Vísir - 22.11.1961, Blaðsíða 2
2
V f S I R
Miðvikudagur 22. nóv. 1961
# ^ %
v//Æmm'//'W*?////A
i Li-n i—u_ n r r
1 "////////
Ársþing FRÍ 1961 var haldið
í Reykjavík tlagana 18. og 19.
þ. m.
Þingfulltrúar voru fleiri nú
en nokkru sinjii áður, Mörg mál
lágu fyrir þinginu og margar
tillögur samþykktar.
Jóhannes Sölvason, sem var
formaður sambandsins sl. ár
baðst eindregið undan endur-
kosningu.
í stjórn voru kjörnir; Form.
Lárus Halldórsson, Tröllagili
í Mosfellssveit. Meðstjórnend-
ur: Ingi Þorsteinsson, Björn
Vilmundarson, Sigurður Júlíus-
son og Þórbjörn Pétursson, All-
ir úr Reykjavík.
B
Pormaður útbreiðslunefndar
var kjörinn Svavar Mai’kússon,
og formaður laganefndar Örn
Eiðsson.
fþróttavikan 1961
Frjálsíþróttasambandið hefir
nú birt úrslit íþróttaviku FRÍ,
sem fram fór í júní sl.
Þátttakendur voru alls 963,
en i fyrra voru þeir 1111. Mun
S t ú I k a
helzt vön bókbandsvinnu óskast strax á bókbandsvinnu-
stofu okkar.
Prentsmiðjan Hólar h.f.
Þingholtsstræti 27.
A&alfundur Knattspymu-
félags Reykjsvíkur
verður haldinn þann 29. nóvember kl. 8,30 síðd.
í Félagsheimili K.R.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreyting.
3. Onnur mál.,
Stjórn K.R.
undirbúningur að landsmóti
UMFÍ hafa valdið því, að færri
tóku þátt í íþróttavikunni nú
en í.fyrra úti á landi. Þátttaka
var meiri í Reykjavík nú en í
fyrra eða 299 þátttakendur.
Úrslit urðu þessi:
1. Héraðssamb. Strandamanna
4.78 stig á félaga.
2. Héraðssamb. Snæfellinga
2.81 stig á félaga.
3. Ungm.samb Austur-Húnv.
1.95 sig á félaga.
4. fþróttasamb. Akraness 1.54
stig á félaga.
5. Ungm. og íþróttasamb.
Austurlands 0.65 stig á fé.
laga.
6. Héraðssamb, S.-Þings. 0.64
stig á félaga.
7. Héraðssamb. Skarphéðinn
0.45 stig á félaga.
8. Frjálsíþróttaráð Rvk. 0.35
stig á félaga.
9. Ungmennasamb. Eyjafj.
0.34 stig á félaga.
10. Ungmennasamb. Kjalarn.þ.
0.15 stig á félaga.
11 Ungmennasamb. Borgarfj.
0.13 stig á félaga.
Flestir tóku þátt í 100 m.
hlaupi eða 559 einstaklingar.
Áskriftasími Vísis er
1-16-60.
Hið ljúfa líf
(La Dolce
Vita) sem
Nyja bíó hefur
sýnt undan-
’arið við mikla
-iðsókn( er
sannarlega at-
hyglisverð
mynd. Hún lýsir lífinu — eða
öllu heldur lifnaðinum — með-
al yfirstétta í Róm, í meira og
minna sundurlausum svip-
myndum. Hún sýnir partí hjá
aðlinum sem hefur yfir sér ó-
hugnanlegan geðveiklunarblæ.
Riku stúlkuna sem biður Mar-
cellos, en gefur sig öðrum
karlmanni áður en honum gefst
tækifæri til að svara. Tvö börn,
sem Ijúga því að þau hafi séð
Maríu mey og öllum þeim lodd-
araskap sem það kemur á stað.
Hinn ríka og menningarlega
elskanda fegurðarinnar, Stein-
sem drepur sjálfan sig og
tvö börn sín. Hina frægu ame-
rísku leikkonu, með ofþroskað-
an barm en vanþroskaðan heila,
• er
»
Innanhúss M. mót
yngri flokka.
