Vísir - 03.05.1961, Blaðsíða 7
' Miðvikudaginn 3. maí 1961
VÍSI*
?
Ilami | ii^j’
ið fólk í einelti.
V iðial vlð Maltdór Méturs*
san listtnúlara-
Mcnn með allra heiðarlegustu
andlit geta reynzt hinir verstu
óþokkar inni við beinið, ef þeir
cru krufnir f.l merjar.
Einn hinn sakleysislegasti
maður útlits er Halldór Péturs-
I
son listmálari og engum dytti í
hug að óreyndu að ætla honurn
neitt illt. En þear blaða-
maður Vísis stóð hann að því að
leggja heiðarlega borgara í ein-
elti á aðalgötu bæjarins gat
blaðamaðurinn ekki orða bund-
izt, heldur stöðvaði Halldór og
spurði hvort hann væri orðinn
leynilögreglumaður.
■ — Leynilögreglumaður! hváði
Halldór. — Hví þá það?
— Af hverju ertu að elta
þenna mann? Hefur hann stol-
ið frá þér?
— Stolið! spurði Halldór og
kom af fjöllum ofan. Af hverju
heldurðu það?
— Eitthvað hlýtur maðurinn
að hafa gert af sér úr því að
þú leggur hann í einelti.
— Ja, nú fer eg að skilja Nei,
eg á ekkert sökótt við hann,
síður en svo.
• — En af hverju-------
• — Af hverju! greip Halldór
frammí, — skilurðu það ekki.
Eg er á eftir skrýtnu fólki_
Hann elfr alla
skrýtna inenn.
Nú var það blaðamaðurinn
sem kom af fjöllum ofan.
— Skrýtnu fólki! Hvað áttu
við? Þú hlýtur sjálfur að vera
eitthvað skrýtinn!
— Eg skal trúa þér fyrir
leyndirmáli. Leyndarmáii, sem
Jná aldrei segja. Það er nú einu
sinni þannig að þegar eg sé
skrýtna manneskju úti á götu
verð eg alveg friðlaus. Eg ræð
blátt áfram ekkert við mig. Eg
elti manneskjuna þangað til eg
'er búinn að festa hana i huga
mínum.
— Hvað svo?
| — Svo fer eg heim, tek fram
^blað og blýant og innan stundar
er manneskjan — þessi skrýtna
þarna á götunni — orðin eilíf.
| — Það var nú eitthvað sem
hægt var að búast við án þín
— Já, ef þú trúir á annað líf,
verður húnmð sjálfsögðu eilíf
þarna hinu megin, en þar með
er ekki sagt að hún verði það
hérna megin.
viðtal
dagsins
Það er á valdi
Halldórs.
I — Viltu halda því fram að
það sé á þínu valdi hvort fólk
jVerður eilíft þessa heims eða
ekki?
— Komdu heim og þá skaltu
sjá. Svo fór eg heim með Hall-
dóri og þegar eg var búinn að
skoða nokkur hundruð myndir
af ,,skrýtnu“ fólki í teiknisyrpu
Halldórs varð ekki lengur efast
um, að hann hafði það á
sínu valdi hverjir urðu sígildir
og eilífir og hverjir ekki.
— Hvað ætlarðu að gera við
þetta merkilega safn þitt af
merkilegu fólki?
— Ekki nokkurn skapaðan
I hlut. Það blífur í mínu safni
og þetta eru myndir sem aldrei
verða sýndar og enginn má sjá.
(Það er ástríða hjá mér þegar
eg er úti á götu og sé annar-
lega, undarlega, skrýtna eða
merkilega persónu, hvort sem
það er karl eða kona, unglingur
éða roskin manneskja, að eg er
ekki í rónni fyrr en eg er bú-
inn að móta hana svo fast í
huga mínum að eg get teiknað
hana og sérkenni hennar þegar
eg kem heim. Stundum verð eg
að elta fórnarlamb mitt lengi,
götu úr götu, stundum geng eg
á hlið við hana á gangstéttinni
á móti og gef henni hornauga.
En allt tekur þetta enda, eg
sný við og held heim á leið. Og
nú á eg safn með nokkuð hundr-
uð myndum.
Ilalldór Pétursson listmálari.
Og svo líka
gömul hús.
— Þú málar fleira en skrýtið
fólk?
— Já, hús.
— Hús?
— Já, gömul hús. Það er
önnur ástríða hjá mér. En hús
hafa líka sitt svipmót, sín sér-
kenni, sínar myndir og kosti,
persónuleika og undarlegheit.
En það eru eingöngu gömul
hús sem búa yfir þessum
sjarma, bárujárnshús, tugthús,
stjórnarráðshús, dómkirkjur og
þessháttar. Nv hús eru ómerki-
leg hús. Eg læt þau afskipta-
laus.
— Hvað gerir þú við myndir
af gömlum húsum?
— Gömul hús eru ckki eins
viðkvæm og skrýtið fólk. Þess
vegna ei’u myndirnr af gömlu
húsunum ekkert leyndarmál og
þær eru flestar seldar. Það
bregzt enginn illa við því þó
þær gangi kaupum og sölum.
— Fleira sem þú fæst við?
— Það er fæst, sem eg fæst
ekki við.
Stafir í koddaver
fjölsnyldunnar.
— Hvað helzt?
— Svo eg nefni dæmi: Eg er
, látinn teikna stafi í koddaver.
