Vísir - 08.12.1960, Blaðsíða 8

Vísir - 08.12.1960, Blaðsíða 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréftir og annað lestrarefni licim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Fimmtudaginn 8. desember 1960 Með töku le^nivm§ala dregnr úr nætnrsvalli. Nýr vi&skiptasanningur ísiands og Tékkósióvakíu. Um síðuslu heEgi voru þrír Eeynivínsalar teknir. Tveir hfii'iiu ttiinr yerzt brotloyir. Ðregið hefur til muna úr næt- tirsvalli í Reykjavík eftir að lögreglan hóf róttækar aðgerðir gegn leynivínsölum og kærði tim 40 leigubifreiðarstjóra hér íbænum. Virðist það vera furðanlega stór hópur I jafn fámennri stétt óg ( leigubílstjórar eru, sem titunda leynivínsölu, eins og sáést á því að á tiltölulega stutt- um' tíma hafa 40 þeirra verið staðnir að ólöglegri áfengissölu og tólf þessara manna verið teknir tvívegis. Þess eru jafn- vel dæmi að einn og sami bíl- stjóri hafi verið staðinn að leynivínsölu tvívegis í sömu vikunni. Um síðustu helgi tók lögregl- 3n þfjá leigubílstjóra, sem gerzt höfðu sekir um áfengis- áölu. ■ Tveir þessara bílstjóra voru nú teknir í annað skiptið. Mál flestra þeirra leigubíl- stjóra, sem teknir hafa verið fyrir óleyfilega áfengissölu í fyrsta sinn, hafa verið afgreidd með dómssætt og hafa bílstjór- arnir greitt misjafnlega háar fjársektir eftir gerð brota þeirra. Við hina, sem brotið hafa af sér oftar en einu sinni, er ekki heimilt að sættast og koma mál þeirra til dóms. Sam- kvæmt lagaákvæði munu þeir verða sviptir ökuréttindum lengur eða skemur, auk sekta sem þeim verður gert að greiða. Götulögreglan í Reykjavíkj telur það skipta verulegu málij að hafa hendur í hári leynivín-] salanna, ekki aðeins vegna þess að þeir séu að fremja lög-| brot sem beri að hegna fyrir og uppræta eftir beztu getuj heldur líka vegna hins að um Dæmdur fyrir nauðgunartilraun við fimmtán ára gamla stúlku. Kveðinn hefur verið upp Hæstaréttardómur í nauðgun- árrnáli og hinn seki dæmdur í 2ja og hálfs árs fangelsi fyr- ir nauðgunartilraun við 15 ára gamla stúlku. Tildrög málsins voru þau, að stúlkan var gestkomandi í húsi, þar sem og var staddur Guð- jón Atli Ái'nason, 33 ára. Stúlk an hélt heim til sín siðla kvölds en þá var Guðjón Afli farinn áðuf, og sat hann fyrir henni, Bræla hindrar síldveiii. Bræla var í nótt og fáir eða engir hátar úti. Sjómenn segja, að mikil síld sé nú á miðunum og verður hennar vart í þykk- um torfum á stórum svæðum sem sjást á dýptarmælum. Reknetabátar eru hættir vegna aflatregðu, en margir þeirra verða útbúnir með hring nætur, því reynslan hefur sýnt sig að bátar alt niður í 40 estir geta haft þær um borð. er leið hennar lá gegnum Kringlumýrarhverfi,’ gerði árás á hana hjá jarðhúsi einu, felldi hana, gfeip yfir kverkar henni og reif af henni föt. Ekki tókst honum að koma fram vilja sín- um, þrátt fyrir ítrekaða tilraun. Loks sleppti hann stúlkunni gegn loforði um að hún léti síð- ar að vilja hans og þegði yfir athæfinu. Stórsá á stúlkunni eftir verknaðinn. Ekki bar þeim saman um öll atriði, og Guðjón Atli neitaði sí- fellt að hafa gert nauðgunartil- raun, en hann hefur oft áður gerzt brotlegur Við geðrann- sókn reyndist hann vera and- lega heilbrigður. I Hæstarétti var dómur und- irréttar þyngdur um hálft ár og hinum seka ’gert að greiða stúlkunni 12 þús. króna skaða- bætur. Einnig var hann sviptur kosningarétti og kjörkengi. TTt 191C-14.des.-1960." GcH sítdveiði á Akureyrarpolli. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. í gœr fékkst ágœt síldveiði í Akureyrarpolli. Einn bátur, Hannes Hafstein, fékk 450 mál í einu kasti, rétt framan við Torfunefsbryggj- una. Og yfirleitt öll skip, sem komin voru á veiðar fyrir há-J degi í gær, fengu einhverja veiði. í fyrradag var líka allgóð veiði hjá nokkrum bátum. leið og leynivínsalarnir hverfa, dregur mjög úr nætursvallinu í bænum. Það er þýðingarmesta atriðið og þess vegna verður lögreglan að ganga ötullega fram í því að uppræta þennan ósóma eftir beztu getu. Stjórn Guineu í Afríku er að athuga tilboð um vopna- kaup í Kína. Flokkur blökkumanna í S.