Vísir - 26.06.1961, Blaðsíða 6

Vísir - 26.06.1961, Blaðsíða 6
í-i.-. Mánudagur 26. júní 1961’ K VIKMYNDA S TJARNAN ur. Hún er hraust og fjölhæf með afbrigðum. Hinn ítalski kvikmyndatökumeistari, Fre- derice Fellinie, hefur sagt, að þessi fræga kvikmynda- stjarna væri ,,náttúrubarn“ og flæmsk endurreisnartíma- bilskona. Hvort tveggja sjald- gæft á 20. öldinni. Það hafa verið skrifaðir margir kílómetrar af blaða- dálkum um Anitu Ekberg á undanförnum árum. Um þessa sænsku stjömu er rætt og ritað án afláts. Aðalástæð- an til þess að hún hefur aldrei frið fyrir blaðamönnum og aðdáendum, er fegurð henn- ar. Anita er forkunnar fög- ur. Andlitið er dásamlegt. Það er höggmyndlistarandlit. Fætur hennar og fótleggir eru fram úr skarandi fallegir. Tennur, augu, hár, munnur, vaxtarlag — allt er aðdáan- lega fallegt. En Anita Ekberg er ekki eina fagra stúlkan, sem kom- ið hefur til Hollywood, og ekki kunnað nema fimm orð í ensku og haft óbifanlega trú á því að lífið yrði dýrlegt. Anita hlýtur að hafa haft eitthvað fram yfir allan f jöld- ann af kynsystrum sínum. Ó- venjulegt sjálfstraust, þrái, hugrekki og þolgæði til þess að láta erfiðleika ekki yfir- buga sig, hefur gert Anitu Ekberg ósigrandi. Hún lét ekki telja sér hug- hvarf þótt óbyrlega blési í fyrstu. Hún lét það sem vind um eyrun þjóta, er hún fékk bréf með ráðleggingum um að fara heim til Svíþjóðar. Anita hafði takmarkalausa trú á sjálfri sér. Hún var sannfærð um að lífið yrði dans á rósum er tímar liðu. Anita er hyggin, hún er afar sterkbyggð og hefur haft framúrskarandi góða heilsu. Læknir hennar hefur sagt að svo góð heilsa sé sjaldgæf, ef ekki einstæð. An- ita sé lifandi kennslubók í líffærafræði. (Minna má nú gagn gera). Ást Anitu á lífinu er tak- markalaus. Henni þykir gaman að lifa, vera kvikmyndastjarna og geta skemmt sér án þess að þurfa að horfa í skildinginn. Hin mikla lífsorka Anitu er alkunn, og við og við ber- ast fréttir um að hún hafi beitt orkunni alláberandi, og orðið sér til minnkunar. All- skapheit mun hún vera, þótt hún sé stundum nefnd ísf jall- ið úr norðrinu. Þegar aðrir leggjast dauð- þreyttir til hvílu eftir slark- sama nótt fer Anita oft í bað, ekur driúgan spöl í bílnum sínum, borðar „spaghetti“ eða gerir eitthvað annað. Þegar vinirnir, sem verið hafa með Anitu á nætursvall- inu vakna eftir stuttan svefn eru þeir þreyttir og vesæld- arlegir. En Anita hefur ekki látið á sjá. Hún er fögur og indæl þrátt fyrir vökur og slark. Ekkert virðist bíta á hana. Það er oft asi á henni. En hún kann líka að hvíla sig — vera löt og safna kröftum. Hún sefur fast og vaknar stundum ekki þótt síminn hringi. Anita er glaðlynd og skap- mikil. Hún getur reiðst illa og minnir þá á náttúrubarnið og endurreisnartímabilskon- En hún er ekki langrækin. Hún vill ekki vera í fýlu.1 Mönnum virðist Anita hafa skemmtun af því að reiðast. Það éykur matarlystina og bætir meltinguna, að hennar áliti. Stundum mun hún gera sér upp reiðiköstin. Menn eru ekki vissir um það, hvenær Anitu er alvara og hvenær hún er að leika. Eftir að hafa fengið reiði- kast — ekta eða óekta — verður Anita glöð og sæt. Hún segir þá venjulega: „Jæja, ég reiddist. Nú getum við aftur orðið vinir. O.K.?