Vísir - 19.01.1962, Síða 16
VISIR
Föstudagur 19. janúar 1962
Sæsíminn um Atlantshaf.
ISLAND
VESTMANNAEYJAR
SCOTICE0962)
GAIRLOCH INVERNESS
QBAN t. \ J .
ICECAN (1962)
GOOSE BAY
8RETLANDS
EYJAR
SHANNOI
(lCAO)
gander(icao)
R0CHES
PEHMARCH
CLARENVILLE
NYFUNDNALAND
FRAKKLAND
SYDNEY MINES
TORSHAYN
(FAROES)
^ " "lCECAN(l962)
PRINS CHRIST.IAN SUND(lCAO)
SCOTICE (1962)
ts «x | *
NADA < ) /C0RNER
T0 BROOK __
Hvar eru blaða-
Síðan árið 1956 hafa ver-
ið lagðir fjórir nýir sæsíma-
strengir um Atlantshaf, milli
Evrópu og Ameríku. Þeir
eru allir tengdir við staði á
Nýfundnalandi en í Evrópu
við einn stað í Frakklandi og
tvo í Bretlandi. Punktalínan,
sýnir strenginn, sem lagður
verður milli íslands og
Ameríku síðar á þessu ári.
Þar með verða strengirnir
orðnir 5 talsins. Sjá viðtal
við Gunnlaug Briem póst- og
símamálastjóra á bls. 8.
mennirnir?
Veggjalúsafaraldur
í M.A.
Frá fréttaritara Vísis.
Akurcyri í morgun.
Veggjalús hefur gert ýmsum
nemendum Menntaskólans á
Akureyri lífið brogað undan-
farnar vikur og hver herferðin
rekið aðra til að útrýma þess-
um ófögnuði.
Þessa varð fyrst vart skömmu
fyrir jól, er tvær stúlkur, nem-
ar í Menntaskólanum og bjuggu
báðar í sama herbergi í nýju
heimavist skólans, steyptust út
í útbrotum í andliti. Vissu þær
ekki hverju þetta sætti og leit-
uðu því til héraðslæknisins, Jó-
hanns Þorkelssonar, sem jafn-
framt er skólalæknir Mennta-
skólans. Við athugun taldi
læknirinn útbrotin stafa af biti
veggjalúsa, enda kom í
ar tekið var að kanna herberg-
ið að þar var krökt af þessum
kvikindum. Var herbergið þá
úðað með eiturvökva og hefur
dýranna ekki orðið vart i því
herbergi síðan. Talið var að
með aðgerðum þessum hafi ver-
ið komizt fyrir ófögnuðinn að
fullu og öllu.
Sú varð þó ekki raunin á —
því miður — því eftir áramót-
in gaus faraldurinn upp að
nýju — þá á allt öðrum stað í
í sex nemendaherbergjum í
nýju heimavistinni, og í fyrra-
dag var ný herferð hafin með
því að efsta hæðin í húsinu var
öll úðuð með eiturvökva.
Með þessari aðgerð vonast
menn til að tekizt hafi að út-
rýma veggjalúsunum, en til
öi'yggis er sem minnst sam-
band haft við þau sex herbergi
sem vágestsins varð vart í, af
öðrum en þeim er þar búa. Yf-
ir dyrum þar í íbúðarganginum
hefur verið komið fyrir aðvör-
unarspjaldi, þar sem á er letr-
að stórum stöfum:
— „Öllum lúsum og lúsables-
um og þeirra hyski er strang-
lega bannaður aðgangur.“
Lét skólameistari svo um-
mælt við fréttámann Vísis í gær
að veggjalúsin hafi vakið tals-
verð ónot í skólanum meðan á
þessum faraldri stóð.
Þá er og vitað að veggjalús-
ar varð vart í tveim íbúðarhús-
um á Akureyri, þar sem nem-
endur úr Menntaskólanum
bjuggu. Á báðum þeim stöðum-
hefur verið vandlega úðað.
