Vísir - 23.12.1961, Blaðsíða 6

Vísir - 23.12.1961, Blaðsíða 6
6 VÍSIR Laugardagur 23. des. 1961 MALARI og konur Endurminningar Hús málarans. Endur- minningar Jóns Engiiberts eftir Jóhannes Helga. Set- berg, Reykjavík 1961. Meðal þeirra hundraða bóka, sem út koma á íslandi ár hvert, ber talsvert á æfisögum og end- urminningabókum, en satt að segja er lítill slægur í þeim flestum. Aðeins sárafáir sögu- manna koma sér að því að opna sig, vera hreinskilnir um sjálfa sig og samferðamenn sína. Einkum gera skáld og lista- menn lítið af því að taka sér penna í hönd og leysa frá skjóðunni. Það er þá ekki nema fyrir til- stilli mikils tilefnis, að við verðum nokkurs fleira vísari um þessa menn en birtist i listaverkum þeirra. Og nú seinni árin hefir talsverð vitn- eskja af þessu tagi rekið á fjör- ur lesenda með samtalsbókun- um svokölluðu, sem eru af- brigði blaðamennskunnar, en geta, þegar bezt lætur, orðið bókmenntir, blaðaviðtal þróast í bóksögu. En það er eins og um Jóns Engilberts önnur mannanna verk, ekki er sama hvernig á er haldið. Fyrsta skilyrðið er, að spyrj- andanum takist að skyggnast inn fyrir skrápinn á sögumanni — og færa síðan innan úr hon- um. Ein skemmtilegasta og ósér- hlífnasta bók þessarar tegundar er hér hafa komið út, er Hús málarans, sem Jóhannes Helgi færir í letur eftir að hafa spurt Jón Engilberts listmálara spjör- unum úr. Þó er bezt að taka það strax fram, að þeir félagar segja ekki allt af létta. Jafnber- sögull og málarinn er um flest, hlýtur lesandinn að sakna þess, hve fátt stendur þar skráð um súálfa köllun hans, lærdóm og listsköpun. Mest segir frá fyrstu sporunum á listbrautinni, brauð- stritinu, lífsþorstanum, gleði- stundunum og ótal ævintýrum skálda og listamannanna, sem lifðu saman súrt og sætt. Mörg snjöll mannlýsingin sprettur upp í þessum samræðum og meira að segja spakmæli lífs- reynds manns. Það sem ein- kennir málarann frá upphafi ræðu hans til enda, er að hann talar enga tæpitungu. En þrátt fyrir óþveginn vitnisburð sem margir þeir fá, er við sögu koma, þá er listamaðurinn jafnreiðubúinn að bera í bæti- fláka. Þótt hann þykist bæði vilja elska og hata, þá ber lítið á hatri til náungans í sögunni, miklu fremur virðist þar flest af sanngirni mælt og dreng- skap, þótt oft vaði á súðum. Málarinn læðist ekki þegj- andi fram niá því, sem að ofan ] er nefnt og við söknum í ræðu hans, listsköpuninni. Hann seg- ir við rithöfundinn: „Það sem ég hef sagt þér er aðeins kontúr- an í lífsvef mínum, hinn ytri veruleiki. Þá ævi mína sem skiptir máli er annarsstaðar að finna — í myndum mínum.“ En mörg er myndin listilega dregin í fáum dráttum í þessari bók þeirra Jóns og Jóhannesar. Af þeim, sem minnst koma við söguna, kemur mér í hug lýs- ingin á færeyska málaranum Mikines. Það er fáorð lýsing sem segir mikið og úr verður ó- gleymanleg mynd af listamann- inum. Hinsvegar verður tilfinn- anlega lítið úr þeirri mynd, sem hann gefur okkur af landa Mikinesar, skáldinu Heinesen, sem Jón hefir þó metið mikils og hlýtur að geta gætt meira lífi en hann gerir. Bretar eru að smiða brú mikla yfir Forth-f jörðinn í Skotlandi — skammt frá hinni gömlu, frægu Forth- brú. Þessi brú verður ætl- uð bifreiðum og spannar fjörðinn milli North- og South-Queensferry í West- Lothiau-sýslu. Hún verður lengsta