Tölvumál - 01.06.1982, Qupperneq 14
RÁÐSTEFNAN "DATADAGUR '82"
Liólega 130 manns sóttu ráðstefnuna "Datadagur '82", sem
haldin var í Kristalssal Hótels Loftleiða föstudaginn
23. apríl 1982. Ráðstefnan hófst um kl. 13.30 og henni
lauk um kl. 17.30.
Ráóstefnuna hélt Skýrslutæknifélagið i samvinnu vió Nordisk
Dataunion, en það eru samtök skýrslutæknifélaganna í
Danmörku, Finnlandi, Noregi og Sviþjóó. Sjö fyrirlestrar
voru haldnir á ráóstefnunni og voru fyrirlesararnir frá
fyrrnefndu löndunum fjórum og einn íslendingur.
Ráóstefnuna setti dr. Jón Þór Þórhallsson, formaður Skýrslu-
tæknifélagsins. Sióan ávarpaði Matthias Á Mathiesen,
fyrrverandi forseti Noróurlandaráðs, ráðstefnuna. Hann
fór m.a orðum um mikilvægi nútima gagnavinnslutækni og,
norræna samvinnu i þvi sambandi. Á vegum Norðurlandaráðs
hefur t.d. verió stofnuð nefnd (det datatekneologiske ud-
valget), sem nú starfar undir formennsku Helge Seip, fyrr-
verandi ráðherra.
Aó hluta fór ráðstefnan fram i tveimur sölum samtimis.
Voru þá annarsvegar flutt þrjú erindi tengd skrifstofu
framtióarinnar og hinsvegar þrjú erindi varóandi tölvu-
notkun framtiðarinnar og nýjungar á þvx sviði.
Að þessum erindaflutningi loknum stjórnaði Björn Friðfinns-
son, fjármálastjóri Reykjavikurborgar, sameiginlegum fundi,
þar sem dregin voru saman og rædd ýmis þau atriði, sem fram
höfóu komið á ráðstefnunni.
Gjöf frá Nordisk Dataunion
Undir lok ráðstefnunnar kvaddi formaður Nordisk Dataunion,
Asbjörn Rolstadás, sér hljóós og færði hann Skýrslutækni-
félaginu fagran silfursleginn fundahamar að gjöf.
Á hamarinn er letraó (á islensku):
Meó kveðju frá NORDISK DATAUNION
Jón Þór Þórhallsson, formaóur Skýrslutæknifélagsins, tók
við gjöfinni fyrir hönd félagsins og þakkaói hana með
nokkrum orðum.
Sigurjón Pétursson, varaformaóur Skýrslutasknifélagsins,
þakkaói aö lokum starfsmönnum ráðstefnunnar fyrir góðan
undirbúning og öllum ráðstefnugestum fyrir þátttökuna og
sleit hann siðan ráðstefnunni. Vió það tækifæri notaói
hann að sjálfsögöu hinn nýja fundahamar.