Tölvumál - 01.11.1978, Page 2
tölvumAl
2 Halldór Friögeirsson, verkfræÖingur, ræddi um
birgöastýringu. Hann lýsti grundvelli birgöa-
stýringar og fjallaöi um afleiðingar þess aö
sitja með of miklar birgöir eöa, á hinn bóginn,
að hafa ekki nægar birgöir. Hann útskýröi mark-
miö birgöastýringar og áréttaöi þau með raun-
hæfum dæmum.
3 Þorgeir Pálsson, dósent, lýsti tölvukerfi,sem
gert hefur veriö fyrir Flugleiðir hf, til aö
skipuleggja ferðir flugáhafna. Þetta er marg-
brotnara viðfangsefni en ætla mætti að óreyndu
og er mikiö fjárhagslegt atriÖi, aö vel sé aö
þessum hlutum staðiö. Reynsla er ^nú komin á
þetta nýja kerfi, sem leysir af hólmi seinlega
og mjög sérhæfða handavinnu.
4 Loks flutti svo Björn Friöfinnsson, fjármála-
stjóri Reykjavíkurborgar, erindi um notkun tölva
á sviði opinberrar stjórnsýslu - allt frá tölvu-
væddu bókhaldi, útskriftar- og innheimtukerfi
orkureikninga o.fl. til vinnslu reiknilíkana á
dreifikerfi rafmagns. Hann rakti þréun gagna-
vinnslu á opinberum vettvangi og hugleiddi fram-
tíðina í því efni.
Fundinn sóttu um 50 manns sem gerðu góðan róm að erindunum
og lögðu spurningar fyrir framsögumennina sem þeir svöruðu.
Aö lokum þakkaöi formaður félagsins fyrirlesurum fyrir
fróðleg erindi og fundarmönnum áheyrnina. Hann bauð síðan
til kaffidrykkju, í boöi félagsins.
RIT EDB-RAÐSINS 1 DANMÖRKU
Vakin er athygli á nýlegum bæklingum frá EDB-ráöinu í
Danmörku, sem menn geta pantað þaðan:
1 Vurdering og valg af edb-
systemer.
2 Anskaffelse og anvendelse
af lokale, mindre data-
maskiner.
3 Edb - projektledelse - en
uddannelsesplan.
Hjá ritara eru eintök af þessum
bókum, vilji menn kynna sér þær.
Áritun Edb-ráðsins er:
Edb-rádet
Bredgade 58
1260 Köbenhavn K,
Danmark