Vísir - 22.11.1961, Page 1

Vísir - 22.11.1961, Page 1
VISIR 51. árg. Miðvikudagur 22. nóvember 1961. — 239. tbl. Bloöbankann vantar blóö. Blóðbankann við Barónsstíg vantar blóð í öllum flokkum, einkum A-flokki. Það er því á- stæða til að hvetja þá, sem geta að koma og gefa blóð. Einkum eru utanbæjarmenn hvattir til að koma við í Blóð- bankanum. Blóðbankinn leitar mikið til skólafólks. Nemendur Vélskólans og Stýrimanna- skólans koma á hverju hausti og hafa margir þeirra litið inn í Blóðbankann í haust. Þá hafa stúdentar komið margir til að gefa blóð. Ef hópar vilja koma til blóð- gjafar eru þeir vinsamlegast beðnir um að hringja í Blóð- bankann áður. Blóðbankinn er -opinn alla virka daga frá 9—12 og 13—17 nema á laugardögum, en þá er hann opinn til hádegis. Tékkneskir kommúnistar hafa nú ákv.eðið að rífa til grunna Stalins minnismerkið volduga í Prag. Sýnir myndin þessa risavöxnu granit-höggmynd sem stendur á áberandi stað f borginni. Hún er 30 metrar á hæð eða álíka og tuminn á Landakotskirkju. Hún sýnir Stalin sem vin og leiðtoga alþýðunnar. Að baki honum standa fulltrúar verkalýðsins. Það mun taka langan tíma með stærstu krönum að rífa höggmyndina niður. LWAW.V, VAV W.V ■ ■ ■ ■ ■ .v.w.v.w, Ekki matareitrun. !. ÚT AF frétt í dagbl. Vísi þriðjudag 21. þ. m., um að mat- areitrun hafi orðið konu að bana í síðustu viku, skal þetta tekið fram: Samkvæmt upplýsingum frá prófessor Níels Dungal leiddi krufning í Ijós sérstakan sjúk- dóm, sem leiðir skjótt til dauða, en ekki er vitað að stafað geti af matareitrun. Enda þótt umrædd frétt um matareitrun hafi ekki við rök að styðjast, er ástæða til að vara fólk við að neyta matvæla, sem grunur er um að geti verið skemmd. Ætti að tilkynna slíkt tafarlaust skrifstofu borgar- læknis og geyma matvælin til rannsóknar. Veikist einhver af neyzlu skemmdrar fæðu, er yf- irleitt nauðsynlegt að rannsaka sýnishorn af henni, ef takast á að færa sönnur á orsök eitrun- arinnar. (Frá borgarlækni). Stalíns—styttan í Prag rifin. Novotny forsætisráðherra Tékkóslóvakíu tilkynnti í gær, að tékkneski kommún- istaflokkurinn hefði ákveðið að fara að dæmi Rússa og af- nema persónudýrkunina í landinu. Kemur þetta nú í fyrstu fram með þeim hætti Afstaöa ríkisins í verkfræð- ingadeilunni Enn hafa um 60 verkfræðingar ekki verið ráðnir aftur til starfa, eða um helmingur verkfræðinga lands- ins. Eru það þeir sem starfað hafa hjá ríki og bæ, en kröfur verkfræðinga eru um 9—17,000 kr. mánaðar- laun, sem kunnugt er. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir aflaði sér í morgun þá liggur ekkert fyrír um það að ríkisstjórnin hviki frá fyrrí stefnu sinni, þeirri að ríkið muni aðeins ráða verkfræðinga upp á hin gömlu kjör, að viðbættum 13,8% kauphækkun, svo sem aðrír ríkisstarfsmenn hafa fengið. Þannig er ástandið nú, cftir að Verkfræðingafélagið hefir rétt aflýst verkfallinu. Það þýðir, sagði Hinrik Guðmunds- son framkvæmdastjóri félags- ins í morgun, að hver verk- fræðingur getur ráðið sig sjálf- stætt, en enginn heildarsamn- ingur verður gerður. Hinsvegar var gerð samþykkt á fundi Verkfræðingafél. s.l. fimmtu- dag að verkfræðingum skyldi ekki heimilt að ráða sig undir þeim kjörum sem Verkfræð- ingafélagið hefir farið fram á. Nú hafa 66 verkfræðingar ver- ið ráðnir upp á hin nýju kjör, til einkafyrirtækja og S.Í.S. — Hvorki ríkið né Reykjavíkur- bær hafa hinsvegar ráðið verk- fræðinga aftur til sín. Á batavegi LÍÐAN Kjartans J. Jóhanns- sonar alþingismanns var batn- andi í morgun að því er Vísi var tjáð frá Landakotsspítala, en alþingismaðurinn liggur þar til lækningar. Kjartan slasaðist á höfði á laugardag. að afnumin verður í Tékkó- slóvakíu persónudýrkim á Stalin og hinum gamla tékk- neska kommúnistaforingja Gottwald. Hefur verið á- kveðið að flytja lík Gott- walds úr heiðursgrafreit þeim sem honum var búinn í höfuðborginni Prag. Það var Gottwald, sem stjórnaði valdatöku kommúnista í Tékkóslóvakíu 1948 og hrakti m. a. hinn elskaða og virta Benes frá völdum. Novotny tilkynnti enn- fremur, að ákvörðun hefði nú verið tekin um að rífa niður til grunna hið risa- stóra Stalin-minnismerki í hjarta Prag-borgar, en þetta var stærsta Stalin-mynda- styttan sem til var í heimin- um og tákn þess að Stalin- dýrkunin var meiri í Tékkó- slóvakíu en nokkru öðru landi. Það mun taka mjög langan tíma að rífa Stalinstyttuna niður, því að hún er 30 metra há eða álíka og turninn á Landakotskirkjunni og veg- ur nærri þúsund tonn. Mynd- in er öll gerð úr þykku graníti.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.