Vísir - 19.01.1962, Side 8

Vísir - 19.01.1962, Side 8
8 V í S I R Föstudagur 19. janúar 1962 UTGEFANDI: BLAÐAUTGAFAN VISIR Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. ASstoðarritstjórí: Axel Thorsteinsson. Fréttastjór- ar: Sverrir Þórðarson, Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 27. Auglýsingar og afgreiðsla: ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er krónur 45,00 á mánuði. — í lausasölu krónur 3,00 eintakið. Sími 1 1660 (5 línur). — Félags* prentsmiðjan h.f. Steindórsprent h.f. Edda h.f. V.W.V, Gildi tækninnar. I blaSinu í gær birtizt athyglisvert viðtal viS einn fremsta athafnamann SuSurlands, Sturlaug BöSvarsson. SkýrSi hann þar frá þeirri skoSun sinni aS stærri bátar gætu veriS á síldveiSum megniS af árinu. Benti hann réttilega á hve verSmætur síldaraflinn á haustvertíSinni er nú þegar orSinn, eSa nokkuS á þriSja hundrað millj. króna. Síldaraflinn á haustvertíðinni er gott dæmi um það hverju aukin veiðitækni fær áorkað til aukningar afla- magnsins. Hin nýju veiðarfæri og fullkomnari leitar- tæki gera nú bátunum fært aS ná afla, sem fyrir örfáum árum hefSi ekki veriS unnt að draga á land. Hér hafa ríkir aflamöguleikar skapazt, sem nýta verður til hlítar á næstu árum. En þessi sigur tækninnar, sem vel má kalla svo, leiðir hugann að því hvort viS höfum fylgzt nógu vel með tímanum á sviði togarasmíði. Bygging skuttogara og annara af nýrri gerð hefir vakið athygli og gefið góða raun. Hér á landi eru skiptar skoðanir um ágæti þeirra, en að því hlýtur að koma að við tileinkum okkur þá nýju tækni í skipasmíðum, sem góða raun gefur með öðrum fiskveiðiþjóðum. Ekki ástæða til ótta. Nok'kur ótti hefir gripið um sig hér í Reykjavík sökum bólusóttarinnar, sem herjar nú í Þýzkalandi, Englandi og Svisslandi. Heilbrigðisyfirvöldin hafa aug- lýst almenna bólusetningu í HeilsuverndarstöSinni og gert gangskör að því að afla bóluefnis frá útlöndum, til viðbótar við það, sem fyrir var í landinu. Eins og Vísir hefir haft eftir borgarlækni er þó alls engin ástæða til ótta. Veikin stingur sér niSur í Evrópu á hverju ári að heita má, og þótt hún hafi nú orðið útbreiddari en ella er ólíklegt að hún berizt hingað til lands. Heilbrigðisyfirvöldin hafa brugðið skjótt við og eiga þau fyrir það þökk skilið. Biðtími við bólu- setningu var æði langur fyrstu dagana, sem orsakaði nokkra erfiðleika. ÁstæSan til þess var sú hve margt fólk kom til bólusetningarinnar á skömmum tíma, en blaðinu er kunnugt um að heilbrigðisyfirvöldin hafa fullan hug á því að hraða bólusetningunni sem mest og láta hana ganga greiðlega fyrir sig. Sæsíminn skapar ný við' horf í fjarskiptum. Undanfarin ár hefur starf- semi Póst og síma aufcizt mikið og tekið stakkaskipt- lun. Símanúmerum fjölgar, nýjar stöðvar rísa, síma- málastjórnin hefur innleitt margvíslegar tæknilegar nýjungar til hagsbóta fyrir símanotendur og síðast en ekki sízt, bá miðar allt að því að símakerfið verði sjálf- virkt. Þetta á ekki síður við um fjarskiptaþjónustuna en inn- anlandssímann. f rauninni eru engin tæknileg vand- kvæði á að gera millilanda- símann sjálfvirkan, um leið og nýi sæsíminn verður opn- aður. ★ — En það tekur því ekki, ekki fyrr en innanlandssím- inn er allur eða að mestu orðin sjálfvirkur, sagði Gunnlaugur Briem póst- og símamálastjóri í viðtali við Vísi í gær. Við ræddum við Gunnlaug í tilefni af opnun sæsímans nýja, eftir nokkrá^’dá^S;'1— Þar er um stórkostlega fram- för að ræða, sagði Gunnlaug- ur Briem. Áður var síminn til útlanda aðeins opinn 4 tíma á sólarhring. Þetta var radíósamband, sem var margoft truflað og stundum alveg óvirkt, vegna slæmra skilyrða í háloftunum. Af- greiðslan gekk seint fyrir sig, og mönnum varð ekki eins mikið úr samtölunum og til var ætlazt, oft og ein- att. Nú bregður hins vegar til mikils batnaðar. Við mun- um hafa fjarskiptasamband- ið opið allan sólarhringinn. Biðin eftir samtölum verður engin, svo fremi sem menn eru reiðubúnir til að taka við samtalinu þegar það kemur. Talgæðin verða allt önnur og betri. Þetta verður næstum því eins og að tala milli húsa. í sæsímanum verður svo auk þess hægt að senda skeyti á fljótvirkari hátt en áður.