Ráðsmaður Menntaskólans
tjáði frétaritara blaðsins að
fyrir tveimur árum hafi veggja-
lúsar einnig orðið vart í heima-
vist skólans. Var gizkað á að
annaðhvort hafi hún borizt með
erlendum ferðamanni sem fékk
leyfi til að búa í skólanum sum-
arið áður, eða þá með nem-
anda utan af landi.
Annars hefur slegið nokkrum
óhug á almenning á Akureyri
út af þessum veggja lúsafar-
aldri og sumir sem blátt áfram
eru hræddir við að umgangast
menntskælinga af þessum sök-
um. Veggjalúsin er líka hinn
versti vágestur og margir nem-
enda voru stórlega bitnir og
illa leiknir.
Gátu haldið bátn-
um á floti.
Veit Þjóðviljinn ekki hvar
gamlir starfsmenn hans eru
niður komnir? Hann skýrir
frá því í morgun að tveir
Þjóðviljablaðamenn starfi
nú sem blaðamenn hjá Vísi.
Um það höfum við á Vísi
aldrei heyrt — og furðum
okkur á , hve skelfing illa
„blað alþýðunnar“ fylgist
með gömlum blaðamönnum
sínum. Er sú stund loks upp
runnin, að Þjóðviljamenn
hafa sturlazt af sínum eigin
áróðri?
Útburðarbörn
Sendlar 1
Vísi vantar útburðarbörn í
Múlacamp og Blesugróf. —
-Ennfremur tvo sendla.
Dagblaðið
V í S 8 R
Mokafli í landsteinum
í Vestmannaeyjum.
Vestm.eyjum í gær.
Síld veiðist nú í stórum stíl
rétt fyrir utan hafnarmynnið í
Vestmannaeyjum.
f fyrradag fengu margir bátar
ágætan afla hér uppi í land-
steinum, en aðrir sprengdu næt-
urnar. Gjafar kom inn í gær
með 1000 tunnur, Hannes lóðs
600, Kristbjörg 600, Ófeigur
300, Reynir 30Ó og Huginn, sem
þó sprengdi nótina náði 300
tunnum úr kastinu. Leó og Þor-
björn sprengdu báðir. Fleiri
bátar en hér eru nefndir komu
inn með síld í gær.
Allar þrær eru fullar orðnar
af síld, og enda þótt þetta sé
\
stór og feit síld fer hún öll
í bræðslu vegna þess að mann-
afla vantar eins og stendur.til
að koma henni í frystingu. í
gær voru hér fjögur flutninga-
skip, og allir sem vettlingi gátu
valdið, og ekki voru í annarri
vinnu, voru uppteknir í upp- og
útskipun.
í gær var 50 rúmlesta vél-
bátur frá Vestmannaeyjum
hætt kominn í róðri, er leki
kom að honum 2ja stunda ferð
frá Eyjum.
Þetta var vb. Kári, eign Ein-
ars Sigurðssonar, sem var á
línuveiðum vestan við Þrí-
dranga. Um kl. 4 síðdegis í gær
kom skyndilega svo mikill leki
að honum, að við ekkert varð
ráðið, og brátt drapst á aðalvél
bátsins, en skipverjum tókst að
koma Ijósavélinni í gang, svo
að þeir gátu látið dæluna ganga
og létt svo bátinn, að þeir kom-
ust að nokkru fyrir lekann.
Kallað hafði verið á hjálp í upp
hafi, og fór lóðsinn til aðstoð-
ar, en ekki var bein hætta á
ferðinni, þegar hann kom á
vettvang. En hann tók Kára í
drátt og kom með hann til hafn-
ar ldukkán 10 í gærkveldi.
Fyrsti fundur.
Hin nýskipaða yfir-
nefnd verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins, undir for-
sæti Gunnlaugs Björns-
sonar bankafulltrúa,
kemur saman á fyrsta
fund sinn síðdegis í dag.
★ Laureen Bacall, ekkja
Humphrey Bogarts, hefir
alið manni sínum, Jason
Robards, son. Þau áttu —
sitt í hvoru lagi — fyrir
sex dætur.