Á þingi FRÍ um helgina var
samþykkt tillaga frá útbreiðslu-
nefnd FRÍ um að haídin verði
framvegis meistaramót innan-
húss fyrir sveina, drengi og ung-
linga.
Á sveinamóti verður keppt í
langstökki, hástökki og þrí-
stökki án atrennu svo og í há-
stökki með atrennu.
Drengir og unglingar keppa
í sömu greinum og sveinar að
viðbættu kúluvarpi, og ung-
lingar keppa einnig í stangar-
stökki,
Ætti þessi fjölgun móta yngri
flokkanna yfir vetrarmánuðina
að örfa áhugann.
vaðandi i Trevilindinni undir
morgunsárið. Ríka fólkið, sem
þeytist milli halla og nætur-
klúbba og aldrei hefur frið fyr-
ir ljósmyndurum, sem helzt
minna á blóðsugur, sem engin
leið er að hrista af sér. Partí
hjá hinum nýríku. þar sem
stúlka dansar nektardans, að-
eins til að sýna að hún þori
það. Og vespunum, sem alls
staðar smjúga eins og skordýr.
Það sem heldur þessum at-
riðum saman er Marcello (Mar-
cello Mastroiani) sem er í öll-
um þessurn atriðum. Hann et
glæsilegur ungur maður, blaða-
maður að atvinnu og talar um
bókina sem hann er að skrifa.
Hann er algerlega stefnulaus
í lífinu, þekkir alla, en á enga
vini, ber enga virðingu fyrir
sjálfum sér né öðrum og dettur
loks út úr blaðamennskunni
niður i það að verða blaðafull-
trúi leikara.
Federico Fellini, sem stjórn-
ar myndinni af einstakri snilld,
varar við því í foi’mála að telja
myndina vonleysislega, því að
hún sé full samúðar. Þrátt fyrir
það er vonleysi óhjákvæmilegt,
þar sem allt virðist vera að fara
í mola þegar myndin endar. Að
öllu jöfnu ætti þessi mynd ekki
mikið erindi til okkar fslend-
inga, þar sem við erum hvorki
ríkir né í Róm, en sannleikur-
inn er sá að hún er eins og
spegilmynd af stórum hluta
þjóðarinnar. Af fólki sem ekki
trúir á neitt, nema ef vera
skyldi trúleysið. Skemmtir sér
af ofsa, eltist við augnabliks
spenning, reynir stöðugt ný
uppátæki til að drepa tímann
og drekkur of mikið, aðeins af
því að það þolir ekki að vera
eitt með sjálfu sér. Fólk sem
lifir fyrir líkamlegar tilfinning-
ar og þarfir með lítilli þátttöku
sálarinnar. Þessi mynd hristir
okkur allavega til, þó að hún
geri varla meira. Ó. S.
„Ég hefi aldrei vitað íslenzkan
mann á hans aldri yrkja jafnvel“
Þetta eru orð Steins Steinarr um ljóðskáldskap Hannesar Péturssonar. Um-
mælin hafa að nokkru leyti verið staðfest með því að hann hefur fengið tvenn
bókmenntaverðlaun, A.B. og Helgafells, en sjálfur Tómas Guðmundsson einn
þeirra sem verðlaunin hefur veitt.
Það fer varla á milli mála að Hannes Pétursson er fremsta ljóðskáld yngri
kynslóðarinnar.
En Hannes er ekki aðeins Ijóðskáld, það hefur hann oft sannað, og með
bók sinni
„SÖGUH AÐ X »RÐAN“
hefur hann tryggt sér virðulegt sæti meðal höfunda í óbundnu máli.
„SÖGUR AÐ NORÐAN“ eru tólf talsins, hver annarri betri, en þær beztu
munu eiga tryggt öruggt sæti meðal skærustu perlanna í íslenzkum bók-
menntum. — Bókin er komin 1 bókabúðir.
Sendum eina eða fleiri bækur hvert sem er gegn eftirkröfu. Ef bókin
fæst ekki hjá bóksalanum þá pantið beint frá
HELGAFELLI Veghúsastíg 7 (Sími 16837)