“ Þannig afvopnar hún fólk. Anita virðist stundum of- urlítið feimin og hláturmild.; En ef til vill er þetta einung- j is leikur. Það er svo erfitt að, botna í Anitu Ekberg. Ef til vill er þetta leyndar-1 dómurinn, sem gerir hana, svo spennandi. Menn vita j aldrei með vissu, hvort hún meinar það, sem hún segir, eða ekki. En aldrei er leiðin- legt að vera í nánd við hana eða með henni. Anita Ekberg • 'g(*tur verið eins og Garbo, Pola Negri og Gloria Swanson í nýtízku út- gáfu. Og það lætur nærri að hún fari fram úr þeim öllum þegar henni tekst bezt. En svo kemur það, sem mörgum mun þykja nýstár- legt og merkilegt. Anita Ek- berg er hagsýn og fjölhæf. Hún getur lagfært ljósatæki, gert við af sér o. fl. Hún er afar lagin og hand- lipur. Hún kann að sauma og matreiða. Hún hefur gaman af að mála. Ekki myndir, heldur veggi, veski, hálsbönd og bursta. Hún lagfærir oft á sér hárið og snyrtir sig og gerir tilraunir með fegrunar- meðöl. Gerir nýjar blöndur með svo góðum árangri að j verksmiðjueigendur mættu j öfunda hana af framleiðsl-1 unni. Glaðlynd er Anita oft — | en ekki ætíð. Hún hefur sér,- j staklega gott lag á að um- gangast böm. Hundarnir' henar elska hana. Öllum börnum, sem heima eiga í grennd við Anitu, þykir vænt um hana. Anita lætur stundum hátt- setta menn í kvikmyndaiðn- aðinum bíða lengi vegna þess að hún er að tala við litlar stelpur um brúðumar þeirra. Alls konar klæðnaður fer Anitu vel. Hún er ágætur bíl- stjóri, ágæt reiðkona og synd- ir eins og fiskur. En ég er viss um að hún myndi æpa hástöfum ef hún sæi litla mús. Já, ef réttir áhorfendur væru í grennd. Að öðmm kosti myndi hún fara með músina inn í eldhús, taka brauð og ost og gefa henni. Svo myndi hún ná í hey og láta gestinn hvílast á því. Anita er lagin við blóma- rækt og Pappina, sem er ráð- ríkur garðyrkjumeistari, beygir sig oft fyrir áliti og vilja Anitu. En þessar um- ræður taka stundum langan tíma. Samkvæmt því, sem nú hef- ur sagt verið ætti Anita að vera góð kona. Fólk, sem ann 1 ingnum var, lokið. Það er æ- tíð leiðinlegt að vera fjárri sínum nánustu. En hvergi eins dapurlegt að vera ein- mana og á sjúkrahúsum. Þá kom þýzk hjúkrunarkona hlaupandi eftir ganginum. Hún sagði við mig: „Komdu fljótt. Það er símtal við Róm“. Ég ók í hjólastólnum fram hjá lokuðum dyrum, nam staðar undir náttlampa og greip símtólið, sem lafði nið- ur eftir veggnum. „Hallo, það er Anita. Ég fór að hugsa um þig og áleit BÆRBRO BOLIIMDER börnum og blómum er venju- lega ágætt í alla staði. Ég álít að Anita vilji vera góð. Eitt sinn er við ræddum þetta mál, skildist mér á henni, að hún vildi vera svo góð, að menn gleymdu henni ekki. Manna, sem muna hana og að þér þætti lífið dapurt og dauft“. Leiðindi þolir Anita ekki. Hún álítur það afar ill örlög að vera einmana og svo hófst hún handa með að hressa mig. Þvílíkri framkomu gleyma menn ekki. Þannig er Anita sýna það, minnist hún og gleymir ekki. Ekki svo að skilja að hún haldi óslitnu sambandi við þá! Hún er trygg. Langi hana til þess að tala við einhvem vina sinna, lætur hún ekki mikla fjarlægð né langan tíma hindra það. Þetta get ég vottað. Ég hef sannanir fyrir því. I fyrra lá ég í sjúkrahúsi í Þýzka- landi. Hafði legið þar lengi. Jólanóttin var komin. Allt var orðið hljótt, Jólaundírbi'm- inn við beinið. Góð, hjálpfús og hjartahlý. Anita Ekberg er dugleg. Hún er mikil leikkona. Hún hefur sigrað heiminn með dugnaði sínum, list og feg- urð. Henni eru allir vegir færir. Ástamálin verða henni eins og f jölda annarra stjarna erfiðust viðfangs. j En Anita Ekberg lætur j ekkert beygja sig. Því alltaf 1 má fá annað skip og annað j föruneyti.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.