Vísir - 04.01.1962, Qupperneq 5
Fimmtudagur 4. janúar 1962
V í S I R
5
Bólusetning —
Framh. af 7. síðu.
aðra bólusetningu. Getur
nokkur ímyndað sér, að við
sem framkvæmum tilraun-
ina hefðum sjálfir látið
sprauta bóluefninu í okkur,
ef við hefðum haldið að
nokkur áhætta fylgdi henni.“
Það skal tekið fram, að
Björklund sprautaði sjálfur
í sig fyrsta skammtinum af
mótefninu.
En sú sprauta gerir hann
ekki ónæman fyrir gagnrýn-
inni, sem er oft svo hörð og
óvægileg í heimi vísindanna.
★
jQeilurnar milli þessa ó-
næmissérfræðings og
nokkurra kimnra vísinda-
manna í baráttunni gegn
krabbameininu eru ekki nýj-
ar. En fram til þessa hafa
þær farið fram á bak við
tjöldin. Nú koma þær fram
í dagsljósið.
í því sambandi verður að
athuga tvennt:
í fyrsta lagi, að mjög mik-
ið fjármagn er í krabba-
meinsrannóknum. Sænska
krabbameinsfélagið veitir
vísindamönnum mörg hundr-
uð þúsunda og milljónir til
rannsókna. Og vísindamenn-
irnir berjast um það hver
eigi að fá þessar fjárveiting-
ar hverju sinni. Baráttan er
alltaf hörð í heimi vísind-
anna og þeim mun harðari
verður hún sem um meira
fjármagn er að tefla.
í öðru lagi verður að gæta
þess, að allir menn eru
hræddir við krabbamein og
fylgzt er með því af ótta-
blandinni athygli, hvað er
að gerast í rannsóknum á
þessu sviði. Þannig skapast
almennt eftirlit með vísinda-
mönnunum framar en í
nokkrum öðrum rannsókn-
um. Vísindamennirnir lifa
því í vissri spennu frá al-
menningsálitinu.
★
| krabbameinsrannsóknum
Svíþjóðar hafa menn
skipzt í tvær andstæðar fylk-
ingar. Annar hópurinn styð-
ur Björklund, hinn er fjand-
samlegur honum. í kennara-
ráði Karolinsku stofnunar-
innar eru skoðanirnar skipt-
ar, deilurnar æsilegar og hat-
ursfullar. Þekktasti andstæð-
ingur Björklunds er prófess-
or Georg Klein einn viður-
kenndasti vísindamaður Svía
og próf.Torbjörn Casparsson,
sem hefir sín megin rektor
Karolinsku stofnunarinnar
Sten Friberg, sem að
vísu er sérfræðingur í
þessu efni, en mjög áhrifa-
mikill í sjórn og samtökum
heilbrigðismálanna.
Helztu stuðningsmenn
Björklunds eru prófessor
Sven Gard, maðurinn sem
framleitt hefir mænuveikis-
bóluefnið í Svíþjóð, — mjög
áhrifamikill vísindamaður og
próf. Sven Hultberg' sem er
þekktur fyrir rannsóknir sín-
ar á tóbaksreykingum.Þá var
Gunnar Olin forstöðumaður
sýklarannsóknastofnunarinn-
ar sem nú er nýlátinn stuðn-
ingsmaður Björklunds.
Það skal tekið fram, að
Sven Hultberg hefir endur-
tekið og sannprófað megin-
rannsóknir Bjöklunds og
komizt að sömu niðustöðu.
Vísindamenn í Bandaíkjun-
um hafa einnig fylgt for-
skrift Björklunds og sann-
prófað að kenningar hans og
tilraunaniðurstöður eru rétt-
ar.
