Vísir - 15.06.1960, Page 10

Vísir - 15.06.1960, Page 10
10 V í S I R Miðvikudaginn 15. júrií 196® SliZAN MARSH FJÁRHALDSMAÐURINN 20 Judy svaraði ekki. Hún var svo einkennilega huglaus. Hún fór snemma að hátta um kvöldið. Netta og Stephen voru að horfa á sjónvarp og Símon bað Tom um að finna sig inn í bókastofu. — Ég skal ekki eyða mörgum orðum að því, sem gerðist í dag, byrjaði hann. Ég veit af reynslu að það er unnið fyrir gýg að deila við þig. Hann kveikti í vindlingi og horfði á Tom gegnum reykslæðuna. — En erindið er það, að ég ætla ekki að styrkja listamanns- grillurnar í þér lengur. Ég hef gefið þér öll tækifæri til að sanna að eitthvert gagn sé í þér. Þú hefur verið að gutla við þetta í tvö ár, og sjálfur veistu undir niðri, að þú hefur ekki snefil af listgáfu. — Það er lygi, hreytti Tom út úr sér. Símon hrissti höfuðið. — Þú varst við nám í Cambridge í þrjú ár, hélt hann áfram, — og svo hættirðu við lögin, án þess ,að ljúka prófi. Ég veit hvernig hugur þinn er i minn garð, og hve mikið þér gremst að ég var skipaður meðráðsmaður þinn. — Já, til þess að þú gætir haldið íyrir mér arfinum mínum og slett í mig ölmusu við og við, hvæsti Tom. — Hvers vegna í ósköpunum leyfist mér ekki að ráða yfir peningunum mínum sjálfur? — Þú færð að gera það undir eins og þú hefur sannað að þú getir unnið fyrir þér, sagði Símon lágt. — Ég verð guðsfeginn þegar sá dagur rennur upp, því að það er ekkert gaman að bera ábyrgð á þér og framtíð þinni. Hann horfði fast á Tom. — En frá deginum í dag verður þú að vinna. Ég sting upp á að þú farir að vinna í fyrirtækinu og byrjir á lægsta þrepinu. Þér veitir áreiðanlega ekkert af því, sem þú hefur lært .... — Mér dettur það ekki hug! hrópaði Tom. Röddin var loðin af heift. — Reyndu að hindra aö ég máli ef þú þorir! — Það kemur ekki til mála að reyna það framar, sagði Simoh. .— Þú hefur haft frjálsar hendur í tvö ár — starfsfrelsi. Ég get ekki teygt mig lengra. Þú ert orðinn 25 ára og hefur aldrei nrinið þér inn grænan eyri. Ég naga mig í handarbökin fyrir að ég1 skyldi nokkurn tíma láta undan listamannsgrillunum í þér, en mér fannst að þú yrðir að fá tækifæri til að reyna. En ég hef aldrei orðið var við að þú værir þakklátur tyrir það. — Átti ég að þakka þér það? Það eru mínir eigin peningar, sem þú hefur pírt í mig, — og þú hefur verið nískur á þá. Símon virtist ekki heyra hvað hann sagði. — Þú hefur, sem sagt, eytt tveimur árum án þess að taka nokkrum framfcrum. Þú þarft ekki að minna mig á, að flestir listamenn verða að berjast hárðri baráttu til að ná árangri. Ef þú hefur hæfni og nægi- lega trúa á sjálfan þig, getur ekkert afl í heimi hindrað þig í að máia. En þetta getur ekki haldið áfram eins og það er. Hvorki ég eða þú eigum nægilega peninga til þess að lifa án þess að vinna. Auk þess hugsa ég að þú gerir ráð fyrir að giftast einhvern tíma. — Já, ég þarf að minnsta kosti ek.ki að biðja þig' um leyfi tií þess, sagði Tom storkandi. — Og ég segi þér í eitt skifti fyrir öll aö ég byrja ekki í fyrirtækinu. Fyrr skal ég svelta. — Það verður enginn hægðarleikur fyrir þig, sagði Símon stutt. — Hvað langar þig eiginlega til að gera? Þú skilur, Tom, að þetta er ekkert skemmtilegt fyrir mig lieldur. — Reyndu að telja mér trú um það! Þú hefur nautn af vald- inu, og þú hefur beitt því enn hrottalegar við mig síðan Judy kom hingað. Er það til að stækka þig í hennar augum? Ef svo