Vísir - 19.01.1962, Side 1

Vísir - 19.01.1962, Side 1
Samiðum Ber lín í sumar? Kennedy spáði því í gær, er liann lagði fjárlagafrumvarpið fyrir þingið, að samkomulag næðist um Berlín í júní, en Berlínardeilan var einnig rædd af Dean Rusk utanríkisráð- herra, sem er ekki eins bjart- sýnn. Hann ræddi við fréttamenn í gær og svaraði m.a. fyrirspurn varðandi Berlínarmálið. Hann kvað það óbreytt, að hættur væru yfirvofandi meðan málið væri óleyst, og afstaða Sovét- ríkjanna væri óbreytt. Það bæri þó að vekja athygli á því jafnframt, að afstaða Sovétríkjanna hefði þó ekki harðnað. Hann kvað ákvörðun- ina um, að flytja burt skrið- drekana bandarísku frá borgar- mörkunum í Berlín hafa verið hernaðarlega en ekki stjórn- málalega, og hefði sú ákvörðun verið tekin „á staðnum“. Hann kvað viðræðurnar milli Thomp- sons og Gromikos utanríkisráð- herra í Moskvu hafa leitt í ljós óbreytta afstöðu, en viðræðum yrði haldið áfram til þess, að finna grundvöll til samkomu- lagsumleitana um lausn. Allt á kafi í i fönn nyrSra. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í gærmorgun. Norðanlands hefir verið nær stöðug snjókoma og hríðarveð- ur síðustu dægrin. Svo þung- fært er orðið á vegum úti að það eru ekki nema stærstu og aflmestu bílar sem komast leiðar sinnar. í fyrradag og fyrrinótt var mjög mikil snjókoma, en í morgun var stytt upp. Frost var þá 3 stig á Akureyri. Örlitla uppstyttu gerði snöggvast í Enn unnið við Skjaldbreið. í morgun var enn unnið að því að þétta botninn í strand- ferðaskipinu Skjaldbreið, vest- ur í Stykkishólmshöfn. — Var búið að steypa í rifuna stjórn- borðsmegin við kjölinn og verið að þétta bakborðsmeginn. Lá ekki ljóst fyrir í morgun hvenær því verki yrði að fullu lokið og skipið gæti haldið til Reykjavíkur. gær og þá kom flugvél hingað frá Reykjavík. Með henni fóru um 40 manns frá Grenivík til atvinnuleitar í verstöðvum syðra. Mestmegnis voru það karlmenn, en einnig nokkrar konur. Vegna ófærðarinnar, sem komin er hér nyrðra, hafa mjólkurbílar ekki komizt úr öllum sveitum. T. d. er gersam- lega ófært inn í Öxnadal og ekki hefir heldur borizt mjólk úr Fnjóskadalnum. Engir bílar fara sem stendur um Fnjóska- dalsmynni sökum snjóflóða- hættu, en í dag átti að reyna að brjótast með „trukk“ og ýtu yfir Vaðlaheiði til að flytja mjólk til Akureyrar. ,í gærkveldi og nótt gekk norðanveðrið niður svo að nokkrir bátar, sem ætluðu á vertíð suður, en ekki hafa komizt sökum veðurofsa, lögðu í nótt af stað. Ólafsfjarðarbátar, sem leit- uðu vars í Eyjafirði á dögunum, lögðu einnig heim til sín í nótt. Hafa Ólafsfjarðarbátar aðeins getað róið þrisvar sinnum frá áramótum, en aflað vel þau fáu skipti, sem gefið hefir. Valið í hlutverk „My Fair Ladf i dag. ” Sjá einnig viðtal bls. 5. Nær fullvíst er nú tal- ið aS 22ja ára dóttir Einars Kristjánssonar óperusöngv- ara, Vala Kristjánsson, er starfar sem flugfreyja hjá Loftleiðum verði valin til að fara með hlutverk Elísu í söngleiknum My Fair Lady. Samkvæmt upplýs- ingum Þjóðleikhússtjóra í morgun verður endanleg ákvörðun tekin eftir æf- ingu í dag, sem hefst í Þjóðleikhúsinu kl. 1,30. Þjóðleikhússtjóri var ófáan- legur til að segja Vísi í morg- un hver yrði „My Fair Lady“, hann viðurkenndi þó að Val- gerður væri meðal þeirra stúlkna sem prófaðar væru og ætti vel við í hlutverkið. Hann kvaðst myndi halda blaða- mannafund, þegar þetta hefði verið endanléga ákveðið. Þá tók Þjóðleikhússtjóri fram j að ekki væri komið að því að ' söngleikurinn yrði fluttur, þótt leikstjórinn Sven Aage Larsen væri kominn, því að það væri gríðarmikið verk að æfa hann og koma upp hinum skrautlegu leiktjöldum. Verður hann sýnd- ur í fyrsta lagi í lok marz- | mánaðar, sagði Guðlaugur. ,Yfir aflatjóni...' NIÐRI á togarabryggjunum er eðlilega mikið rætt um erf- iðleika togaranna, en ofan á fiskileysi bætist, að það sem af er þessum mánuði hefir verið svo stormasamt út af Vestfjörð- um að með fádæmum má telja. Að sjálfsögðu hafa menn ekki á takteinum neinar öruggar tölur um aflabrögðin fyrir vest- an í þessum langvinna veðra- Framh. á bls. 5.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.