En honum hefir einnig
mætt mótbyr. Sumt hef-
ir verið honum mjög and-
stætt. Úm tíma fekk hann
leyfi til að gera tilraunir á
Geislalækningastöðinni í
Sokkhólmi „Radium hem-
met“. En í þessum tilraun-
umfekk hannaðeins aðreyna
mótefni sitt á dauðdæmdum,
vonlausum sjúklingum. Fólki
sem útilokað var að hægt
væri að bjarga með þeim að-
ferðum, sem fram að þessu
hafa þekkzt. í nokkrum til-
fellanna hafði aðferð Björk-
lunds áhrif, er leikmaður
hefir lýst sem kraftaverki,
að fólkið hafi risið úr rekkju
og gengið heim til sín.
Vöktu þessi tilfelli mjög
mikla athygli meðal banda-
rískra vísindamanna á stóra
krabbameins-þinginu 1960.
En í öðrum tilfellum varð
árangurinn þveröfugur og
hafa andstæðingar Björk-
lunds bent á það, að aðgerð-
ir hans muni hafa orðið til
að flýta dauðanum.
Þessi ásökun kom fram í
mjög harðorðum greina-
flokki, sem prófessor Sten
Friberg skrifaði í sænska
læknaritið. í þeim greinum
dregur hann í efa hæfileika
Björklunds sem vísinda-
manns. Tilraunum þessum á
geislalækningastöðinni var
hætt skyndilega og lækni
þeim ,sem var starfandi við
hana og bar ábyrgð á tilraun-
i
unum ásamt Björklund var
sagt upp starfi.
★
garáttan um stöðu Bertils
Björklunds sem vísinda-
manns hófst nú. Hann hefir
enga fasta stöðu og efnahag-
ur hans er ótryggur. Aðstaða
hans til rannsókna er og erf-
ið, þar sem hann er ekki
fastráðinn við neina rann-
sóknarstofnun. Blaðið Stock-
holms-Tidningen hóf því ný-
lega baráttu fyrir því, að
honum yrðu sköpuð skilyrði
til hinna merkilegu rann-
sókna. Þær væru svo mikil-
vægar að það bæri að harma
það, ef hann yrði að flæm-
ast til Bandaríkjanna.
Prófessor Hultberg studdi
Björklund og meðmæli bár-
ust frá 20 kunnum vísinda-
mönnum í Bandaríkjunum.
Var síðan sótt um að sérstök
rannsóknastaða yrði stofnuð
fyrir Björklund við Karol-
insku stofnunina, — en
stjórn hennar neitaði alger-
lega þeim tilmælum og
sagði, að Björklund yrði eins
og aðrir að sækja um stöðu,
sem væri opinberlega veitt
og aðrir gætu sótt um.
Björklund sótti 'nú um
stöðu við Karolinsku stofn-
unina, en það er athyglisvert,
að gagnumsækjandi hans er
Holger Lundback, svarnasti
fjandmaður hans, sem hefir
haldið uppi svæsnustu árás-
umá bólusetningartilraunina
núna. líann og fleiri and-
stæðingar Björklund gerðu
jafnvel tilraun til að stöðva
bólusetningar-tilraunina. —
Þeir skrifuðu stjórn heil-
brigðisráðs Svíþjóðar og
héldu því fram að tilraunin
væri lítils virði en stórhættu-
leg. En formaður heilbrigðis-
ráðsins, Arthur Engel, tók
skarið af og - lýsti því yfir,
að jafnvel þótt erfitt væri
að dæma fyrirfram um gildi
tilraunarinnar, væri um svo
stórkostlega þýðingarmikið
mál að ræða fyrir allt þjóð-
félagið, að rétt væri að leyfa
Björklund að framkvæma
hana.
Þannig stendur málið nú,
en deilurnar munu vafalaust
halda áfram meðal vísinda-
manna óvægilegar og/haturs-
fullar sem fyrr.
í gærkvöldi
var f y r s t a
kvöldvakan á
nýja árinu og
var sú með
allra sæmileg-
asta móti. —
Tveir frásögu-
þættir voru
fluttir, og talaði Snorri Sig-
fússon, fyrrv. námsstjóri fyrst
um séra Magnús Einarsson á
Tjörn. Magnús var uppi á 18
öld og var hann bæði forspár
og skyggn, en auk þess vel hag-
mæltur. Sagði Snorri af hon-
um nokkrar sögur og fór með
vísur og gerði þetta all vel, svo
af varð fróðlegur þáttur.
