkum með tilliti til þess að hann er ekki nema tvítugur. Þriðji A-Þjóðverjinn er fried Reinnagel, en hann gat lítið keppt siðastliðið ár vegna lasleika, en mun nú einnig í mjög góðri æfingu. Aðrir Þjóðverjar sem einn- ig eru góðir 800 m. hlauparar eru Edmund Brenner, sem ann- ars er þekktari sem 1500 m. hlaupari. Hann náði í fyrra- haust 1.49.0 sek., sem mundi nægja honum til þess að verða sendur á Ol, en annað er það. að hann mundi sennilega verða að endurtaka afrek sitt, nema svo ólíkiega vildi til að hinir beztu 800 m. hlauparar aðrir Peter Adam, 400 in. hlauparinn! sem náði strax 3. sæti á lieims- afrekaskránni í 800 m. I þar í landi brygðust. í Sviss er eánnig mjög góður hlaupari, Christian Wágli, sem. í fyrra náði 1.47.5 sek. og var 1 næstur á eftir Moens á afreka- skránni. Hann hefur einnig náð góðum tíma í vor, og verður vafalaust góður í sumar. Englendingar eiga Brian Hewson, klæðskerann, sem þeir hafa haldið fram (í World Sport) að gæti unnið á Olym- píuleikunum, en varast skj'ldu menn að taka slík stóryrði allt of hátíðlega. Hewson er að vísu góður hlaupari, en honum er farið eins og svo mörgum öðr- um brezkum hlaupurum, að stundum tekst honum upp og stundum ekki, og þeir sem fylgst hafa með ferli hans segja, að hann eigi það jafnvel enn til að vera haldinn slæmri taugaveiklun fyrir keppni. —, Undra maður Breta á þessu sviði, er 400 m. grindahlaup-, arinn Farrell, sem hljóp vega- lengdina í fyrsta skipti nú fyrir skömmu og náði þá einum bezta . tíma sem náðst hefur í ár 1.48.3 Herbert Missalla á bezt 1.47.0 — en búizt er við að hann bæti árangur sinn í sumar. mín. Hvort hann getur endur- tekið slíkt skal hins vegar lát- ið ósagt. Frakkar eiga góða menn eins 1 og t.d. Michel Jazy 1.47.9, og | Pierre Yvon Lenoir 1.43.0. e' j þessum árangri náðu báðir í I fyrra. Tom Murphy frá Randaríkj- unum er almennt talinn sterk- asti hlauparinn þar vostra og hann stj'rkti enn í þe.irri trú nú fyrir fáum dögum er hann hljóp 880 y. 1.48.2 sem almennt er talinn samsvara 1.47.5 í 800 m. Ernie Cunbffe er einnig góður (á 1.46.6), en náði bezt 1.48.5 í fyrra. Pólski skurðlæknirinn Stef- an Lewandwsk.i var í fyrra í 2. sæti með 1.46.5 mín., en hann er sennilegri til að leggja aðaláherzluna á 1500 m., þar sem hann á mjö góða tíma. Dan Waern frá Svíþjóð er einnig góður 800 m. hlaupari, en legg- ur sig þó sennilega einkum fram á lengrj vegalengdinni. Ástralski þátttakand.inn er Tonv Blue, 23 ára gamall lækn- ir, sem náð hefur L47.9 í vetur, en það er betri tími en Elliot hefur náð á þeirri vegalengd. Elliot á bezt 1.46.6 mín en náði 1.49.1 nú í vetur, en nokkur vafi er talinn leika á því hvort Elliot muni frekar reyna til við 800 eða 5000 m. utan 1500 m. hlaupsins. Eins og menn sjá, eru marg- ir sem koma til greina, en sá sem við fáum að sjá hér á vell- inum eftir rúma viku, verður annar af hinum tveimur lík- legustu til að sdgra í Róm. ----•------ Blrtmgur 5 ára. Tímarit listamanna, Birting- ur, hefur nú verið gefið út í fimm ár, og er 1. hefti 5. ár- gangs nýkomið út. Það hefst á kafla ur ljóða- bálkinum Vindar eftir franska skáldið Saint-John Perse í þýð- ingu Jóns Óskars, og skrifar þýðandinn kynningragrein um skáldið. Perse er í hópi allra fremstu nútimaskálda heimsins og hefur iðulega verið nefndur sem líklegur Nóbelsverðlauna- þegi. Þá eru þýdd ljóð eftir rússneska stórskáldið Alexand- er