Tölvumál - 01.03.1984, Blaðsíða 3
3
FÉLAG5NÁL
AÐALFUNDUR 1984
Aóalfundur Skýrslutæknifélags Islands veróur haldinn í
Norræna húsinu fimmtudaginn 22. mars 1984, kl. 14.30.
Fundarstjóri verður Klemens Tryggvason, hagstofustjóri.
DAGSKRA:
1. Skýrsla félagsstjórnar.
2. Féhiróir leggur fram endurskoðaða reikninga.
3. Stjórnarkjör. Ör stjórn ganga varaformaóur,
féhiróir og skjalavöróur, ásamt varamönnum.
4. Kjör tveggja endurskoðenda.
5. Ákveóin félagsgjöld fyrir yfirstandandi ár.
6. Tillaga um breytingu á félagssamþykkt.
7. önnur mál, sem upp kunna aö verða borin.
Tillögur um stjórnarkjör þurfa að berast stjórn félags-
ins eigi síðar en þremur virkum dögum fyrir aóalfund.
Stjórnin.
FÉLAGSFUNDUR
Aó loknum aóalfundarstörfum hinn 22. mars 1984 verður
settur félagsfundur. Þar mun Lilja ólafsdóttir, deildar-
stjóri, gera grein fyrir starfssemi NORDISK DATAUNION og
aðild Skýrslutæknifélags íslands aó samtökunum.
Eins og kunnugt er, þá gerðist Skýrslutæknifélagið aóili
að NORDISK DATAUNION (NDU) vorið 1982 og er Lilja Ólafs-
dóttir fulltrúi félagsins í framkvæmdanefnd NDU.
1 hléi, á milli aðalfundar og félagsfundar, veróur boóið
upp á veitingar.
Stjórnin.