Vísir - 12.05.1961, Side 7

Vísir - 12.05.1961, Side 7
Fösiúd££inn 12. maí 1961 ...... - ■ ■■ ----------- V í SIR ! I snensi a Lcufs lo£x mun hafa fuSit iímbofc De Gauiies, en melal Serkja koma allmargir til greina. Það þykir góðs viti', að bæði Bourguiba Tunisforseti og Abbas, forsætisráðherra serknesku iitlagastjórnarinn- ar, hafa nú látið í það skína, að samkomulagsunileitanir um fi. ð í Alsír geti liafist fljótlega. Er það ætlan margra, að kyrrð sé nú kom- in á aftur eftir morðið á borgarstjóranum í Evian og yfirlýsingu Alsírmálaráð- herrans varðandi viðræður við MNA-samtökin, svo að skilyrS’. séu til þess að hefj- ast handa. Louis Joxe Alsírmálaráð- herra verður án efa sá, sem talar fyrir munn De Gaulle forseta á friðarfundinum, er þar að kemur, með „fullu umboði“, eins og það er orð- unni. — — Frakkar Hktu lengi vel samtökum Abbasar við hauslaust skrimsli — en þeir gera það ekki lengur — nú-hafa þeir sannfærst um, að þetta var aðeins ósk- hyggja. Finun í útlegð. Þegar Frakkar nevddu marokkóanska flugÆl til að nauðlenda í bktóber 1956 á leið frá Rabat til Tunis, og handtóku fimm ieiðtoga upp- reistarmanna, gerðu þeir sér vonir um, að nú væri fyrir það girt, að uppreistarmenn hefðu nokkurn hæfan leið- toga til að halda áfrarn bar- áttunni. Mohammed Ben Bella var aðalmaður þeifra fimm, sem handteknir voru, Ferhat Abbas. að í Parísarfréttum. Hann verður aðalmaður sendi- nefndar Frakklands á ráð- stefnunni, en hver verður að- almaður Serkja? — Ferhat Abbas er án vafa ekki aðeins höfuðleiðtogi byltingar- manna, heldur og sá leiðtoci Serkja, sem nú á almennust- um vinsældum að fagna meðal Serkja, og hefur svo verið frá í desember s.l., er sérkneskir þjóðernissinnar frömdu spellvirki með nafn hans á vörunum. En árum saman var það svo, að Serkir voru sundraðir, klofnir í margar fylkingar. Og Abbas hefur aldrei notið eins al- menns fylgis og þeir nutu, Bourguiba forseti Tunis og Mohammed V. konungur í Marokko, en það var hið al- menna fylgi sem þeir nutu, sem varð þeim styrkust stoð til að sigra í sjálfstæðisbarátt Mohammed Ben Bella. en allir voru þeir úr níu manna stjórninni, sem hratt af stað uppreistinni 1. nóvem- ber 1954. Þeir eru enn í frönskum fangelsum, og af serkneskum sjálfstæðismönn- um er áfram litið á þá sem ráðherra. Uppreistarrnenn stofnuðu Alsírska lýðveldið (GPRA) með breyttu fyrirkomu'Iagi í september 1958 og Abbas, sem er 61 árs, varð forsætis- ráðherra. Hann er lyfsali og kvæntur franskri konu, og betur að sér í frakknesku en arabisku. Frakkar litu á hann lengi vel sem hægfara þjóð- ernissinna og eitt sinn virt- ist hann geta átt samleið með frönskum landnemum, en hann hefur sýnt síðar, að hann getur verið alveg eins harðup gegn Frökkum og vestrænum þjóðum. yfirleitt og nokkur hinna i stjórn GPRA. Hann hefur átt sæti i fulltrúadeild franska þings- ins og hefur mikla stjórn- málalega reynslu að baki. Tveir aðrir sem hafa ber í huga eru þeir Mohammed Yazin upþ- lýsingamálaráðherra og Ahmed Boumendjel. Ahmed Boumendjel, sem stóð að samkomulaginu í Melun í júní í fyrra, sem ekkert varð úr. — Yazid er væntur bandarískri konu, hann hefur lengi verið ram- ur andstæðingur nýlendu- stefnunnar og byrjaði for- sprakkaferil sinn í Bandung í Indonesiu 1955. Menntað- ur í Paris. Boumendjel hefur langa reynslu í stjórnmálum. Hann er 55 ára, kvæntur franskri konu, sem enn býr í Frakklandi með tveimur dætrum sínum. Hann stund- aði lögfræðistörf í Párís um mörg ár. Hernaðarleg reynsla. Þá ei-u þrír menn, sem ekki hafa !þá stjórnmálalegu reynsltt, sem fyrrnefndir hafa, en hinsvegar hernaðar- lega -reynslu. Merkastur þeirra er Belkacem Krim, 39 ára, vaía-forsætisráðherra og' utanríkjsráðherra. Hann er beizkyr*tur er hann talar um óréttlætið í franska hernum, Krim Belkaeeni. 