Tölvumál - 01.02.1979, Síða 15
tölvumAl
15
13. MEÐFERÐ ÁGREININGSMÁLA
13.1 Samningur þessi og túlkun hans fer að öllu leyti samkvæmt islenskum lögum.
13.2 Komi upp ágreiningur milli samningsaðila um túlkun samnings þessa, getur hvor aðili um sig krafist þess að
ágreiningsefnið verði útkljáð með gerðardómi.
13.3 Gerðardóm skipa þrír menn tilnefndir af borgardómi Reykjavíkur. Formaður dómsins skal fullnægja skilyrðum sem
dómari. Samningsaðilar geta bent á hina tvo, sem tilnefndir eru með hæfilegu tilliti til þeirrar sérstöku þekkingar, sem
æskileg er talin við mat á ágreiningsefnum þeim, sem lögð hafa verið í gerðardóm. Komi engar slíkar ábendingar, skal
tilnefna án þeirra.
13.4 Gerðardómur setur sér sjálfur starfsreglur. Fella skal rökstuddan dóm eins fljótt og unnt er og áður en hálft ár er liðið
frá því að gerðardómur var skipaður.
13.5 Þegar gerðardómur ákveður hver skuli greiða málskostnað, þar með talin þóknun til lögfræðinga málsaðila, getur
hann tekið tillit til þess hvort málið var sett i gerðardóm af sanngjörnum ástæðum eða ekki. Gerðardómur ákveður með
tilliti til málsatvika hvenær dóminum skuli fullnægt. Venjulega skal það gert eigi síðar en 14 dögum eftir dómsúrskurð.
14. AÐRIR SKILMALAR
Viðbótarskilmálar við samning þennan og/eða breytingar á ákvæðum samnings þessa skulu tilfærð hér að neðan:
Dagsetning
Viðhaldsaðili:
Notandi:
Undirskrift
Undirskrift
Sl 1. Út. 1979 PflÉNTSMKJJAN OOOI HF