Vísir - 04.01.1962, Page 7

Vísir - 04.01.1962, Page 7
 v.%%v,v.v-v-v.v.v.v.%v.v.v.%v.v.v.v.v.v.v-w jr Rétt fyrir jólin birti Vísir frétt, þar sem skýrt var frá því að hafin væri í Svíþjóð bólusetning gegn krabba- meini. Það var að vísu skýrt tek- ið fram að hér væri um til- raunabólusetningu að ræða. Samt vakti fregnin mikla athygli. Það væru vissulega stærri tíðindi en allar aðrar heimsfréttir ársins, ef það tækist að finna nothæft bóluefni gegn þessum ægi- lega meinvætti, — krabba- meininu. Eftir að aðrir sjúk- dómar og farsóttir hafa ver- ið sigraðar hefir krabba- meinið sífellt verið að færa sig upp á skaftið og er nú tvímælalaust mesta böl og plága mannkynsins. Flestir núlifandi menn eiga vini og vandamenn, sem hafa orðið þessum hræðilega sjúk- dómi að bráð. Enginn getur verið öruggur um sig og liættan ágerist með reyking- um og atómsprengjum. Vísir hefir því aflað sér nánari fregna af tilrauna- bólusetningunni í Svíþjóð. Blaðið telur skylt að veita lesendum sínum beztu upp- lýsingar um slíkan viðburð, en vill jafnframt vara menn við of mikilli bjartsýni. Hin umrædda tilraunabólusetn- ing í Svíþjóð gefur nokkrar vonir, en hún er þó mjög um- deild og sumir sérfræðingar telja að lagt hafi verið í of mikla áhættu. ★ jþað er ekki ofmælt að segja að fréttin um krabba- meinsbólusetninguna hafi borizt eins og elding um allan heim, Gat það verið, spurðu menn, að loksins væri von til þess að sigra mætti hræðilegasta sjúkdóm heim- ins? Gat það verið, að þeim yrði gefið líf, sem í dag eru dauðadæmdir? Höfðu vísind- in hér unnið sinn stærsta sigur? Maður sá sem stóð fyrir þessum tilraunum var sænski ónæmissérfræðingur- inn, Bertil Björklund. Þetta Hér sést Bertil Björklund á tilraunastofu sinni í Stokkhólmi. Hann er umdeildur vís- indamaður og hefur ekki fengið fasta stöðu. Merkileg tilraun en umdeild i r Bertil Björklund sprautaði sjálfan sig fyrst með tilrauna- bóluefninu, til að sýna að það væri hættulaust. er ungur vísindamaður, fá- málugur og framgjarn í fræðigrein sinni og hefir oft verið umdeildur. Heima í Svíþjóð haf^ menn efast um að rétt væri að eyða fé í til- raunir hans. En fremstu sér- fræðingar í Bandaríkjunum telja að hann sé á réttri leið. Þess vegna hefir mikill hluti tilraunakostnaðar hans verið greiddur af Bandaríkja- mönnum. Þegar stórfréttin um krabbameinsbólusetninguna fyllti forsíður sænsku dag- blaðanna, varð Bertil Börk- lund sjálfur fyrstur til að gera athugasemd við frétta- burðinn og taka það skýrt fram, að menn mættu ekki gera sér of háar vonir um árangur. Hér væri aðeins um tilraun að ræða. En fréttin hefir samt vakið bjartsýni manna, m. a. vegna þess, að það er staðreynd, að Björk- lund hefir unnið bug á krabbameinsfrumum með mótefni sínu, það er enn- fremur staðreynd að tilraun- ir hans á dýrum hafa heppn- azt, en nú átti að hefja til- raunirnar á mönnum. Björklund bað menn að gæta varúðar. „Eg hefi ekki enn fundið neitt meðal gegn krabbameini. Aðgerðir mín- ar núna eru aðeins tilraun á heilbrigðu fólki, víðtæk vís- indaleg tilraun. Ef hún heppnast vel getur hún vísað veginn fram á við, hjálpað vísindunum að komast inn á rétta braut.“ ★ gólusetningartilraunin hófst 18. desember. Tilrauninni og rannsóknum í sambandi við hana á ekki að ljúka fyrr en í ágústlok 1962. í þessari fyrstu lotu verða 100 manns bólusettir með mótefni Björk lunds, en 20 manna hópur til viðbótar fær aðeins saltvatns- upplausn og mun enginn þannig vita með vissu, hvort sprautað hefir verið í hann bóluefni eða saltvatni. Eftir að þessum fyrsta á- fanga hefir verið lokið, á næsti áfangi að hefjast með bólusetningu 1000 manns, síðan 10.000 manns og síðan kannski .... Enginn hefir lagt meiri á- herzlu á þetta orð „kannski“ en sjálfur Bertil Björklund. En varúðarorð hans hafa komið að litlu haldi. Sænska sjónvarpsstöðin hefir í tilefni fréttarinnar flutt þætti um krabbamein og þar hafa á- horfendur horft á krabba- meinssellurnar deyja í mót- efni Björklunds, að vísu í til- raunaglasi og að vísu í kvik- mynd, en það er sama, — þessar sýningar hafa vakið mikla athygli. Vinsældir Björklunds hafa aukizt stórlega síðustu vikur, en þó verður að meta það við hann, að sjálfur hefir hann ekki reynt að trana sér fram. En þegar fréttin spratt upp fekk hann engan frið fyrir blöðunum og hann hefir ætíð viljað leggja áherzlu á það, að hann geti ekki unnið neitt kraftaverk, hann sé aðeins vísindamaður, sem reyni að vinna verk sitt af samvizku- semi. ★ Jgn það eru fleiri vísinda- menn til, — og þeir eru ekki allir sammála Björk- lund. Daginn eftir að bólu- setningin hófst byrjuðu þeir gagnárás sína. Prófessor Holger Lundbáck forstjóri sýklarannsóknastofu Sví- þjóðar gaf út tilkynningu, þar sem sagði m. a. „.... Eg styð ekki þær tilraunir með bólusetningu gegn krabbameini, sem nú hafa verið hafnar.“ Andstæðingar Björklunds segja, að hann hefði átt að framkvæma vissar undir- búningsrannsóknir áður en sjálfar tilraunirnar hæfust. Eða í stuttu máli; „Björklund hefir flýtt sér of mikið og ekki viðhaft nægilega vís- indalega nákvæmni og varúð við rannsóknir sínar. Á slíku mætti vissulega byggja gagn- rýni. En gagnrýnin getur einnig byggzt á öðrum for- sendum og ekki eips fögrum, að því komum við síðar. Björklund svarar; „Við höfum sannað með eigin rannsóknum og aðrir hafa sannprófað þær, — að tilraun okkar fylgir ekki meiri áhætta fyrir þá sem bólusettir eru, en við hverja Framhald á bls. 5 Fimmtudagur 4. janúar 1962

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.