Tölvumál - 01.03.1981, Blaðsíða 3
‘tölvúmAl
3
FYRIRLESTUR BJÖRGVINS B. SCHRAM UM VERKEFNISSTJÓRN
Um 80 manns sóttu félagsfund Skýrslutæknifélagsins í Norræna
húsinu 24. febrúar sl, þar sem Björgvin B. Schram, for-
stöðumaóur kerfisdeildar Sambandsins, flutti fyrirlestur
um verkefnisstjórn (project management).
Björgvin lýsti i upphafi máls sins þeirri ótrúlega hröðu
þróun, sem oróið hefur á sviði gagnavinnslu í þann liðlega
hálfan annan áratug, sem liðinn er sióan tölvur fóru að
verða algeng tæki hér á landi.
Tölvuvinnsla, sem í fyrstu var oftast nær tiltölulega
krókalaus yfirfærsla verkefna frá einhverskonar bókhalds-
búnaöi yfir á tÖlvur, án þess að við eðli verkefnanna
eða tilgangi væri hreyft aó ráði, er nú óðum aó þróast
yfir i það aó veróa umfangsmikið stjórnunartæki og kjöl-
festa i stofnunum og fyrirtækjum, eða eins og Björgvin
nefndi það - samtvinnuð upplýsingakerfi.
Af þessu leiðir, aó tölvukerfi eru orðin gífurlega dýr í
framleiðslu og rekstri og geró þeirra tekur gjarnan fleiri
mannár. Allan undirbúning að geró tölvukerfa (verkefna)
þarf þvi að vanda mjög vel. Nýju tölvukerfi fylgir að
jafnaði meiri og minni uppstokkun á starfsskipulagi og
vinnuumhverfi - oft hvorttveggja rótgrónu. Margskonar
sjónarmið þarf að samræma. Ákvarðanir þarf aö sannprófa,
áóur en hafist er handa vió gerð tölvukerfis.
Þaö er hér, sem verkefnisstjórnin kemur til skjalanna.
Björgvin hefur áralanga reynslu i að kenna verkefnisstjórn,
sem starfsmaóur IBM. Nú starfar hann, eins og áður segir,
hjá Sambandi islenskra samvinnufélaga, þar sem hann hefur
skipulagt þessa hluti.
Mjög góður rómur var geróur aó erindi Björgvins, sem meóal
annars lýsti sér í fjölmörgum spurningum, sem fundarmenn
báru fram.
Fundurinn hófst um kl. 14.30 og honum lauk um kl. 17.
FULLBÓKAÐ A NÁMSTEFNUNA 14. APRÍL
Fullbókaó er á námstefnuna, sem Skýrslutæknifélagið efnir
til 14. april næstkomandi, um Jackson aóferöina vió forrita-
og kerfishönnun eóa "The Jackson Method (JSP) for program
and system design".
Skýrslutæknifélaginu þykir það leitt, að ekki munu allir
komast á námstefnuna, sem þess æskja, þar sem engar líkur
eru á að hún verói endurtekin í næstu framtíð.
Þótt svo sé komiö, að fullbókað er á námstefnuna og nokkur
biðlisti þegar myndaður, þykir okkur rétt aó biðja þá, sem
áhuga hafa á námstefnunni en ekki hafa þegar geft vart við
sig, aó gera þaó eigi aó síður (hringja í Óttar í sxma 86144).