En það geri eg bara fyrir fjöl-
skylduna og það er tilgangs-
laust fyrir þig og þína líka að
biðja um slíkt. Svo mála eg
andlit — aðallega eftir pöntun
— og það- er bisness hjá mér.
Loks eru það héstamyndir. Þær
eru jafnvel meiri ástriða hjá,
mér en nokkru sinni skfýtna
fólkið, enda ennþá elskulegri
skepnum. Eg fæ mig aldrei sadd
an á hestum.
— Þú gerir mikið að því að
myndskreyta bækur.
— Eg geri ráð fyrir aÖ síðustu
15—16 árin hafi eg m^md-
skreytt um það bil 5 bækur á
ári til jafnaðar. Jafnvel fleiri.
Eg hef aldrei talið þessar bæk-
ur saman og ennþá síður mynd*
irnar. Gæti trúað að þær væru
unl eða ýfir 1000 talsins.
— ,Þú teiknar líka myndir í!
Spegilinn.
— Þar hef eg teiknað eitt-
hvað á 2. hundrað myndir á
ári á annan áratug. En nú er
Speggillinn sennilega dauður.
Hann hefur ekki komið út frá
því um síðustu áramót. Eg er
feginn. Það er svo gott að vera
óháður og frjáls, og mega gera
hlutina eftir eigin höfði en ekki
annarra.
Dean Rusk komintt tll Ankara.
Segii* (’ENTO helgatl veriielim
írclsis aðildari'íkga otí laeims-
friðarius.
Níundi ráðherrafundur CEN
TO kom saman í fyrri viku og
sat hann mcðal annarra ráð-
herra, Dean Rusk, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna.
Við komuna kvaðst hann
fagna því fyrsta tækifæri, sem
sér hér gæfist til.heimsóknar í
Tyrklandi, landi traustrar
bandalagsþjóðar, og til við-
ræðna við leiðtoga þar. Hann
kvað örlög beggja þjóðanna,
Tyrkja og Bandaríkjamanna,
hafa samtvinnast nánari í sam-
starfi undangenginna ára, virð-
ing Bandaríkjamanna fyrir
nánara, ekki aðeins varðandi
landvarnir, heldur og á efna-
hagssviðinu og öðrum sviðum.
Spáði það góðu um framtíðina.
Hann minnti á, að Cento væi’i
hreint varnarbandala«. he'eað
verndun frelsis aðildarríkjanna
og heimsfriðarins.
tyrknesku þjóðinni hefði auk-
ist og áhugi hennar fyrir fram-
tíð hennar og velferð.
CENTC-fundurinn var hinn
fyrsti slíkur á 12 mánuðum,
Kvað Rusk Bandaríkjastjórn
það gleðiefni hve samstarf
CENTO-þjóðanna hefði orðið
s Alþýðusamband íslands skil-
aði í gær fyrir Félagsdómi
greinargerð sinni í máli því,
sem Landssamband ísl. verzl-
únarmanna höfðaði vegna kröf-
unnar um inngöngu í A.S I.
! Alþýðusambandið krest þess,
að málinu verði vísað frá eða
það verði algerlega sýknað.
| Málið verður tekið fyrir fé-
lagsdóm að nýju 16. maí nk.
Utboð
Tilboð óskast í að byggja prestseturshús að Borg á
Mýrum. Uppdrátta og útboðslýsinga má vitja í skrifstofu
húsameistara ríkisins að Borgartúni 7 gegn 200 króna skila-
tryggingu.
Húsameistari ríkisins.
lienntasíofnrrs Bandarikjanna
arglýslr ferðasftyrki
Menntastofnun Bandaríkjanna á íslandi auglýsir hér
með eftir umsóknum um takmarkaðan fjölda ferða-
/
styrkja, sem veittir verða íslenzkum námsmönnum,
er hyggja á nám við bandaríska háskóla eða aðrar
viðurkenndar menntastofnanir vestan hafs á skóla-
árinu 1961—‘62. Þessir ferðastyrkir munu nægja
til greiðslu á fargjaldi fyrir viðkomandi styrkþega
írá dvalarstað hans hér á landi og til .þess staðár í
Bandaríkjunum, þar sem. hann hyggst stunda nám
sitt, og til baka aftur.
Skilyrði til þess að geta hlotið ferðastyrk eru sem
hér segir: 1) umsækjandi verður að vera íslenzkur
borgari. 2) að hann standist sérstakt próf í enskri
tungu, sem hann gengur undir hjá Menntastofnun-
inni; 3) umsækjandi þarf að geta sýnt bréflega
sönnun þess að hann hafi fengið inngöngu í há-
skóla eða aðra viðurkennda æðri menntastofnun I
•Bandaríkjunum; og 4) sönnur á því að hann geti
staðið straum af kostnaði við nám sitt og dvöl meðam
hann er í Bandaríkjunum. Þeir, sem lokið hafa há-
skólaprófi, verða að öðru jöfnu látnir sitja fyrir um
veitingu ferðastyrks.
Umsóknareyðublöð fyrir styrki þessa er hægt að fá
á skrifstofu Menntastofnunar Bandaríkjanna, Lauga-
vegi 13, 2. hæð, og hjá Upplýsingaþjónustu Banda-
rikjanna, Laugavegi 13, 5. hæð. Umsóknir um styrk-
ina skulu hafá borizt stofnuninni fj'rir 1. júní n.k.