- Rodesiu hefur lagt til, að landið verði skýrtt „Zimba- bwe“, en svo hét ríki Bantú- svertingja á þessum slóðum á Miðöldum. Hinn 16. nóvember s.l. var undirritaður í Prag nýr við- skiptasamningur milli íslands og Tékkóslóvakíu og gildir hann í þrjú ár, til 31. ágúst 1963, en vörulistar, sem jafn- framt var samið um gilda í eitt ár, 1. sept. 1960 — 31. ág. 1961. í samningnum er gert ráð fyrir sölu til Tékkóslóvakíu á frystum fiskflökum, frystri og saltaðri síld, fisimjöli, lýsi, nið- ursoðnum fiskafurðum og ýms- um öðrum afurðum svo sem húðum, görnum, osti, kjöti og Fádæma aflatregða hjá togurunum nyrðra. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Aflatregða hjá Akureyrartog urum hefur verið mikil í allt haust en aldrei meiri en nú, að því er útgerðarstjórinn tjáði fréttaritara Vísis í morgun. I morgun komu tveir togar- ar af veiðum til Akureyrar, þeir Harðbakur — eftir 15 daga útivist — og Kaldbakur — eftir 17 daga útivist — hvor um sig með 60—70 lestir fisk. Sagði útgerðarstjórinn að í aflanum væru flestar hugsanlegar fiski- tegundir sem í sjó fyndust. Afli tveggja togaranna fer að mestu til vinnslu í hraðfrystihúsinu. Einn Akureyrartogari, Slétt- bakur seldi afla sinn í Cuxhav- en í .Þýzkalandj í gær, 80 lestir fyrir 58652 mörk Norðlending ur selur í Bremerhaven í dag 90 lestir. Nýr gervi- hnöttur á lofti. Nýr gervihnöttur er á lofti og fer kringum jörðu á spor- braul um norður- og suður- heimsskaut. Honum var skot- ið í loft frá Vandenberg- flugstöðinni í Kaliforniu. Gervihnöttur þessi nefnist Könnuður 18 og eru í honum margskonar mælingatæki. Thor-eldflaug flutti Könnuð á braut kringum jörðu. Reynt verður að' ná hylkinu með rannsóknartækjunum, er það svífur til jarðar „næstu 1—2 sólarhringa“, eins og komist var að orði í gær- kvöldi. Könnuður þessi er 94 mín- útur að fara kringum jörðu. Hann vegur 945 kg., en rann- sóknastöðin 130. Svalbakur er einn Akureyr- artogaranna á veiðum. í gær hafði hann verið 8 daga á veið- um og ekki aflað 35 lestir. Síðasti togari sem landað hef ur á Akureyri þar til í dag var Norðlendingur (Hrimbakur), sem kom þann 16. nóv. s.l. Þetta mun vera ein mesta aflatregða hjá togaraflotanum, sem átt hefur sér stað frá því er togveiðar hófust hér við land. ull. Á móti er gert ráð fyrir kaupum frá Tékkóslóvakíu, á vefnaðarvörum, skófatnaði, gleri og glervörum, ýmiskonar áhöldum, vélum, bílum, járn- og stálvörum, sykri o. fl. vörum. Jafnframt var undirritaður nýr greiðslusamningur milli landanna, sem gildir til 31. ág- úst 1961 en framlengist eftir það sjálfkrafa um eitt ár í senn, ef honum er ekki sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara. Af íslands hálfu önnuðust samningagerðina þeir dr. Odd- ur Guðjónsson, Pétur Pétursson, forstjóri, Björn Tryggvason, skrifstofustjóri og Árni Finn- björnsson, framkvæmdastjóri. 4 slösuðust af völd- um hálku í gær. Eins og Vísir skýrði frá í gœr, var komið með sjö manns í ffyrradag í slysavarðstofuna, sem beinbrotnað höfðu við að detta á hálku. í gær var einnig um nokkurn slysafaraldur að ræða af völd- um hálkunnar. Þá fluttu sjúkra- bifreiðir þrjá slasaða, tvær kon- ur og einn karlmann, sem meiðzt höfðu við að detta á hálku.. A.m.k. í einu tilfellanna, var um fótbrot að ræða. Kasper, Jesper og Jónatan N- Hinir frægu ræningjar úr Kardemommubænum, þeir Kasper, Jesper og Jónatan, eru nú komnir á jólakort. Teikning- ar eru gerðar af Halldóri Pét- urssyni og eru þrjár gerðir af kortunum í fögrum litum. Ekki er að efa að börn muni hafa mikla ánægju af að,fá kort á jólum með þessurn ágætu vin- um sínum. Ákveðið er að hefja sýningar aftur á Kardemommubænum upp úr áramótum. Þetta er eins og kunnugt er vinsælasta barna leikrit, sem hefur verið sýnt hér á landi. Leikurinn var sýndur 45 sinnum á s.l. vetri og var uppselt á allar sýningar. Oft voru langar biðraðir þegar sala á aðgöngumiðum hófst. Hér að ofan er mynd af einu jólakort- inu, sem nú fást í flestum bóka- búðum. Kasper, Jesper og Jón- atan eru leiknir af Ævari Kvar- an, Baldvin Halldórssyni og Bessa E|jarnasyni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.