Vísir - 22.11.1961, Síða 4

Vísir - 22.11.1961, Síða 4
Miðvikudagur 22. nóv. 1961 ' heildsölubirgðir fyrirliggjandi. Raftækjaverzlun Íslands hf. Skólavörðustíg 3, sími 17975—6. Það má til tíðinda telja þegar kona langt utan af landsbyggðinni, meira að segja úr einu afskekktasta byggðarlagi landsins, leitar til höfuðborgarinnar til að efna hér til listsýningar. Þetta er þó tilfellið að þessu sinni, og konan sem hlut á að máli heitir Guðrún Einarsdóttir frá Sellátrum í Tálknafirði, yzta byggða bænum þar í sveit. Guðrún opnaði sýningu á verkum sínum laugardaginn 18. þ. m. á lofti hússins Bankastræti 7, þar sem Staðarfellsskóla. Ég er heim- alningur í orðsins eiginleg- ustu merkingu. — Hvenær datt yður í hug að verða listakona? t— Mér hefur eiginlega ekki dottið það enn í hug. En hvenær ég byrjaði að fást við þetta dútl, get ég eiginlega ekki sagt um. Hafði gaman af því frá því er ég man fyrst eftir mér. — Og leikið yður að kuð- ungum. — Já, að sjálfsögðu. Ég var eitt af 5 systkinum. Við lékum okkur að hornum eins & kjóla- og tízkuverzlun Ninon var áður. Það sem frú Guð- rún sýnir þarna er m. a. veggteppi, áklæði ýmiskon- ar, munir sem skreyttir hafa verið með kuðungum svo sem lampar, hillur og ramm- ar. Þá málaðar blómamyndir á tau, einkum á silki. Loks eru á sýningunni dúkar og sjöl eftir móður listakonunn- ar, Ingibjörgu Kristjánsdótt- ur, sem hún gerði eftir að hún var komin á áttræðis- aldur. — Þér eruð gift kona, frú Guðrún? — Já, gift og átta barna móðir. Það er lítill tími af- gangs til listiðju. — Auk þess er bærinn yð- ar afskekktur? — Já, vissulega ekki í al- faraleið, en þó ekki eins af- skekktur og áður. Nú er bæði kominn sími heim til okkar og líka akvegur. Það er munur frá því sem áður var. — Börnin uppkomin? — Það yngsta er 8 ára. Hin eldri sum þeirra gift. En svo hef ég haft hóp af öðrum börnum. Ég hef æf- ingu í því að umgangast börn. — Eruð þér fæddar í Sel- látrum? — Fædd og uppalin. Hef raunar alið allan minn ald- ur þar nema aðeins einn vetrartíma, sem ég var á og allir krakkar gera til sveita. En af því að bærinn okkar liggur lika við sjó höfðum við kuðungana um- fram ýmsa aðra krakka til að leika okkur að. Það eru falleg barnagull. Ég tíndi þá í fjörunni heima og reyndi að raða þeim á ýmsa vegu. Árangurinn af sumu af því má sjá á sýningunni í Bankastræti. Eitthvað af því hef ég selt, einkum til gjafa handa útlendingum. Þessir munir virðast hafa orðið vinsælir. Annars hefur mér ekki komið til hugar að selja neitt af því sem ég hefi gert fyrr en nú. — Langt síðan þér lærðuð að vefa? — Ég hafði aldrei séð vef- stól á ævinni fyrr en ég kom í Staðarfellsskólann. Ég hafði raunar heyrt getið um þessi undratæki og oft langað til að sjá þau en ekki heppnazt það fyrr. Mig hafði líka langað til að læra að vefa. Og nú kann ég það, að ég held. Ég hefi mest ofið allskonar áklæði, dívanteppi, handklæði og fleira. Sýnis- horn af því er lika á sýning- unni minni. — Auk þess sem þér vefið og búið til ýmiskonar muni úr kuðungum bæði málið þér og saumið út. — Ég hef tr.lsvert fengizt við gobelinsaum á teppum svo og krosssaum. — En hvar hafið þér lært að mála? — Af fyrirmyndum, og svo eins og hugurinn býður mér hverju sinni. Ég hef að- allega fengizt við að mála blómamyndir á silki og ann- að tau. Hvernig mér hefur tekizt það læt ég aðra dæma um. — En hvar hafið þér lært að lita áklæðin sem þér vef- ið? — Það eru allt, eða mest- allt jurtalitir, sem ég bý til sjálf úr mosa úr fjöllunum og landinu í kringum mig og bæinn minn. Ég nota líka dálítið gulrótarblöð. Þau gefast vel í vissa liti. Svo sýð ég £>etta mismunandi lengi. — Hafið þér selt þessa listmuni yðar? — Það er fyrsta tilraunin sem ég geri til þess á sýn- ingunni núna í Bankastræti. Fram til þessa hefur mér Guðrún Einarsdóttir. aldrei dottið í hug að selja neitt af því sem ég hefi gert, nema fáeina hluti úr kuð- ungunpm, eins og ég sagði áðan. Ég veit heldur ekkert hvernig ég á að verðleggja þetta. Það er ekki svo auð- velt að verðleggja frístunda- vinnu sína. En aðrir hafa hjálpað mér til þess og lagt sitt mat á það eftir eigin geðþótta. Hvort það er rétt mat eða ekki er ég ekki fær um að dæma sjálf. Stærsta húsgagnaverzlun landsins býður yður: 9 gerSir svefnherbergissett 5 gerðir borðstofuhúsgögn 13 gerðir sófasett 11 gerðir sófaborð ■■■■■ nnnnr 7 gerðir skrifborð 7 gerðir eins og tveggja SVEFNSTÓLAR. ALLT I HANSASAMSTÆÐUNA. BARNARÚM. BARNAKOJUR. SKRIFBORDSSTÓLAR. STAKIR STÓLAR. AklsSi í 99 miimujiandi litum og gcrSum '{ ' i ik . 2 CSjí i m KJALLARINN KJALLARINN KJALLARINN I • r

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.