Vísir - 30.09.1960, Side 11

Vísir - 30.09.1960, Side 11
Föstudaginn 30. september 1960 VÍSIR 11? 4 4 V BRIDGEÞATTIR V ♦ 4 4 visis 4 Eg hitti gamlan félaga um daginn, síldarkaupmann að norðan, Þar eð hann hefur áður verið gestur þáttarins hirði ég ekki um að kynna hann frekar. Við ákváðum að fá okkur slag og fengum uppgjafalogfræðing og vin hans fyrir þriðja og fjórða mann. Við drógum okk- ur saman og ég lenti á móti lögfræðingnum. Eg gaf fyrsta spilið, sem var eftirfarandi: Vinurinn A x-x-x V A-x-x + K-x-x- 4» A-K-9-x eg logfr. A K-G-x N. A x-x-x-x-x ¥ K-D-G-x-x-x V. A. ¥ 10-x + ekkert S. ^ x-x-x A D-G-10-x A x-x-x kaupmaðurinn A A-D V 9-x + A-D-G-x-x-x-x A x-x Þar eð þetta voru beztu spil, sem ég hafði séð í mánuð, varð ég yfir mig hrifinn og opnaði á einu hjarta. Vinurinn sagði tvö lauf og sildarkaupmaðurinn stökk beint i sjö grönd. Lög- fræðingurinn gerði strax at- hugasemd þar eð hann hafði ekki fengið að segja i milli og var það fljótlega leitt í ljós að viðurlög voru þau að norður mætti ekki segja aftur. Aðeins það, að ég var búinn að vera í mánaðaróstuði aftraði mér frá því að dobla en ég spilaði út hjartakóng og var vongóður um að setja spilið niður. Síld- arkaupm. beið ekki eftir að blindur hefði lagt öll sín spil upp áður en hann fór að skammast. „Þessar blöffsagnir hefur einhver sérfræðingur kennt þér,“ sagði hann. „Veiztu það ekki, að þegar maður opn- ar á tveimur laufum á maður að hafa úttekt á einni hendá.“ Ha? Hvað segirðu? Opnaði vest ur. Ertu viss? Eg heyrði það ekki, en það er alveg sama. Þú hefur ekki leyfi til að ströggla á tveimur á fjórlit og .... Án þess að hætta nöldrinu drap hann á hjartaás. Austur hugs- aði sig vel um og lét tíuna. Eft- ir að hafa spilað tígli fjórum sinnum kom lítill spaði úr blindum og ég tók kónginn til. „Þú áttir sjálfur út“, sagði lög- fræðingurinn. S. hætti við spaðann og var kominn með tígul fram á borðið, þegar aust- ur kom með aðra lögfræðilega athugasemd: „Gerðu svo vel að spila spaða að heiman." S. fleygði spaðaásnum á borðið og skammaði blindan fyrir að hafa ekki minnt sig á hvoru megin hann átti að spila út. Þegar hér var komið voru ör- lög mín ráðin. Með samantvinn uðum ráðagerðum hafði s-a tek izt að setja á mig „áframhald- andi kastþröng“, sem engin leið var að forðast. Þettá var staðan með fimm spil á hendi: A ekkert ¥ x ^ ekkert A A-K-9-x A K ¥ D + ekkert A D-G-10 A D ¥ 9 ♦ x A x-x í síðasta tígulinn lét ég' hjartadrottninguna. Þá kom hjartanían og ég prófaði að láta spaðakóng. Og þá kom spaði og ég varð að gefast upp. „Þú áttir ekki að kasta hjarta“, sagði lögfræðingurinn, ég sýndi þér tvispil í hjarta. „Það var A x ¥ x ^ ekkert A x-x-x ekki það sem gaf mér spilið, sagði nú síldarkaupm., heldur þegar hann kastaði spaðakóngn um. Það var ekki von að þú þyrðir að dobla, þegar þú viss- ir að ég átti að spila sp.ilið, sagði hann að lokum og brosti drýgindalega. Vélstjóri (meiraprófs) óskast nú þegar. Landhelgisgæzlav MjóHairbúið — Framh. af 4. síðu. úr ryðfríu stáli, tvöfaldir, en traf á milli til einangrunar. Sprenging í mjólkur- geymi. Svo var það einn sólfagran' dag í sumar, að starfsmenn1 heyrðu sprengingu mikla og drunur í einum tankinum. Varð j þá uppi fótur og fit um gjör-' valt búið. Ekkert varð séð á tankinum að utan en við athug- un kom í ljós að einangrunar- flötur hafði brostið. Og var nú tankurinn tæmdur. Og nokkru síðar fóru tveir hinna risavöxnu mjólkurtanka sömu leiðina. j Var nú ekki beðið boðanna, en hringt til Kolding og þaðan kom tæknimenntaður maður. Tók hann nú vélaverkstæði Kaupfélags Árnesinga