1945. Hélt hann þá til Kabylie-fjalla í Alsír og gekk í flokk uppreistar- manna. Frakkar hafa marg-' sinnis dæmt hann til iífláts. Hann er í feikna áliti meðal þjóðernissinna, enda hinn eini af hinum upprunalegu níu, sem enn leikur lausum hala. Hann er af bændaætt- um og hans bíður án vafa mikið hlutverk. Félagar hans í „stríðsnefndinni“ eru Lak- hadar Ben Tobbal innanríkis- ráðherra og Abdalhamid Boussouf hergagnabirgða- ráðherra. Þeir eru báðir inn- an við fertugt og lítið fyrir að láta bera á sér. Loks eru Mohammed Said, ráðherra án umráða yfir sér- stakri stjórnardeild, og Abdelhamid Mehri, félags- málaráðherra; hinn fyrr- nefndi 50 ára, hinn síðar- nefndi 36. Said hefur mikla hernaðarlega reynslu. Mehri hefur það fram yfir aðra, að hann er aíburða vel að sér í hinni bókmentalegri ara- bisku. Sýsluiieíndarfunrfur Eyja- fjaríarsýslu stendur yfir, Frá frétíaritara Vísis. Akureyri í gær. Sýslufundur EyjafjarSar- sýslu hófst ó Akureyri í fyrra- dag og mun hann standa yfir í eina viku. | Búið er þegar að kjósa í allar fastanefndir og lögð hafa verið fram ýmis erindi frá einstök- um hreppum eða fulltrúum. | Sýslunefndarmenn eru 12 talsins og voru allir mættir til fundar í gær nema fulltrúinn frá Árskógsströnd, sem ekki komst i tæka tíð sökum ófærð- ar á vegum. Mes’.a Íisíaverkagjbf srðari tíma. Feneyjaborg hefur hlotiö eina mestu listaverkagjöf, sem sögur fara af á síðar’. tímum. Gjöfin er frá eiganda Fen- eyjarhallar, Peggy Guggen- heimer, sem er bandarísk auð- kona. Hefur hún lengi safnað málverkum meistara, hinna gömlu og meistara síðari tíma. Verðmæti málverkanna er á- ætlað 400.000 sterlingspund. Höllin fylgir með í gjöfinni. StýrimannsskóSariin ssgt upp í 70. Fjórír brautskráöust Stýrimannaskólanum var sagt upp í gær í "0. siimi í há- ! tíðarsal skólans og brautskráð- ! ust 13 farmenn, 40 fiskimenn og 26 luku minna fiskimanna- prófi. Fjórir hinna brautskráðu Ihlutu ágætiseinkunn, og vom ; þcim veitt verí ’aun úr verð- launasjóði Páls Halldórssonar. Friðrik Ólafsson skólastjóri rakti störf skólans á liðnum ! vetri og minntist þess, að í ár ; eru Jiðin 70 ár síðan skóiinn tók i til starfa. Fyrsti skólastjóri var | Markús Bjarnason og var til aldamótaársins, þá tók við Páll HaUdórsson. en síðan 1937 hef- ur Friðrik Ólafsson veitt skól- anum forstöðu. Skólastjóri gat þess. að hann hafi fengið til- kvnningu um það frá þeim. er þrautskráðust fyrir 10 árum, að þeir ætli að gefa skólanum t málverk af Þorsteini heitnum Þórðarsyni. sem var kennari I við skólann. Þeir sem tóku til máls við skóiauppsögnina, voru Bjarni Elíasson fyrir hönd þeirra. er t útskrifuðust 1949 og afhenti 10 jþús. króna gjöf til stofnunar ] minningarsjóðs um 3 druknaða :félaga úr hópi þessa árgangs: $titjt i gær. me5 ágæítseinkunr.. Af þeim sem útskrifuðust fyrir 50 árum, ■ eru 4 á lífi, og flutti Jón Otti Jónsson skipstjóri kveð.iu þeirra og afmæiisóskir til skólans. Þá fluttu afmælis- óskir Jónas Guðmundsson frá Skólastjórinn afhentir prófskír- teini við 70. skólaslitin í gær. j (GB> farmanná- og fiskimannasam- bandi íslands, Þorvarður Björnsson frá Skipstjórafélag- inu og Halldór Sigurþórsson, frá Stýrimannafélaginu og Sverrir Júlíusson frá L.Í.U. —■ Menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason flutti ávarp og árnað- aróskir. Fjórir hinna brauískráðu frá Stýrimannaskólanum í gær hlutw ógætiseinktmn ng verðlaun úr sjóði Páls Halldórssonar fyrrv. skólastjóra: Þeir sjást hér á myndinni ásamt Friðriki Ólafssynú skólastjóra: Guðbjartur Gunnarsson, Jón Ólafsson, háðir úr, Rcykjavík, Þorvaldur Guðmundsson frá Akranesi og Kristjáru Helgason frá Iíúsavík. (GB>,

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.