Tölvumál - 01.06.1980, Síða 3

Tölvumál - 01.06.1980, Síða 3
tölvumAl 3 Björgvin Guömundsson: EFNISATRIÐI ÚR FRAMSÖGUERINDI ... Mig langar fyrst til aö koma aöeins inn á spurninguna "hvaö er örtölva". Enska orðið "microprocessor" er upphaflega dregiö af þeirri framleiðsluaðferð, sem beitt er viö þessar flóknu rásir. Orðiö örtölva er þýöing á þessu enska orði, en viröist jafnframt vera notaö um þaö sem kallaö er á ensku "single chip micro- computer". Eftir þvi sem örtölvurnar verða flóknari og hraðvirkari verður einnig erfiðara að ákvaröa mörk þeirra og hinna "hefðbundnu tölva". Það er því ekki auóvelt aó skera úr um hvaó er örtölva og hvað ekki. í þeirri umræöu um örtölvubyltinguna, sem spunnist hefur út frá samnefndum sjónvarpsþáttum, hefur mér fundist gæta þess misskilnings að með örtölvutækninni sé mögulegt að gera hluti, sem áóur voru tæknilega ófram- kvæmanlegir. Fram til þessa dags hafa örtölvur verið hægvirkari en tölvur seinasta áratugar og vissulega ekkert getaó, sem forverar þeirra gátu ekki. Byltingin felst i framleiósluaðferö örtölvanna, sem siðan leiðir af sér það lágt veró á þeim aö hægt er að nota flókinn örtölvubúnaó vió verkefni, sem útilokað var aó nota tölvu vió áður. Hingað til lands hefur þegar borist allmikiö af tækja- búnaói, sem stjórnað er af örtölvu svo sem heimilis- tölvur, reiknivélar, Loran-tæki, prentarar o.fl. Á næstu árum munum vió sjá örtölvuna á sifellt nýjum vigstöóvum. Vil ég nefna þar sérstaklega sjálfvirkar vinnuvélar, en þessi nýja tækni virðist geta gert vélmenni visindaskáldsagnanna að veruleika. Vonandi er að okkur islendingum takist aö notfæra okkur þá miklu atvinnubyltingu, okkur öllum til hagsbóta. Björn Friófinnsson: ÖRTÖLVUBYLTINGIN Að sjá inn í framtíðina, Fyrir um þaó bil tveimur áratugum kom hingað til lands þáverandi varaforseti Bandarikjanna Lyndon B. Johnson. Borgarbúum var gefió tækifæri á því að sjá og heyra i hinum merka manni á fundi, sem haldinn var i Háskólabiói og var ég einn hinna forvitnu, sem þangaó fór. Ekki man ég nema eitt atriói úr ræóunni, sem Johnson flutti við þetta tækifæri, en ég man það af gefnu tilefni, sem öðru hverju rifjast upp i huga mér. Mér fannst vist ræóan ó- merkileg mióaó við þaó, hve háu embætti ræðumaóur gegndi,

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.