Tölvumál - 01.02.1977, Side 2
JANÖARFUNDURINN
Birgðabókhald og lagerstýring er greinilega áhugaefni
margra félaga í Skýrslutæknifélaginu, því fundinn, sem
haldinn var í Norræna Húsinu 18. janúar síðastliðinn,
sóttu um 75 manns.
Formaður félagsins, Finar Pálsson, stýrði fundinum.
Á fundinum töluðu Steve Rastrick frá Tölvutækni hf,
ölafur H. ölafsson frá Heimilistækjum sf og þeir
Jón V. Karlsson og Guðmundur Hannesson frá IBM.
Fyrstur talaði Steve Rastrick. í inngangi fjallaði hann
um mismunandi kröfur sem notendur gera til lagerbókhalds:
Heildsali hefur aðrar þarfir en smásali. Á einum stað
er vöruumsetning hröð, annarsstaðar hæg. Síðan lýsti
Steve tveimur kerfum, sem Tölvutækni bjóða. Annað, sem
hæfir smátölvu (Mini Computer) með cassettum. Hitt fyrir
stærri smátölvu eða tölvu af gerðinni Burroughs B80,
einnig með cassettum.
Næstur talaði Guðmundur Hannesson og lýsti birgðabókhalds-
kerfi, sem IBM býður notendum System 32 tölvukerfa. Þetta
er kerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Þá talaði ölafur H. ölafsson. Hann ræddi í inngangi sínum
um það, sem hann kallaði þjónustustig, þ.e. samband milli
magns og þjónustu. Nýting fjármagns eykst, sé hægt að halda
birgðum í lágmarki. Hann lýsti sxðan bókhaldskerfum, sem
Heimilistæki bjóða notendum Wang-tölva.
Síðastur ræðumanna var Jón V.
Karlsson. Hann lýsti birgða-
bókhalds- og lagerstýringarkerfi,
sem tölvuþjónusta IBM býður
viðskiptamönnum sínum og hentar
t.d. vel fyrir smásölulager.
Þetta er kerfi, sem ætlað er að
þjóna samtímis mörgum notendum
með mismunandi þarfir; hver getur
valið það sem honum bezt hentar
af fjölbreyttum möguleikum á
vinnslu og úttaki.
Að loknum fundi $ettust menn
saman yfir góðum kaffibolla,
í boði félagsins.