Vísir - 15.06.1960, Síða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
leatrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis efiir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Miðvikudaginn 15. júní 1960
Neyðerfög sett í Katanga
í BeSgíska Kongo
- en
afðétt í pyjassaðsndi.
Hal og Haila Linker hafa
ferðabók í smíðum.
Hún kemur út í Bandarakjun-
usn að ári.
Hal og Halla Linker koma
salltaf við hér á ferðalögum sín-
um, þegar þau geta því við kom-
ið, og þau eru stödd hér nokkra
daga um þessar mundir.
Þau hafa setið um kyrrt um
skeið að undanförnu, en þegar
þeim leiðangri er lokið, sem
þau eru nú að hefja, munu þau
hafa heimsótt hvorki meira né
minna en 75 lönd. Fer ekki
milli mála, að fá hjón eru þeim
víðförlari, og sá drengur er
varla tdl, sem hefur séð fleiri
lönd en David litli sonur þeirra.
Héðan fara þau eftir helgina
til Danmerkur og þaðan til
Færeyja, en síðan suður á bóg-
inn, allt til Túnis, sem þau
hafa ekki heimsótt áður, en á
leiðinni koma þau m.a. við í
Liechtenstein, einnig í fyrsta
skipti, og þar halda þau upp á
afmælisdag Davids litla.
Annars hefur þeim borizt
tilboð um að skrifa bók um
ferðir sínar, og hefur verið
ákveðið, að hún kemur út j
í marz að ári. Nafn hennar
verður „Three Passsports to !
Adventure", en útgefandinn
er Doubleday, eitt helzta
forlag Bandaríkjanna. Upp-
lag verður 30—40,009.
í kvöld kl. 7,15 verður sýn-
ing á þrem sjónvarpsþáttum
Linkers í Gamla bíó og er einn
frá Pakistan, annar frá Belgíu,
þriðji frá ýmsum Suður-Amer-
íkulöndum og sá fjórði af hval-
veiðum hér við land.
Ferða- og fróðleiksþætt.ir
þeirra hjóna eru nú sýndir
vikulega í Bandaríkjunum, en
auk þes.s í ýmsum öðrum lönd-
um.
Landstjórinn í Njassalandi
tilkynnir, að neyðarástandi
verði aflétt á morgun.
Landstjórinn, Sir Robert
Arimtage, tók þá fram, að heim-
ildin til að banna fundi væri
ekk,i úr gildi felid, og ekki yrði
öllum sleppt úr haldi. Það væru
þó aðeins nokkrir menn, sem
hafðir yrðu í haldi enn um sinn
af öryggisástæðum. Hann kvað
neyðarástandinu aflétt í trausti
þess, að menn freistuðu ekki að
koma málum fram með því að
beita ofbeldi.
I sömu svifum að kalla og
fréttin barst urn afnám neyð-
arráðstafana í Njassalandi,
barst fregn um, að neyðarlög
hefðu verið látin koma til fram-
kvæma í Katanga Belgiska
Kongo, en þar eru aðalnámur
landsins. Margir vilja sameina
héraðið Njasalandi. Ekki virðdst
það þó vera vegna þeirra hreyf-
ingar sérstaklega, sem neyðar-
lög voru sett, heldur vegna
þess, að öryggi landsins er teflt
í hættu að áliti landsstjórans,
vegna ágreiningsins um það
hvort mynda skuli sérstjórn í
Katanga og ganga úr Belg.iska
Kongo, eða vera hluti hins
nýja sjálfstæða Belgiska Kong-
o. Stærri flokkurinn hefur
reynt að knýja fram samþykkt
þar um á héraðsþingi, en stjórn-
arandstaðan gengið af fundi í
bæði skiptin til þess að hindra
slíka samþykkt.
xi,
Lumumba reynir áfram.
í Leopoldville reynir Lum-
umba áfram að mynda sam-
bandsstjórn fyrir allt landið og
kveðst hann hafa aflað sér fylg-
is þriggja flokka og geta mynd-
að stjórn með örlitlum meiri-
hluta. Enn er það talið vafa-
samt að Lumumba geti myndað
stjórn vegna ótrausts fylgis.
Margir óttast, að stjórn við hans
forustu myndi leiða til einræð-
is, og hneigjast margir að stofn-
un sambandsríkja, sem hafi
sterka aðstöðu, en sambands-
stjórnin tiltölulega veika. Þetta
er gerlega þveröfugt við það
sem Lumumba vill. Er nú að-
eins hálfur mánuður þar til
sjálfstæðisdagurinn rennur upp
og þarf að hafa hraðan á með
stjórnarmyndun.
Flótti hvítra manná.
Lumumba kvaðst furða sig á
fjárflótta og enn frekar á flótta
hvítra kvenna með börn sín.
Ekkert væri að óttast. Hann
kvað eignir hvítra manna ekki
verða gerðar upptækar.
Bátar eru farnir að koma
j norður á Siglufjörð, en ekki
hafa þeir farið niargir út ennþá.
Síld hefur ekki fundist, svo
vitað sé, enda hefur verið bræla
á miðunum og hálfkalt. í morg-
un var þó komið blíðskapar-
veður og hlýja, og voru menn
að byrja að hugsa sér til hreyf-
ing's. Síldarleitin hefst ekki
fyrr en á morgun, en bá verður
hafizt handa af fullum krafti,
með tveim flugvélum, sem stað-
jsettar verða á Siglufii'ði og
' Raufarhöfn.
Manntjón í flóði.
