Vísir - 24.06.1961, Blaðsíða 1
VÍSIR
51. árg. — Laugardagur 24. júní.1961. — 141. tbl.
SASflyguryfir
Löngumýri.
Lítt mun Skagfirðinga gruna
að yfir hina sögufrægu staði,
svo sem Víðimýri, liggur fjöl-
farin flugleið Þotur frá SAS
með nær 100 farþega innan-
borðs fljúga þar og eins yfir
Löngumýri daglega.
Grímseyingar eru ekki eins
afskekktir og þeir halda, því
þar yfir liggur einnig flugleið
frá Evrópu vestur um haf. ,
Að því er upplýst var í flug-
turninum í gær hafa verið
óvenju margar flugvélar á loft
gæzlusvæði íslands undanfarið,
en því veldur þrálát vestanátt.
Er það fremur á vesturleið að
flugvélar koma inn á svæðið,
en upp á síðkastið hafa flug-
vélar á austurleið einnig tekið
stefnu yfir Skagafjörð í 30 til
35 þúsund feta hæð. Enda þótt
Skagfirðingar líti hátt í himin-
hvolfið munu þeir ekki koma
auga á flugvélarnar, sem fljúga
þar yfir með stuttu millibili.
Laxveiðin hefur verið með
daufara móti það sem af er
veiðitímabilinu. í Elliðaánum
liefur engin hrota komið, og
lítill lax talinn hafa gengið á
ána fram til þessa. Hins vegar
bíða menn með óþreyju stór-
streymisins, nú um mánaða-
mótin, en þá er búizt við að
heldur kunni að glæðast.
í Elliðaánum munu aðeins
sárafáir fiskar vera gengnir
upp á efri partinn, en vart hef-
ur orðið við lax í vognum og á
París rainmst
söguviiburða.
Skipt hefir verið um nafn á
einu torginu í París — því, sem
er fyrir framan Montparnasse-
járnbrautarstöðina.
Hefir það jafnan dregið nafn
af stöðinni, en um daginn var
því gefið nýtt nafn — Plaee du
18 Juin 1940 — til minningar
um, að það var 18. júní 1940,
sem de Gaulle hvatti Frakka
til áð hætta ekki baráttunni
gegn Þjóðvei’júm. Þetta torg
var valið til minningar um
þenna atburð, af því að það var
einmitt fyrir framan Montpar-
nassestöðina, sem hernáms-
stjórn Þjóðverja í París gafst
upp fyrir bandamönnum 1944.
Viðeyjarsundi, þótt enn hafi
, lítið gengið í ána.
í Laxá í Kjós hefur verið
lítil veiði, suma daga ekkert.
17. júní komu t.d. tveir fiskar á
land þar, en daginn eftir ekk-
ert. Þó mun einn lax hafa verið
dreginn í Meðalfellsvatni um
helgina.
Úr Borgarfirðinum er heldur
fátt frétta. í fyrra gaf Þverá
einna bezt á þessum tíma, en
fréttir hafa ekki borizt af þeim
sem þar eru við veiðar nú. —
Norðurá hefur gefið litla veiði
þar sem af er. Eitthvað mun
hafa fengizt í Grímsá, en um
veiði í öðrum Borgarfjarðarám
er ekki vitað enn þá.
Norðanlands hefur lerigst af
verið kuldi. Miðfjarðará fylgir
oft Norðurá að veiði á vorin,
en nú hefur sáralítið veiðst
þar, ef frá eru taldir tveir
fyrstu dagarnir. — Laxá í
Þingeyjarsýslu mun einnig hafa
gefið trega veiði þá 12 daga þar
sem veitt hefur verið þar á
neðsta hlutanum. Kemur þar
vafalaust til hin kalda veðrátta
nyrðra undanfarið.
■jc Kvikmyndaleikarinn Jeff
Chandler er nýlátinn 42ja
ára gamall. Hann fékk ill-
kynjaða blóðeitrun, sem
varð honum að bana eftir
mánaðar veikindi.
Síðan Kennedy Bandaríkjaforseti veiktist í baki á nýjan leik, skömmu fyrir Vínarfundinn
hefur hann mikið notað ruggustól þegar hann þarf að sitja. Við það reynir minna á hinn
sjúka hluta baksins og hvíldin verður meiri. Hann sést hér á tali við Nguyen Dinh Thuan,
ráðherra öryggismála í Suður Viet Nam.
