Tölvumál - 01.02.1979, Side 2

Tölvumál - 01.02.1979, Side 2
hafa ýmislegt viö frumvarpið aö athuga, eins og þaÖ nú liggur fyrir. Hann kvaöst í mörgum atriðum vera sammála tillögunum að umsögn Skýrslutæknifélagsins, þótt einnig þar heföi hann ýmsar athugasemdir fram aö færa. Hann kvaöst samt ekki myndi gera beinar breytingatillögur á drögunum eins og þau liggja fyrir, en Hagstofan sem slík hefur lagafrumvarpið sérstaklega til umsagnar. Aðrir, sem tóku til máls í þessum umræðum voru Elías Davíösson, Ingimar Jónasson og Ottó A. Michelsen. Aö lokum dró fundarstjóri saman helstu atriöin sem fram höfðu komið í umræöunum. Tillaga frá Elíasi Davíðssyni um viðbótarmálsgreinar undir fyrirsögninni "Persónugagnaráð" var samþykkt. Sömuleiðis oröalagsbreyting á síöustu málsgreininni undir fyrirsögn- inni "Opinber og önnur skráning". Loks voru síðan drögin í heild meö áorðnum breytingum borin undir atkvæði fundar- manna sem samþykktu þau samhljóða sem umsögn Skýrslutækni- félagsins um lagafrumvarpið. Breytingar, sem fundurinn gerði á drögunum eins og þau voru birt í Tölvumálum, 1. tbl. 4. árg., eru eftirfarandi: 1 Viö kaflann "Gildissvið" bætast tvær málsgreinar (tillaga Elíasar Davíðssonar): "Persónugagnaráð skal birta ársskýrslu um starf- semi sína með greinargóðum upplýsingum um tilkynn- ingar sem því hafa borist, leyfi sem það hefur veitt , úrskurði þess og reglur sem það kann að hafa samið. Persónugagnaráð skal ennfremur skrásetja til- kynningar, leyfisveitingar og úrskurði og skal ráðið tryggja almenningi aðgang að þessum upp- lýsingum endurgjaldslaust." 2 Síðasta málsgrein kaflans "Opinber 'ig önnur skrán- ing" hljóði þannig: "Telja verður óhjákvæmilegt að hefðbundin meðferð á ýmsum opinberum skrám, svo sem þjóðskrá, skatt- skrá og kjörskrá, verði endurskoðuð jafnframt setningu laga um meðferð persónugagna. Ræða verður um hvort hefðbundin meðferð á atriðum er varða m.a.^ríkisfang, trúflokk, hjúskaparstétt og skatta- upplýsingar brjóti í bága við anda persónugagna- löggj afarinnar." SMÁTÖLVUSÝNINGIN Skýrslutæknifélagið ^gekkst fyrir smátölvusýningu dagana 26.-28. janúar sl. í samvinnu við Reiknistofnun Háskólans og Verkfræði- og raunvxsindadeild. í sýningarnefnd voru þeir Oddur Benediktsson, Páll Jensson og Sigfús Björnsson Þeir Páll Jensson og Axel Sölvason, tækjavörður í Verk- fræði- og raunvísindadeild, báru hitann og þungann af vinnunni við uppsetningu sýningarinnar auk Magnúsar Guð- mundssonar, húsvarðar.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.