hengibrú í Evrópu og fjórða lengsta í heimi, um hálfur þriðji kílómetri á lengd. Kostnaðurinn mun verða tæplega ..tveir mill- jarðar króna. — Ljósmynd arinn skreið aftur á bak inn í stálhólk mikinn til að ná .. þessari ..sérkennilegu mynd. Hús málarans er fágæt bók, málarans og íbúunum þar — hreinskilin, listavel sögð, ólg- og að koma öllu þessu á bók, andi af lífi. Málaranum ber að sem er nýstárleg og fallega úr þakka fyrir ræðuna svo langt garði gerð af útgefanda, sem sem hún nær, og rithöfundinum bókinni sæmir. fyrir hans listalýsingu á húsi G. B. SÆTUR ILMUR ÚR GÖMLUM SENDIBRÉFUM Þegar ég var ungur í Hólm- inum, var ein vinkona mín, yndisleg kona roskin, sem safn- aði grösum á sumrin, einkum ilmandi reyr, sem hún lagði í skúffur, þar sem hún geymdi föt og dúka. — Þýður ilmblær þessara angandi grasa barst svo út um stofuna í hvert skipti og hún opnaði einhverja skúffuna á dragkistunni sinni. — Það var eins og sólargeislar frá sumr- inu kæmu inn í stofuna um gluggarúðurnar, þó að þær væru hrímaðar. Mér er harla minnisstætt hvað andrúmsloftið varð þar hlýtt. Ég minnist þessa nú, þegar ég legg frá mér bókina „Konur skrifa bréf“, sem Bókfellsútgáf- an hefur gefið út, en Finnur Sigmundsson hefur valið efni til af mikilli smekkvísi. — Ég las hana í striklotu og var grip- inn sömu tilfinningu og þegar vinkona mín í Hólminum opn- aði dragkistuskúffurnar sínar fyrir áratugum. Svo að segja af hverri blaðsíðu síðu þessarar góðu bókar andar sætur ilmur frá hlýjum hjörtum göfugra hefðarkvenna. — Bréfin hafa öll gengið milli nánustu ætt- ingja og vina og eru svo einlæg og sönn, að það hlýtur að snerta hvern lesanda. — Oft eru þessar góðu konur í vanda staddar. Það sækja að þeim ýmsir erfið- leikar og sárar sorgir, svo að þær grípa til pennans, og tjá huga sinn fyrir þeim, sem þær treysta bezt allra manna, en allsstaðar kemur fram reynsla alls mannkyns, — trúartraustið og vissan um guðlega forsjón. Elztu bréfin eru rituð á þeim tíma, sem hvorki var til olíu- lampi eða rafljós á íslandi. Þau eru líka máske flest rituð að nóttu til, — eitt þeirra á sjálfa jólanóttina, og eflaust með fjaðrapenna við tólgar- kertaljós eða jafnv. við skímu frá grútarlampa í köldum her- bergjum. Maddama Guðríður í Oddgeirshólum segir frá því í bréfi til bróður síns, Finns prófessor Magnússonar í Kaup- mannahöfn, þegar Sigríður dótt- ir hennar var að sauma list- saum (skatteringu?) „Hún fekk ekki uppdráttinn fyrri en skammdegið og kuldinn var kominn, og fölnaði svo liturinn af andardrættinum hennar, því hann verður allur að hélu hérna í loftinu okkar í kuldanum á veturna. — Skyldi það ekki vera munur á aðstæðum heima- sætunnar í Oddgeirshólum í þá daga og nú eru, td. hér í bæ, þar sem stúlkumar sitja við sauma við dýrð rafljós- anna í herbergjum hituðum með heitu vatni, sem segja má, að spretti upp undan fót- um okkar. Eg ætla ekki að rekja neitt efni bréfanna, en þau eru okk- ur lærdómsrík á ýmsan hátt. og hver maður eykur sinn and- lega auð með því að lesa þau. —- Eg þakka útgefandanum fyrir þessa indælu bók, og ræð öllum til þess að lesa hana sér til sálubótar og skemmtunar. Oscar Causen. — Og svo megið þið eklci gleyma. þvi börn, að pabbi ykkar hefur sjálfur búið til aXlar jólagjafimar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.