50 hross bíSa útflutnings.
í fyrra fóru yfir 40 með ]
flugvél fil Kanada.
Á þessu ári hafa verið flutt
út 75 liross til Hollands, og
Þýzkalands, og frá einum út-
flytjanda bíða nærri 50 hross
útflutnings, scm fara til sömu
landa strax eftir verkfall.
Útflutningurinn hefir mest
verið á vegum S. Hannesson &
Co., en einnig hefir Kaupfélag-
ið Þór á Hellu flutt út talsvert
magn. Eftirspurn er alltaf fyr-
ir hendi, og mundu fleiri hross
vera flutt út, ef skiprúm feng-
izt, að því er S. Hannesson &
Co. hefir tjáð Vísi.
Nokkrir erfiðleikar hafa ver-
ið á að fá skipsrúm, en þó hefir
ekki þótt borga sig að fá sér-
stakt hrossaflutningaskip. Þau
taka 300 hross, en það magn er
sjaldnast fyrir hendi, þar eð
pantanir eru afgreiddar eins
fljótt og hægt er. Alls fluttu
S. Hannesson & Co. út um 160
hross sl. ár. Ein pöntun, 42
hross, fór með flugvél til Kan-
ada. Kaupandinn kaus að flytja
þau þannig, en af því verður
ekki aftur, svo dýrt reyndist
það.
Flest hrossin eru seld héðan
til Þýzkalands, en kaupandinn
þar selur síðan til annarra
landa, Hollands, Sviss og Aust-
urríkis. Útflutningstíminn er
frá júní—október, en gefnar
eru þó undanþágur frá því.
Með sömu ferðinni, m. a. Sel-
fossi í apríl, fóru 30 hross frá
Kaupfélaginu Þór á Hellu.
Möguleikar hafa farið minnk-
andi á útvegun hrossa í sveit-
um austan fjalls, eru meiri
nyrðra. Einnig getur verið taf-
samt að útvega eftir pöntun-
um, þar eð einstaklingar þeir
úti, sem hrossin vilja fá, óska
eftir sérstökum lit, t. d. rauðum
hesti með hvítri stjörnu eða
öfugt o. s. frv. Aldur hrossanna
er frá 4—10 vetra.
Ástralíubúar
við lUyvatn.
Frá fréttaritara Vísis,
Akureyri í gær'
Ferðamannastraumurinn í
Mývatnssveit er nú byrjaður
fyrir alvöru, en einkum þó út-
Iendingar, sem hafa gist hana
til þessa.
Meðal gesta sem dvalið hafa
við Mývatn í vor eru bæði
Ný-Sjálendingar og Ástralíu-
búar. Viðbygg.ingin við hótelið
í Reynihlíð hefur vferið tekin
í notkun og er nú unnt að hýsa
þar mun fleiri gesti en áður.
Nýlega var Kirkjukórasam-
^band Þingeyinga á ferð í Mý-
vatnssveit, samtals 180 manns.
Sungið var í Reykjahl.kirkju,
þar sem hver kór söng sérstak-
lega og síðan allir saman undir
stjórn Páls H. Jónssonar söpg-
kennara á Laugum. Að loknum
söng var Páli haldið samsæti,
þar sem hann lætur nú af störf
um nyrðra og flytur alfarinn
til Reykjavíkur..
Nær ekkert hefur veiðzt í
Mývatni í vor og þykir það
með eindæmum.
HANDRITA-
MÁLIN RÆDD.
Khöfn í nótt.
Handritamálið verður tekið
til umræðu í utanríkismála-
nefnd þjóðþingsins í dag — það
er fimmtudag.
Nefndin þarf að ræða ýmis
formsatriði, sem koma þarf í
höfn, af því að ekki er unnt að
afhenda handritin á þeim tíma,
sem ætlaður hafði verið til þess.
Jensen.
Íslandsmeistararnir
gerðu I — fengu 11.
íslendingar fengu Kroða-
burst í gærkveldi á Laug-
ardalsvellinum í leik sínum
gegn HoIIendingum.
Léku Hollendingar Is-
landsmeistarana sundur og
saman og skoruðu 11 mörk
gegn 1.