Þá verður hægt að veita fyrirtækjum sem þess óska, fullkomna Telexþjónustu. Það þýðir að fyrirtæki, sem telja það borga sig vegna mikilla viðskipta við útlönd, geta fengið fjarritatæki á skrifstofur sínar fyrir sér- staka ársleigu og 60% lægra gjald pr. klukkutímanotkun en það kostar að hringja. Með fjarritanum eru fyrir- tækin í beinu sambandi við útlönd og afgreiða sig þann- ig sjálf. Flugþjónustan og veðurþjónustan fá mun betri skilyrði en áður. Myndasend- ingar verða auðveldari svo og sjónvarp. Þannig gefast ýmsir möguleikar til hag- kvæmara sambands við út- lönd en áður, og er þó sag- an ekki öll sögð, en það sem ég hef talið upp um þetta nægir í bili, til að skýra kostina. ★ Gunnlaugur Briem. — Var sæsíminn bezta lausnin? — Tvímælalaust. Þrjú kerfi komu til greina, ultra- kerfi, mikrokerfi og sæsími. Þegar við byrjuðum fyrir alvöru að gera athuganir okkar á hvaða kerfi væru hentugust — það var árið 1956 — þá komu þessi þrjú kerfi til greina. Eftir víðtæk- ar athuganir kom í ljós að ultra-kerfið var útilokað. Sæ- símakerfið var það full- komnasta, en talgæði mikro- kerfisins voru prýtðilega við- unandi og stofnkostnaður helmingi lægri en við sæ- símann. En eftir að forstjórá Stóra Norræna-símafélagsins kom hingað á 50 ára afmæli Landssímans þetta sama ár, komst verulegur skriður á sæsímamálið. Þá skýrðum við fyrst opin- berlega frá hugmyndum okkar um sæsíma. Forstjóri símafélagsins sýndi mikinn áhuga, félag hans hóf athug- anir á samstarfsmöguleikum í Evrópu og Ameríku, sem leiddu til þess að tilboða var leitað um lagningu strengs- ins. Við rituðum dönsku póst- og símamálastj órnum Danmerkur og Bretlands og síðar Alþjóðaflugmálastjórn- inni. Þetta er í stórum drátt- um sága málsins. ★ — Hvert liggur sam- bandið? — Við höfum 3 línur til London, 2 til Kaupmanna- hafnar og tvær til Færeyja. — Verða miklar breyting- ar á gjaldskrá? — Já, þær verða ýmist til hækkunar eða lækkunar. Nú breytast leiðirnar, sem sam- bandið fer um. T. d. verður 12% hækkun á símtölum við Norðurlönd vegna þess að sambandið liggur um Bret- land og Holland, en símtöl til Þýzkalands lækka um Kaupmannahöfn. ★ Á næsta ári verður svo lagður sæsímastrengur milli fslands og Kanada, nánar tiltekið til Nýfundnalands, um Grænland. Þar með verður ísland komið í beint símasamband við Ameríku og Evrópu. Tengsli íslands við hin stóru meginlönd Ameríku og Evrópu verða nánari með hverju árinu sem líður. Sæsíminn nýi er einn mikilvægur þáttur í þeim tengslum. Kínverskir kommúnist- ar auka undirróðurinn. ÝMSAR fregnir frá Austur- Evrópu benda nú til þess að kínverskir kommúnistar séu byrjaðir að skipuleggja und- irróðursstarf gegn Rússum í kommúnistaflokkunum í Evrópu. Virðast þeir hafa tekið upp samband við ýmsa gamla stalinista og fengið góðar undirtektir aðallega í tveimur ríkjum, Búlgaríu og Tékkóslóvakíu. Ennfremur eru fulltrúar Peking- stjórnarinnar farnir að leita eftir tengslum við kommúnistaflokka í öðrum ríkjum. Hefur þeim orðið sérstaklega mikið ágengt í kommúnistaflokkum Asíu og Afríku og einnig nokkuð á- gengt í Vestur-Evrópu. Ber- ast þær fregnir m.a. frá ítal- íu, að armur sá í ítalska kommúnistaflokknum, sem nú gerir uppreisn gegn rússnesku línunni leiti styrks frá Albaníu, en þar er aðalútbreiðslustöð kín- verskra kommúnista í Evrópu. Til dæmis um þá miklu á- herzlu, sem kínverskir kommúnistar leggja á það að útbreiða áhrif sín er þess getið að sérstök Afríkudeild hafi nú verið stofnuð við franikvæmdastjórn komm- únistaflokksins í Peking.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.