Vísir - 19.01.1962, Síða 5
Föstudagur 19. janúar 1962
V 1 S 1 R
5
Hér erum við með myndir
frá Astralíu. Fuglinn heitir
Kookaburra eða hláturfugl
og er eitt þeirra dýra, sem
finnast ékki annars staðar í
heiminum. Skelin við hlið-
ina á honum, sem cinnig
finnst við strendur Astralíu,
hefir fengið nafn af fuglin-
um og heitir Kookaburra —
eða hláturfuglsskel.
Góð veiði í morgun.
MILLI kl. 5—6 í morgun gaf
síldin sig loks til vestur undir
Jökli og voru þar allmörg skip.
Eru um 7600—7700 tunnur síld-
ar væntanlegar hingað til
Reykjavíkur síðdegis í dag.
Mun verulegt magn af síldinni
fara í togara.
Sjómennirnir segja að síldin
sé mjög sæmileg. Svo snögglega
kom síldin upp, að nokkrir bát-
ar urðu fyrir tjóni á netum.
„Gaman væri
með dóttur Einars
vmna
Stutt samtaB við Svená
Aage Larsen.
Svend Aagc Larsen leikstjóri
er kominn til landsins tíi að
setja á svið og stjórna söng-
leiknum My Fair Lady, sem
væntanlega verður frumsýndur
í Þjóðleikhúsinu £ marz. Frétta-
maður Vísis hitti leikstjórann í
morgun sem snöggvast að máli
á Hótel Borg, þar sem hann býr.
— Þér eruð orðinn kunnug-
ur öllum hnútum þessa söng-
leiks. Hvað hafið þér stjórn-
að honum víða?
— Reykjavík verður sjöunda
borgin. Fyrst setti ég hann upp
í Stokkhólmi, þá í Kaupmanna-
höfn, Rotterdam,' Amsterdam,
Haag og síðast í Vestur-Berlín.
Þar er leikurinn nú í fullum
gangi með unga leikkonu, Kar-
in Hubner, í hlutverki Elizu.
— Og hér í Reykjavík eruð
þér ekki ókunnugur?
— Mér er alltaf sérstök á-
nægja að koma hingað, hef ver-
ið hér þrisvar áður og sett á
svið í Þjóðleikhúsinu „Sumar
í Týról“, „Kátu elckjuna“ og
„Kiss me Kate“.
— Takið þér nú til óspilltra
málanna við æfingar?
— Fyrst er nú að velja í að-
alhlutverk?
— Já, er ekki búið að velja
Valgerði í hlutverk Elizu?
— Það er alls ekki búið að
ákveða það og verður ekki gert
fyrr en í dpg. Ég get ekkert
sagt yður um þetta fyrr. Það
verða kölluð saman blöðin þeg-
ar ákvörðun hefur verið tekin.
Annars var gaman að hitta ung-
frú Valgerði, þessa ungu og lag-
legu stúlku meðal þeirra fáu
víslnda;
fundið nýjan
málm, stisovít í gíg eftir
loftstein í Arizona. í sama
gíg fannst og annar málmur,
kóesít, fyrir rúmu ári.
★
Affatjón ~
Framh. af 1. síðu.
ham, en nefnd hefir verið tala
20 tonn, sem meðalafli hjá tog-
urunum það sem af er þessum
mánuði.
Togararnir hafa orðið að
liggja í vari dögum saman og
þess munu dæmi .að aflinn hafi
i beztu tilfellum, vegna frátafa,
komizt upp í tonn á dag eða
þar um bil.
Margir togaranna hafa orðið
hart úti í þessum veðraham,
bæði •'Reykjavíkurtogarar og
Akureyrartogararnir.
Allmargir bátar höfðu verið
suður í Miðnessjó, en af þeim
var allt tíðindalaust, sagði
Grandaradíó í símtali við blað-
ið í morgun.
Bátar, sem eru væntanlegir
hingað í dag, eru þessir: Run-
ólfur 700 tn., Víðir II 1000.,
Bjarnarey 650, Guðmundur
Þórðarson 700, Arnfirðingur
450, Halldór Jónsson 1300—
1400, Björn Jónsson 250, Pétur
Sigurðsson 1000—1100, Jón
Trausti 700, Rifsnes 350, Leifur
Eiríksson 250 og Víðir SU 500.
Best ab
auglýsa í
Vísi
Áskriftasími Vísis
er 1-16-60
Ófriósemlsföflur
seldar í lyfjabúðum*
Sven Aage Larsen.
Nú er fyrir nokkru farið
aS selja í lyfjabúðunum í
Reykjavík töflur, sem veita
konum tímabundna ófrjó-
semi. Er hér um tvær teg-
undir að ræða, aðrar amer-
ískar töflur Enovid, hinar
V^estur-þýzkar og kallast
'\novlar. Þær eru aðeins
'eldar gegn lyfseðlum.
Báðar þessar töflur munu
vera með líku efni, það er
hormón, sem stöðvar 'egglos hjá
konunni. Tekur konan fyrstu
töfluna inn á fimmta degi og
síðan tuttugu daga í röð. Mikill
munur er á verði á amerísku
líklegu til að takast þetta hlut- Þjóðleikhúsinu. Það væri bara
verk á hendur. Faðir hennar er gaman að fá að vinna nú með
góðkunningi minn, Einar Kristj- þessari fallegu dóttur hans.
ánsson óperusöngvari, og hann Við sjáum til og hittumst á
söng einmitt í einni óperett- blaðamannafundinum á morg-
unni, sern ég stjórnaði hér í,un.
töflunum og þeim þýzku
og kosta 20 töflur af þeim
amerísku 600 krónur en af
þeim þýzku 200 krónur.
Töflurnar eru svo dýrar pð
þær hafa varla rpjög mikla þýð-
ingu til getnaðarvarna enn þá.
Annars hafa þær verið fram-
leiddar mikið í þeim tilgangi
að minnka barneignir í hinum
fjölmennu og fátæku löndum
Asíu, Afríku og Suður-Ame-
ríku. Fyrstu tilraunir með þær
voru gerðar á eynni Puerto
Rico í Karibahafi fyrir tveimur
árum og gáfust þær þá vel til
getnaðarvarna. Indverjar hafa
mikinn hug á að hefja stór-
framleiðslu á þeim og selja þær
ódýrt.
Töflur þessar eru enn lítið
reyndar og verður að fara var-
lega í að nota hormónalyf. Hér
á landi hafa þær aðallega ver-
ið notaðar við hormónatruflun-
um og óþægindum svo sem tíða-
verkjum.
i