er, þá verð ég að segja að þér hefur tekist slysalega. Hún þolir ekki að sjá þig, og ef þú hefur gaman af að heyra það, get ég sagt þér að hún þráir þann dag, sem hún getur komist burt héðan. Svipur Símonar harðnaði og hann varð fölur. Tom horfði á hann með sigursvip. Loks hafði hann yfirbugað bróður sinn. Var hugsanlegt að Símon væri sjálfur ástfanginn af Judy? Það gat verið skýringin á því, hve ótækur hann var orðinn. Afbrýðin getur knúið menn út í ófærur. — Við tölum ekki um Judy, sagði Símon afundinn. — Hvers vegna ekki. Hún skiftir miklu máli fyrir okkur, og ég er ekki blindur. Þessi óstöðvandi umhyggja fyrir velferð herinar blekkir mig ekki, eða dettur þér það í hug? Þú ert blátt áfram hræddur um að missa hana — til mín. Tom hló storkandi. — En hún vill ekki giftast þér, þó þú værir síðasti maðurinn á jörðinni! Símon tókst með erfiðismunum að stilla sig. — Seinast þegar við töluðum um Judy sakaðir þú mig um að ég ætlaði að krækja i fjármuni hennar .... Ég vil hvorki niður- lægja hana eða sjálfan mig með því að tala frekar um það, sem þú hefur sagt. — Það er líka hreinn óþarfi, sagði Tom. — Þú ert raunveru- lega ástfanginn af henni. Hann hló hátt. — Því miður finnst mér óvenjulega gaman að því! — Mergurinn málsins er hve mikið þú kærir þig um hana! Ef þér stendur þá ekki alveg á sama um hana! Trygglyndið ei ekki þín sterka hlið. Ég þekki þig og aðvara þig. — Þú varður að afsaka að mér finnst þú vera þreytandi, ^sagði Tom. — En nú vitum við þó hvar við stöndum. Þú rekur mig af heimilinu, rænir mig fjármunum mínum og eyðileggur framtíð mína. — Vertu ekki svona barnalegur, sagði Símon. — En þetta er mitt síðasta orð. Þessu iðjuleysi þínu verður að ljúka. Ef þú ert ekki svo greindur að skilja, að þessir úrslitakostir mínir eru þér fyrir bestu, hef ég eytt tímanum til ónýtis. — En þú ert greindur, er ekki svo? Jæja, við sjáum nú til! — Ég gef þér tveggja vikna frest til að hugsa þig um hvað þú gerir. Þú getur valið þér það starf, sem þú átt völ á. Upp frá því færðu ekki eyri meira, þá ferðu kanske að vitkast. — Það er þvert á móti ég, sem verð að reyna að láta þig vitkast, sagði Tom. — Ég er ekki jafn vopnlaus og þú heldur! Þelr voru svo háværir að það heyrðist til þeirra fram í forsalinn, og allt í einu stóð Netta í dyrunum og horfði óróleg á þá. — Hvað gengur á? spurði hún. Símon áttaði sig. — Það er ekki neitt sem þú þarft að hafa áhyggjar af, sagði hann vingjarnlega. — Því miður á ég dálítið ógert, svo að ég ætla að bjóða ykkur góða nótt .... Hann var langstígur þegar hann gekk burt. Þá gaus upp úr Tom: — Þessi viöbjóðslegi lubbi! Montinn vindbelgur! Hann dirfist að segja mér um, hvað ég eigi að gera! Hann varð að hella úr skálum reiði sinnar og fannst frænk- an sú rétta til að hlusta á það. Hann sagði henni allt, sem hafði farið á milli þeirra bræðranna og lauk rausinu þannig: — Ég mundi ekki hafa sagt neitt, ef Símon væri ærlegur, en það er hann ekki. Hann er brjálaður af afbrýði, vegna þess aö Judy tekur mig fram yfir hann. Þess vegna ætlar hann að svelta mig. En hann heldur mig bljúgari en ég er, sagði hann óður. Netta horfði á hann með skelfingu. — Veistu eiginlega hvað þú ert að segja, Tom? — Já, það veit ég mætavel. Ég ætla fyrst og fremst að kljúfa þetta peningamál til mergjar. Ég ætia að snúa mér til með- eigenda Símonar, og ef það kemur á daginn að hann hefur féflett mig, skal hann fá það