Block, sem kunnastur er hér á landi af ljóðaflokkinum Hinir tólf í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar, og sænska skáld- ið Johannes Edfelt, hvort tveggja í þýðingu Thors Vil- hjálmssonar. Ari Jósefsson á hér smásöguna Dauðaleit, en Steinar Sigurjónsson þýðir sög- una Dúna er þjófur eftir André Loos, einn hinna kunnustu í hópi yngri höfunda Júgóslavíu. Endurfundir heitir Ijóð eftir Einar Braga, og fimm ljóð eru eftir Jóhann Hjálmarsson. Af öðru efni í heftinu má nefna greinina Dólgamarxismá, þar sem Einar Bragi tekur fyrir J'mis atriði í greininni Bók- menntir í blindgötu, sem Hann es Sigfússon ritaði í febrúar- hefti Tímarits Máls og menn- ingar, langa ritgerð eftir Thor Vilhjálmsson um Quasimodo og ítalska nútímaljóðlist, og rit- dóm eftir Hannes Sigfússon um ljóðabók Sigfúsar Daðasonar, Hendur og orð. Annað hefti Birtings er nú í prentun og kemur út seint í þessum mánuði. íainaóur karhiiaima og drengja fyrirliggjandi. L H. MÍÍLLER Johan Rönning h.f. Raflagnir og viðgerðir á öllum heimilistækjum. — Fljót og vönduð vinna. Sími 14320. Johan Rönning b-f- «100008008001 Þýzkir fótboltaskór gamla verðið. Kex og kindur — Framh. af -3. síðu. lambið með lungnabólguna, því að það hafði sloppið út úr kof- anum, og hljóp nú með mömmu sinni, anginn litli. Það hafði fæðst 12 dögum fyrir tímann (hvernig vissiSæmundurþað?), og fengið lungnabólgu í ofaná- lag, — en mér er langmest annt um þessi litlu, veiku grey, sagði Sæmundur, og mest í það varið að geta dregið þau úr greipum dauðans. — Ilvernig veistu, að það er með lungnabólgu? — Ég heyri það bara. -— Heyrirðu? — Já. Ég hlusta það bara, sagði hann, og brá lambinu upp að ej'ranu á sér. — Er það ennþá með lungna-. bólgu? — Já, greyið. Það er alveg þegjandi. Kemur ekki upp nokkru hljóðd. — Mee, sagði lambið. — Já, sjáum bara til. Kann- ske þú sért að hressast, asninn þinn litli. Svo fór hann að blanda í sprautuna af vísindalegri ná- kvæmni. — Níu kúbik, heyrðá ég hann tauta, um leið og hann hristi glasið í ákafa. — Haltu nú á | litla skinninu fyrir mig, sagði j hann og fékk mér kroppánn. j Nálin á kaf í herðakambinn, lambið sagði me og spriklaði og Sæmundur tæmdi níu kúbik- in í kroppinn. — Svona greyið. Ég hugsa bara, að þú lifir það af. — Svo að það sé hægt að drepa þig seinna, bætti ég við af innilegri meinfýsi, en lamb* | ið skildi ekki hvað ég sagði, því að það var svo ungt og ) ekki búið að læra að tala. Svo fór ég heim með skíta* lyktina á skónum til ritstjór- ans. e > Karlsson. Stefnuljós fyrir vöru- og fólksbifreiðir. í Sjálfvirkir rofar og blikkarar 6 og 12 volta. tj Bifreiðaperur — Ljósasamlokur 12 volta. j SMYRILL Húsi Sameinaða. — Sími 1-22-60. Tilkymniii!! N. 20/1960. 1 Verðlagsnefnd hefur í dag ákveðið eftirfarandi há- marksverð í heildsölu og smásölu á innlendum niðursuðu— vörum: Fiskbollur, 1/1 dós . . Kr. 11.80 Kr. 15.20 Fiskbollur, Vz dós . . — 8,20 — 10.55 Fiskbúðingur, 1/1 dós. . . . . — 14.25 — 18.35 Fiskbúðingur, Vz dós . . — 8.60 — 11.05 Grænar báunir, 1/1 dós. . . . . — 9.65 — 12.40 Grænar baunir, Vz dós. . . . . — 6.30 — 8.10 Söluskattur er innifalinn í verðinu. Að öðru lej'ti heldur gildi sínu tilkynning nr. 14/1959» en heimilt er þó að bæta söluskatti við smásöluverð það er þar greinir. ... r Reykjavík, 14. júní 1960. V erðlagsst jórinn.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.