í þjón- ustu sína, skar þessar tröll- aukna mjólkurkyrnur í tvennt og gaf þá að líta ófagra sjón. Stálplötui'nar, sem áttu að vera sem spegilfægðar voru nú rifn- ar hér og þar og sums staðar sem bárujárnslagaðar, en tróðið stóð út, í hæsta máta ólystauk- andi mjólkurgeymsla. (Það er sjáifsagt til of mikils mælst, að svokallað mjólkureftirlit rík- isins hafi orðið vart við þessa „pasteuriséringu“ á neyslu- mjólk Reýkvíkinga). í nafni bænda? Öll logsuðu- og rafsuðutæki Kaupfélagsins voru nú í gangi dag og nótt í nokkurn tima. Að því búnu stóðu þremenningarn- ir á sínum stað, en ljótur saum- ur á stálfeldi. — Enginn maður mun hafa flýtt sér eins mikið úr landi voru og logsuðumeist- arinn frá Kolding. Margt er spjallað hér austan- fjalls um þessar mundir um þessi mál, en hér verður staðar numið að sinni. Fiskisagan flýgur segja menn, og mætti kannske heimfæra það upp á þá sem vilja breiða út ó- hróður um náungann, en sjald- an lýgur almennarómur, stend- ur líka einhvers staðar. Hvað um það, þá verður að taka þetta allt saman til rækilegrar athug- unar. Er hér verið að fremja ó- hæfuverk í nafni íslenzkrar bændastéttar? Stefán Þorsteinsson. Ökumennirnir. - Framhald af 6. siðu. hægt að koma ökumönnum þess um til betri skilnings á réttri notkun stefnuljósa, held ég, að lítinn mun gerði þótt þessi merku og annars bráðnauðsyn- legu öryggistæki væru lögð niður. Er raunar ástæða til að undr- ast hin miklu umferðartjón hér eins og nú standa sakir? Að lokum langar mig þó til að geta þess, að ég þykist hafa tekið eftir því, að einn hópur, eða stétt ökumanna í höfuð- staðnum, á hér ekki óskipt mál með áðurnefndum ökumönnum, en það eru bílstjórar Strætis- vagna Reykjavíkur. Hvað sem segja má um akstur þeirra að öðru leýti, sem Hður máske fýr- ir það, hve skorðaðir þeir eru um tíma, hygg ég, að þeir yfir- leitt beiti stefnuljósum á þann hátt, að tilganginum með þeim sé náð. Ýmsar þingsál. á nýafstöðnu 8. þingi framhaidsskóiakennara. Landssamband framhalds- skólakennara hélt 8. fulltrúa- þing sitt 16.—18. september og gerði ályktanir um launakjör, námsstjórn og tilhögun gagn- fræðanáms og um starfsfræðslu í skólum, o. fl. Þingið taldi það ekki þola lengur bið að endurskoða launakjörin, þar eð kennarar telji starf sitt vanmetið og kaupmáttur launa hefði stór- minnkað. Byrjunarlaun gagn- fræðaskólakennara væru nú 4187 krónur á mánuði, álíka og laun ófaglærðra verkamanna. Annars staðar á Norðurlöndum hefðu slíkir kennarar frá 40— 178% hærri byrjunarlaun og 73—222% hærri hámarkslaun en hér tíðkaðist. Af þessum á- stæðum leituðu háskólamennt- aðir kennarar betur launaðra starfa á frjálsum vinnumark- aði. Nú væri svo komið, að nær engir þeirra, sem nú væru sett- ir í nýjar kennarastöður, hefðu lokið tilskilinni menntun. Þing- ið skoraði á ríkisstjórnina að hraða nýrri löggjöf um launa- kjör og að opinberir starfsmenn fái samningsrétt sem aðrar stétt ir. Einnig að húsmæðrakennar- ar fái sömu launakjör og gagn- fræðaskólakennarar. Þingið styður tillögur Skóla- máianefndarinnar 1958 um námsst(jórn og gagnfræðanám og skorar á menntamálaráð- herra að láta hefja þegar kynn- ingu á þeim meðal skólamanna og kenna framkvæmdamögu- leika á hvei’jum stað. Vegna knýjandi þarfa á aukinni verk- menningu bæri brýna nauðsyn til að auka starfsfræðslu í skól- um og taldi sjálfsagt að höfð yrðu samráð við samtök at- vinnuveganna og aðra, sem stuðla vildu að þessu. Skyldi máli þessu fylgt eftir við fræðslumálastjórnina. Þá telur þingið óhjákvæmi- legt, að settar verði reglur um veitingu skólastjóra- og kenn- araembætta, þar