borgað, að mér heilum og lifandi. Hann hefur hótað að hætta að borga mér mánaðarpeningana mína. Þetta er bein þvingun, sem hann beitir, alveg eins og ég væri fátækur ættingi og upp á miskun hans kominn.... — Ég mundi ekki fara til félaga Símonar ef ég væri í þínum sporum, sagði Netta óróleg. — Ég held tæplega að hann mundi... — Nei, hann mundi eflaust gera allt til að verja Símon, tók Tom fram í. — Ég verö að hafa önnur ráð til þess að láta sann- leik.ann koma í ljós. Ég hef alltaf grunað Símon. Þegar mamma dó hrifsaði hann allt í sínar hendur, og ég var of ungur til að geta gætt hagsmuna minna. Og svona bófi — er bróðir minn! m>mi■,issmng INNnXpAQlOA)! R. Burroughs iíWIPE PKA.WN. WITI-I A GUTTlKM. SWAEL.TAeZAW LEAFEP TOWAKt? THE AI-jiWAL. NUíAA WHEELEC7 ABOUl' IN REPIANCE 35252 Tarzan gaf frá sér hljóð sem líktist urri og með hníf- inn á lofti réðist hann gégn dýi’inu. Núma, ljónið snerist gegn þessum nýjá óvi'ni síri- um, en þungt högg af hendi rr ' .; ; 'þ.Xfi, :<L !• i*>- hins sterka manns felldi íjónið til jarðár. Setið var að drykkju á jakt Onassis og rætt um réttindi og skyldur samkvæmislífsins og einnig það ergelsi, sem af því gæti stafað. Churchill gamli var þar og lagði orð í belg: „Eg hefi nú ætíð haft ánægju af gestum,“ sagði hann. „Ann- aðhvort gleðjumst við yfir komu þeirra — eða við brott- för þeirra.“ ★ I Póststjórn Bandaríkjanna gaf nýlega út fjögra senta frímerki j með mynd Georgs Washingtons i og undirski’ift hans. En jafn- skjótt og frímerkið var komið út streymdu mótmæli til póst- stjórnarinnar að. Menn fullyrtu að skriftin væri fölsuð. Þetta varð nú póststjói’nin að kann- ast við, en sagði að rithönd hins mikla hei’shöfðingja og forseta væri svo ólæsileg, að orðið hefði að „fegra“ hana. — Ekki urðu hinir skriftlæi’ðu ánægðir með þetta. — „Georg Washington laug aldi’ei! Og að falsa undir- skrift hans! Það er smán við minningu hans. Það er hneyksli!“ En þar sem prentuð hafa ver- ið 120.000.000 frímerki, svona hérumbil, ætlar póststjórnin sér ekki að draga þau inn. ★ Afdalabóndi íiokkur hafði ekki séð bíl, en einu sinni brá hann sér til næsta bæjar, þar sem þjóðvegur lá við túnfótinn. Meðan hann stóð þarna við fór bíll um veginn, og varð bónda mjög starsýnt á hann, en þegar bifhjól fylgdi á eftir varð hann alveg setinhissa. „Hver fjárinn,“ hrópaði hann. „Hver hefði látið sér detta í hug að svona hjólameri væri með folaldi!“ ★ ^ Eldingu sló niður á þrjá menn er sátu fyi’ir utan þorpsknæp- una. Einn þeirra féll í ómegin, en hinir skræktu: „Hættu! Eg skal strax koma heim!“ ★ Hestur bóndans var svo stað- ur að hann fékkst ekki úr spor- | unum. Gafst bóndi loks upp og bað dýralækni að koma og líta , á klárinn. Læknirinn kom, leit á klárinn og gaf honum síðan inntöku úr flösku, sem hann hafði í verkfæratösku sinni. Hafði inntakan þau áhrif að klárinn prjónaði og jós, en rauk síðan á harðaspretti eitthvað út í buskann. „Hvað kostar þessi skammt- ur?“ spurði bóndi. „Fimmtán aUra,“ svaraði læknirinn. „Gefðu mér einn fyi’ir 25 aura — fljótt! Eg verð að ná í klár- inn!“ * Gamall bóndi hafði oi’ðið fyr- ir miklu tjóni af völdum flóða. „Eg frétti, að þú hefðir misst hverja rollu í flóðinu,“ sagði nágranni hans. „Þý hlýtur að hafa orðð fyrir óskaplegu tjórii.“ „Það læt eg nú vera,“ sagði ^á,; gamli. „Jón og Sigurður misstu allút „sínar skjátur líka.“

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.