Vísir - 13.01.1962, Blaðsíða 16
VISIR
Laugardagur 13. janúar 1962
Metafli íslendinga 1961
Greinar
Ingstads
í DAG hefst í Vísi greinar-
flokkur eftir norska heim-
skautafarann Helge Ingstad,
þar sem hann lýsir könnun-
arferð sinni um Lárens-flóa
og Nýfundnaland sl. sumar,
en ferð þeirri lauk eins og
alþjóð er kunnugt með því
að hann fann athyglisverðar
húsarústir á norðurenda Ný-
fundnalands, sem hann rann
sakaði og telur nú vafalaust
að séu leifar af byggð nor-
rænna manna á Vínlandi.
Það cr enn ekki vitað, hve
margar greinarnar munu
verða, því að Helge Ingstad
er enn að skrifa þær. Vísir
fagnar því að fá nú tæki-
færi til að birta þessar
greinar, sem íslenzkir lesend
ur munu vafalaust lesa með
mikilli athygli. Hvcrri grein
munu fylgja nokkrar ágæt-
Helge Ingstad að leggja af stað í könnunarferð sína.
ar Ijósmyndir sem Erlingur
Brunborg, sonur Guðrúnar
Brunborg tók, en hann var
með í ferðinni.
Greinarnar sem kallast „l|
kjölfar Leifs heppna" munu,
birtast vikulega í laugar-
dagsblaði Vísis.
1961 eitt mesta umferða-
slysaár, sem um getur.
Á ÁRINIJ sem var að líða urðu
fleiri árekstrar í Reykjavík og
nágrenni hennar en dæmi eru
til áður, eða á 3. þúsund talsins.
í þessari tölu eru þó aðeins
þeir árekstrar sem koma til bók
unar hjá umferðardeild rann-
sóknarlögreglunnar, samt að
undanteknum þeim sem ekki
verður uppvíst um, svo sem í
þeim tilfellum þegar ekið er á
kyrrstæða bíla að nóttu til og
„stungið af“ o.s.frv. þeir eru
ekki taldir þarna með.
I Þá er hitt og vitað mál að
fjöldi árekstra fer beint til bók-
unar hjá tryggingafélögunum
og koma aldrei til kasta lög-
reglunnar. Heildartala þeirra
árekstra er enn ekki fyrir hendi
og þar af leiðandi heldur ekki
yfirlit yfir tjón af völdum á-
rekstra, sem orðið hafa á s. 1.
ári. Það er þó af öllum aðilum
talið verða mun hærra en á ár-
inu 1960.
Árið 1960 sem var „hátt“ á-
rekstrarár í bókum lögreglunn
ar urðu árekstrarnir í Reykja-
vík og nágrenni 1904, eða nærri
140 færri, heldur en á sl. ári.
Þegar þess cr hinsvegar gætt,
að bifreiðum í bænum hefur
fjölgað um mörg hundruð á ár-
inu, er þessi aukning á árekstr-
um e.t.v. ekki óeðlileg, enda
þótt hún sé óæskileg. Þá ber
þess og að geta að veðráttan og
ökuskilyrðin voru hagstæðari
1960 heldur en 1961, Það hefur
mikið að segja.
Samkvæmt bókunum rann-
sóknarlögreglunnar hafa um-
ferðarslys á sl. ári orðið 246
talsins í Reykjavík og nágrenni
þar af 6 dauðaslys, eða helm-
ingi fleiri en árið áður. Hæzti
slysamánuðurinn var desember
með 34 bókuð slys, en fæst í
júní, aðeins 12.
í þessari upptalningu er þó
langt frá að öll kurl komi til
grafar, því í mörgum tilfellum
er lögreglunni ekki gert aðvart
um slys, heldur farið beint
með hina slösuðu til aðgerðar í
slysavarðstofunni.
Framh. á bls. 5
SíldarafII bætti upp
minni þorskafia.
Fiskimálastjóri Davíð
Ólafsson flutti í fréttaauka
ríkisútvarpsins í gær-
kvöldi, yfirlit yfir afla-
brögð og útgerð lands-
manna á nýliðnu ári. Gat
hann þess m.a. að heildar-
aflinn hefði 1961 orðið
meiri en nokkurt annað ár
í sögu landsins, og hér eru
það hinar óvenjulegu síld-
veiðar sem ráða úrslitum.