eð stjórn- málahagsmunir og kunnings- skapur virðist ráða slíkum veit- ingum úr hófi fram, sanni það mörg dæmi, en skemmst sé að minnast ráðstöfun skólastjóra- stöðunnar við Gagnfræðaskóla Kópavogs fyrir nokkrum dög- um. Samþykkir þingið að kjósa 3ja manna nefnd til að gera til- lögur í þessu efni, svo að ung- um og efnilegum kennurum verði hvatning til að leggja sig fram í að afla sér menntunar og í starfi. Svo er kveðið á i lögum, að heimilt sé að veita starfandi kennurum eftir 10 ára starf eins árs orlof á fullum launum til að stunda nám og kynnast nýjungum í kennslumálum ér- lendis, 10 á landinu hverju sinni. Þingið telur, að hækka beri þá tölu, þar eð mjög hafi fjölgað í séttinni síðan ákvæð- ið var sett á, einnig að sett sé reglugerð um orlofsveitingu, og að kennurum sé tilkynnt með hálfs árs fyrirvara, hvort þeir fái orlof, svo að þéífc geti 'und- irbúið sig, sem bezt. • Þingið télur náuðsyn. á, að handavinnukennarar hafi á- vallt. aðgang að nægu handg- vinnuefni eða fé , til kaupa , á, þvi, svo að nægar birgðir séu til?i þegar kennsla hefst, en á þessu hafi verið misbrestur, og kenn- arar sjálfir orðið að ganga í á- byrgð á efniskaupum svo að kennsla hæfist á tilskyldum tíma, en slíkt sé þeim mjög oft ókleift. Þingið mótmælir erlendum herstöðvum á íslandi og varar, einkum við óheillavænlegum áhrifum, sem dvöl erlends her- liðs í landinu hafi á æskuna. Þingið heitir stjórnarvöldum stuðningi í baráttunni fýrir endurheimt handrita úr er- lendum söfnum. Þingið beinir þeim tilmælum til heimilanna, að þau sjái ung- lingunum fyrir góðum morg- unverði og nesti í skólann, sem hljóti að bæta námsárangur og heilbrigði. Til skólastjóranna beinir þingið þeim tilmælum, að þeir reyni að koma því sem fyrst á að mjólk sé til sölu í skólunum. Þingið lítur alvar- legum augum á áfengisnautn og lausung, sem grefur um sig í þjóðfélaginu og hvetur for- eldra og alla fullorðna að vera æskunni til fyrirmyndar í reglusemi. Loks fagnar þingið endur- byggingu Kennaraskóla íslanda og væntir þess, að skólinn taki þar til starfa að hausti. Rjúpan. - Framh. af 1. síðu: — Það hefur engin skýring fundizt ennþá á þessu fyriiV:' brigði . ... ? „Engin, sem fær staðiz't. Skýringarnar eru að vísu 4Ö talsins, en engin þeirra næéi* lega sennileg eða sambærilég við staðreyndir.“ ■ . / ‘á j — Svo að það veit engipn hvort hér er um farsóttir að ræða, eða einhver önnur nátt- úrufyrirbrigði, sem valda þess- um sveiflum í stofninum?“ „Nei, það veit enginn með-; vissu. Þetta er jú náttúrufyrír- brigði, og „til þess gert“ að halda stofninum í skefjum. Þa5 er svo með allar tegundir viltra dýra, að náttúran tekur í taum- ana, svo að offjölgun eigi sér ' ekki stað. Ef að svo væri ekki, j f myndi jörðin fyllast a svip» stundu af viðkomumestu dýrun- i um og allt jafnvægi raskast með ófyrirsjáanlegum afleið- ingum. Venjulega heldur nátt- úran þannig i taumana, að menn verða ekki varir við þetta, og helzt þá svipað jafnvægí í viðkomandi dýrastofni að stað- aldri. Hvað rjúpunni viðkefn- ur, — og reyndar fleiri tegund- um af hænsfuglum og nag- ' dýrum, — þá gengur þetta ‘ svona upp og niður, að stofn- inn nær sínu hámarki með vissu milibili, en fækkar sýo aftýr.“ ' J — Það má þannig búast vjð töluverðri fjölgun á næstu á!r- um? ! „Já. Líklega fer að.eins|'áð ' vdtta fýrij: ’þýí í haustj en;íá | naesta -ári verður það tölúvéirt meira, og gepgur fjölgunin riijög hrátt úr'þvl, þar til hámarki er náð á árunum ’63— Það er sérii sagt ekki mikil veí®%n 1 •)-. (i:. rui>'

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.