11 manns drukknuðu « flóð-
um >' Hongkong fyrir skömmu,
og 11 annarra var saknað.
Þeir, sem fórust voru sex
karlmenn, tvær konur og þrjú
börn, en ókunnugt er enn um
afdrif þriggja karla, einnar
konu og sjö barna.
Ungur maður og drengur
drukkna fyrir vestan.
Brerigurinn — níu ára — var
héðan úr bænum.
Hurð skall nærri hælunt.
Ftugvél hrotnaði í lenúingu
og maður mesddist.
í gær vildi það slys til, að
kennsluflugvél frá Flugskólan-
lun Þyt, TF-KAP, af Piper Cub-
gerð, rakst á háspennustreng
við bæinn Fitjakot á Kjalarnesi,
og hrapaði þar á túnið. Tveir
menn voru í vélinni og mun,
annar þeirra, kennarinn, hafði j
meiðzt nokkuð, en þó ekki lífs-
hættulega.
Slysið mun hafa orðið með
þeim hætti, að sögn sjónar-^
votta, að vélin kom mjög lágt '■
yfir tún rétt hjá bænum, og geta ■
menn sér til, að ætlunin hafi
verið að æfa nauðlendingar.
Hins vegar mun stjórnendum
vélarinnar hafa yfirsézt há-
spennulína, er lá þvert yf.ir tún
ið. Skipti það engum togum, að
vélin flaug beint á strenginn,
og við það mun skrúfa vélar-
innar hafa kubbazt sundur, þótt
einnig mætti sjá skurð í væng
vélarinnar eft.ir vírinn.
Vélin virðist hafa haldið
beinni stefnu a. m. k. 20—30 m.
eftir ái'eksturinn, og óvíst, að
hún hefði brotnað jafnmikið og
raun bar v.itni, ef hún hefði
ekki lent í skurði, sem var í
túninu, en þar mölbrotnaði hún.
Kennarinn sat í fremra sæti og
hlaut hann meiðsli. Nemandinn
slapp hins vegar ómeiddur að
mestu.
Hlaut 12.000
d. kr. sekt.
Þegar Arnarfellið var í Kaup-
mannahöfn fyrir nokkru, fann
danskur tollþjónn 156 heil-
flöskur af víni faldar um borð.
Tonnþjónninn var að leita í
skipinu, eins og gert er ávallt,
og hafði hamar til að banka á
járnplöturnar, í lítilli skonsu
við stýrisvélina. Skyndilega fór
hamarinn í gegn, og hringlaga
málmplta datt á gólfið, og lét
eftir sig gat á plötunni. Þar
fyrir innan fann tollþjónninn
156 flöskur af pólsku vodka og
gini.
Vélstjóri skipsins var látinn
bera ábyrgð á þessu, og var
hann dæmdur til að greiða
12.000 danskar krónur í sekt
og tolla.
Nasser er kominn til Júgó-
slavíu í opinbera þeimsókn.
Honum var vel tekið í Grikk-
landi og á Korfu. Kona hans
og 4 börn eru tneð honum.
Það sviplega slys varð síð-
degis á mánudag undan bænum
Vatnsdal í Patreksfirði, að
rúmlega tvítugur maður og níu
ára drengur drukknuðu bar.
Héi var um að ræða Erlend
Guðmundsson, 22ja ára, elzta
son hjónanna i Vatnsdal, og
Hilmar Benónýsson, sem átti
heima að Heiðargerði 74 hér i
Reykjavík en var i sveit í
Vatnsdal.
Ekki er nákvæmlega vitað
um ferðir þeirra eftir hádegi í
fyrradag, en þeir munu hafa
farið út í vélbát skammt frá
landi til að ausa hann og notað
lítinn árabát til þess. Honum
hefur siðan hvolft undir þeim
á leið til lands. Vissi heima-
fólk það fyrst um slysið, að
báturinn sást á hvolfi skammt
frá landi. Nokkru síðar fannst
lík Hilmars litla, og voru björg-
unartilraunir reyndar árang-
urslaust í tvær stundir. Lik Er-
lends hefur hinsvegar ekki
fundizt, enda þótt vandlega
hafi verið leitað og slætt á
staðnum, að því er Vísi var
tjáð í morgun, er blaðið talaði
vestur.
Skæruliðar upprættir í
Kamerun í V.-Afríku.
FelSdir voru 213 og mikið herfáng tekið.
Fregnir frá París herma, að
í Kamerun í Vestur-Afríku
sem fyrir nokkru fékk sjálf-
stæði sitt, hafi öryggissveitir
gert árás á stöðvar skæruliða,
sem unnið höfðu ýms hermdar-
verk, fellt marga menn og tek-
ið fanga.
Samkvæmt fregnum sem
borist höfðu til Parísar' frá
Yaoundé felldu öryggissveitirn-
ar 213 menn, tóku 30 fanga, og
mikið herfang. Árásin var gerð
suðvestur af Mbouda, þar sem
ættflokkar lengi hafa verið í
miklum uppreistarhug' og not-
uðu sér af því, að mönnum voru
almennt gefnar upp sakir fyr-
ir þjóðaratkvæðið í apríl. Fóru
ættflokkar þessir þá að endur-
skipuleggja lið sitt og fóru brátt
á stúfana. Loks var þeim veitt-
ur frestur til 1. júní að gefast
upp og leggja niður vopn sín
ög þar sem þeir gerðu það ekki
var látið til skarar skríða gegn
þeim.
i