Tölvumál - 01.03.1984, Blaðsíða 4
4 -
TILLAGA AÐ ÍSLENSKUH STAÐLI FYRIR 7 BITA SAHSKIPTAKÓÐA.
Staðalnefnd á vegum Skýrslutæknifélags íslands hóf störf í júlí 1981.
Nefndin skipti sér í þrjár undirnefndir strax á örðum fundi.
Lyklaborðsnefnd lauk störfum í nóvember 1981. Tillaga nefndarinnar varð
síðar, með smávægilegum breytingum, að íslenskum staðli, ÍST 125. 7 bita og
8 bita nefndirnar hófu ekki störf fyrr en í apríl 1983 og þá sem ein nefnd.
Fljótlega varð ljóst að erfitt yrði að skila tillögu að 8 bita staðli ef
ekki væri til íslenskur staðall um samskipti með 7 bita kóða. Var því
ákveðið að leggja allt kapp á að ganga frá tillögu um 7 bita samskiptakóða
og vinda sér síðan í átta bitana.
Tillagan sem hér liggur fyrir er að mestu byggð á tillögu sem birtist á
þessum vettvangi árið 1978. Ástæða þess er augljós, tillagan frá '78 hefur
verið það eina sem fyrirtæki og stofnanir hafa getað farið eftir varðandi
kóðun íslensku stafanna. Sú hefur einnig orðið raunin á að tillagan hefur
verið notuð sem staðall væri.
Til viðbótar hefur nefndin tekið mið af ISO staðli 2022 sem út var gefinn í
annað sinn árið 1982. ISO 2022 fjallar um aðferðir til að útvíkka táknróf 7
og 8 bita ISO staðla. í tillögunni er skilgreint táknróf G2 en úr því
táknrófi má sækja, með sérstöku stýritákni, stök tákn. Þá er í tillögunni
kveðið á um röð tákna við flutning breiðra sérhljóða.
Tillagan er lögð fram til umsóknar félagsmanna í Skýrslutæknifélagi
íslands. Er það von mín að hún fái faglega meðhöndlun og athugasemdum verði
komið á framfæri við nefndarmenn. Þeir eru:
Frosti Bergsson
Helgi 3ónsson
Baldur Pálsson
Kjartan Bjarnason
Bergur Dónsson
Arnlaugur Guðmundsson
Kristján Ó. Skaqfjörð (91) 24120
Reiknistofnun HI (91) 25088
Sparisjóðurinn í Keflavík (92) 2802
Micrótölvan sf. (91) 83040
Landsvirkjun (91) 86400
Örtölvutækni sf. (91) 11218
Nefndin mun nú væntanlega snúa sér að mjög aðkallandi verkefni, þ.e.
tillögu um 8 bita samskiptastaðal. Allir þeir sem eitthvað hafa til málanna
að leggja eru hér með vinsamlegast beðnir um að koma hugmyndum og skoðunum
sínum á framfæri við stjórn Skýrslutæknifélagsins eða staðalnefndina.
Tokum hondum saman um ad utryma svona vitleysu ur prentudu mali a Islandi!
Reykjavík 1984-02-27
Arnlaugur Guðmundsson
STAÐALL FYRIR 7 BITA SAMSKIPTAKÓÐA
1 INNGANGUR
1.1 Forsendur
Staðallinn er í samræmi við IS0 staðal 646, 7-bit coded
character set for information processing interchange, 1973-
07-01. Einnig er staðallinn í samræmi við IS0 2022,
Information processing - IS0 7-bit and 8-bit coded character
sets - Code extension techniques, 1982-12-15. Staðallinn er
enn fremur í samræmi við ÍST 125, LYKLAB0RÐ, 1982-09-15.