Heildaraflinn varð alls um
630.000 tonn, og er hlut-
ur sildarinnar 317.000
tonn.
Yfirlit fiskimálastjóra var
fróðlegt og þó flutningur þess
tæki ekki langan tíma, vék
hann að ýmsum helztu málum
er snertu útveg landsmanna.
Sagði Davíð Ólafsson m.a. að
hið nýstárlegasta við fiskveiðar
landsmanna á árinu, hafi verið
hinar stórfelldu síldveiðar hér
syðra með nót. — Sagði hann
að leita yrði allra ráða til þess
að hagnýta síldina sem allra
bezt, og gat þess, að sennilega
myndu einhverjir togarar
jafnvel taka upp síldveiðar, þar
eð hin nýja veiðitækni hefði
opnað þessa möguleika. Er
hann ræddi málefni togaraút-
gerðarinnar, lýsti hann stutt-
lega þeim mikla vanda sem að
henni steðjar í dag. Taldi hann
að afli togaraflotans hefði
minnkað úr 113,000 tonnum,
árið 1960 niður í 80,000 tonn
Þorskafli bátaflotans á árinu
1961 varð alls um 230.000 tonn,
en var 261,000 árið þar áður og
því um 10 prósent minni afla
þar að ræða. Til þess liggja
ýmsar ástæður, tregur afli og
vinnustöðvanir á flotanum.
Isl. söngvari
á framabraut.
Guðmundur Guðjónsson
söngvari sem Reykvíkingum er
að góðu kunnur fyrir ágætan
söng hin síðustu árin, m. a. úr
óperum, hefur nýlega verið ráð-
inn til að syngja hlutverk
Alfredo í „LaTraviata“ eftir
Verdi við söngleikahúsið í Ár-
ósum. Flutningur óperunnar
hefst í byrjun febrúar n. k.
Guðmundur Guðjónsson var
áður við söngnám hjá ítalska
söngkennaranum Vincenzo
Maria Demetz hér í Reykjavík,
en Demetz telur Guðmund búa
STOFNAÐ FULLTRÚARÁD SJÁLF
STÆÐISFÉLAGA I MÝRASVSLU.
Þann 6. desember s.l. var
haldinn stofnfundur fulltrúa-
ráðs Sjálfstæðismanna í Mýra-
sýslu að Hótel Borgarnesi í
Borgarnesi. Ásgeir Pétursson,
sýslumaður setti fundinn og
stjórnaði honum, en fundarrit-
ari var Björn Arason, kennari.
Á fundinum var mættur Þor-
valdur Garðar Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins. Hélt hann ýtarlega
ræðu u-m skipulag og starfsemi
Sjálfstæðisflokksins með sér-
stöku tilliti til Vesturlands-
kjördæmis. Voru síðan umræð-
ur um mál þessi og tóku til
máls Ásgeir Pétursson, sýslu-
maður, Friðrik Þórðarson,
kaupmaður og Björn Arason,
kennari.
Síðan voru samþykkt lög
fyrir fulltrúaráðið og eftirtaldir
menn kjörnir í stjórn: Ásgeir
Pétursson, sýslumaður, Bjarni
Helgason, garðyrkjumaður,
Varmalandi og Jón Guð-
mundsson, bóndi, Bóndhól. í
varastjórn voru kosnir Þorst.
Sigurðsson, , Brúarreykjum,
Sigursteinn Þórðarson, Borgar-
nesi og Helgi Helgason, Þurs-
stöðum. Sjálfkjörnir í stjórn
fulltrúarráðsins eru formenn
Sjálfstæðisfélaganna í Mýra-
sýslu þeir Friðrik Þórðarson,
kaupmaður og Helgi Ormsson,
rafvirki.
Fyrir stofnfundi fulltrúa-
ráðsins var haldinn sama dag
félagsfundur í Sjálfstæðisfélagi
Framh. á bls. 7.
Guðmundur Guðjónsson,
yfir miklum hæfileikum og
hvatti hann til framhaldsnáms
erlendis.
í haust hlaut Guðmundur
þýzkan styrk til söngnáms og
stóðst með ágætum þau prói
sem hann varð að ganga undir.
Hefur hann verið við nám !
Köln frá því í haust.
í Köln hlustaði danskur
Framh. á bls. 5.
Heimdallur.
Klúbbsfundur verður kl.
12,30 í dag á venjulegum
stað.
Stjórnin.