Bergsveinn Skúlason flutti
fyrri hluta frásöguþáttar frá
Höskuldseý, en hann fór út í
eyjuna í sumar. Sagði hann frá
nafngift eyjarinnar, sem og
nærliggjandi skerja og boða, og
var frásögn hans ekki ó-
skemmtileg. Kom hann víða
við, enda á hvert sker á Breiða-
firði sína sögu að segja og það
langa, og fór svo, að í þessum
hluta gerði Bergsvéinn ekki
meira en að komast út í eyjuna,
en 1 seinni hlutanum mun hann
þó væntanlega fræða okkur eitt
hvað um sjálfa Höskuldsey.
Auk þessa flutti kvöldvakan
okkur fornritalestur Helga
Hjörvars og íslenzka tónlist
eftir Sveinbjörn Sveinbjörns-
son.
Eftir seinni fréttir las Einar
Guðmundsson, kennari ind-
verskt ævintýr, „Sagan um pól-
stjörnuna“, og hafði hann sjálf-
ur annazt þýðinguna. Þetta
var hvorki betra né verra en
gerist um ævintýr, en mig undr-
ar það, hvernig slíkt efni hefur
sloppið við að lenda í barna-
tímanum, því þar á það heima
og varla annars staðar. Einar
las með nokkuð sérstæðum
hætti og áherzlum, en þýðing-
in var gallalaus.
Hljómlistin var ekki mikil,
en vel valin. Fyrir kvöldvök-
una voru leikin létt lög á orgel,
en eftir ævintýrið var fluttur
hnotubrjótur Tjaikovskis.
Þórir S. Gröndal.
undruð krókna
á Indlandi.v
Verkstjóri
óskast í frystihús Norðanlands.
Uppl. í SjávarafurSadeild S.f.S. Sambands-
húsinu. Sími 17080.
Matreiðsiumaður
eða kona óskast
Undanfarna daga liefir
mikil kuldabylgja geisað í
norðurhéruðum Indlands og
Salemið
og síminn.
Símastjórnin í Lundúnum
tilkynnti í fyrradag, að henni
hefði tekizt að finna Iausn
dularfulls máls, sem síma-
notandi nokkur hafði kvart-
að yfir um all-langt skeið:
Þegar einhver tók í skol-
keðjuna á salerninu á heim-
ili mannsins, hringdi síminn
— og yfir þessu kvartaði
maðurinn að sjálfsögðu. —
Starfsmannablað pósts og
síma gaf í fyrradag út þá
skýringu, að titringurinn,
sem stafaði af vatnsstreym-
inu úr salerniskassanum,
hafi komið af stað titringi í
bjöllu símans, mvo að hún
hringdi.
hófust kuldarnir á jólmium.
Geysikaldir vindar hafa
komið norðan af tíbezku há-
sléltunni, og menn eru að
sjálfsögðu ekki við slíku
búnir í hinu heita Indlandi.
Um 1800 manns hafa frosið í
hel undanfarna viku, flestir
í Uttar Pradesh-fylki, þar
sem 1300 manns hafa krókn-
að cn 500 í grannfylkinu,
Bihar.
Smyg'mál —
Frh al 6 síðu:
andi frá Kaupmannahöfn. Hún
var spurð um tollskyldan varn-
ing við komuna og kvaðst hafa
eina flösku áfengis meðferðis,
en er ferðataska hennar var
opnuð, reyndust vera í henni
þrjár flöskur. Þá vildi tollvörð-
ur fá að líta í handtösku kon-
unnar og sá fúlguna, sem 'er um
hálf sjöunda milljón íslenzkra
króna.
Sendisvehm
GILDASKAUNN
Aðalstræti 9, sími 12423.
óskast að Lyfjaverzlun ríkisins.
Umsækjendur komi til viðtals á skrifstofuna,
Hverfisgötu 4—6, föstudag 5. janúar kl. 10—12.