Tölvumál - 01.06.1980, Blaðsíða 8
8
TÖLVUMÁL
Margir óttast aö sú þjóðfélagslega bylting, sem búast
má viö í kjölfar örtölvunnar, muni ekki veróa til góös
fyrir mannkynið því "biliö" á milli þjóöa, þjóðfélags-
stétta og manna muni breikka frá þvi sem nú er.
Ótalmargt annaö hefur veriö nefnt, sem taliö er aö muni
skyggja á dýróarljóma örtölvunnar. Um hrakspár í þessu
sambandi er lítiö aö segja, þær munu rætast sumstaöar
en annarstaðar ekki, allt eftir því hverjir stjórna
framvindu mála á hverjum stað. Staöreyndin er sú aö
viö höfum eignast öflugt verkfæri sem nota má í hvaóa
tilgangi sem er, góðum eða illum. En þó svo að ein-
hverja galla megi finna í sambandi viö notkun þessarar
tækni veróum við Islendingar aö tileinka okkur þessa
tækni til að veröa ekki undir í samkeppni viö aðrar
þjóöir, sem nota munu þessa tækni sér til framdráttar
á ýmsum sviðum. Viö eigum kost á aö nota örtölvuna til
aö hjálpa okkur viö aö halda því forskoti sem viö höfum
í sambandi vió aóal lífsviðurværi okkar, fiskinn.
Einnig er nauðsynlegt aö hagnýta örtölvuna í öörum iön-
aöargreinum til aö við getum veriö samkeppnisfærir viö
erlenda aöila sem geta lækkað sitt vöruverö enn meir
meö hjálp tölvustýröra framleiðslutækja.
Viö þurfum aö stórauka kennslu í tölvugreinum i skólum,
allt niöur í grunnskóla, og halda endurmenntunarnámskeiö
fyrir þá, sem lokið hafa skólagöngu. Hvaö sjálfri ör-
tölvutækninni viövíkur langar mig aó drepa á mokkur
mikilvæg atriöi. Vegna þess aö enn er lítið um fræöslu
í sambandi vió örtölvur þá fara margir áhugamenn út í
kaup á ódýrum örtölvukerfum til aö fræöast af eigin
rammleik. Þegar menn hafa lært á þessi litlu kerfi
langar marga aö stækka viö sig en sjá þá aö þeir hafa
lent á blindgötu. Fyrir sumar örtölvur er nefnilega
lítiö aö fá, litlar upplýsingar, lítiö af vélbúnaöi og
kannski ekkert af hugbúnaöi, sem er nauösynlegur ef eitt-
hvaö á að gera í alvöru. Þaö er því vissara aö kynna sér
meö blaöalestri eða meö öórum hætti hvort hægt sé aö
stækka litlu kerfin, áöur en fariö er út í fjárfestingar.
Einnig er nauósynlegt aö athuga verð á hugbúnaöi, sem
er mjög mismunandi eftir því hver hefur samið og fyrir
hvaöa vél. Auöveldlega er hægt aö finna fyrirtæki,
sem selur sambærilegan hugbúnaö og annarstaðar er hægt
aö fá, fyrir 10 sinnum minna verö.