Vísir - 27.01.1962, Page 4
V 1 S 1 R
Laugardagur 27. Janúar 1962
fyrirkomulags eru tvimæia-
laust, að þarna á að vera
hægt að fá til að kenna hina
beztu og færustu menn í
hverri grein og þeirrar
kennslu hafa not bæði
kennarar og nemendur í öll-
um skólum, sem geta notið
sjónvarpskennslu.
— Mér skilst, að skóla-
sjónvarpið komi þannig ekki
í staðinn fyrir þá kennslu-
tækni, sem fyrir er, heldur
sé mikilvæg viðbótartækni.
— Já, bæði fyrir kenn-
ara og nemendur. Augljós-
lega getur skólasjónvarpið
ekki komið í stað skóla-
kennaranna. Það er með það
eins og önnur tæki, sem
kennarar og börn hafa not
af og hafa áfram not af,
— það er nauðsynlegt, gagn-
Frh. á 2. síðu.
sjónvarpið
Merkilegar tilraunir með
skólasjónvarp hafa verið
gerðar í Bandaríkjunum á
undangengnum árum og
hafa leiðtogar á sviði skóla-
mála í ýmsum löndum
fylgzt með þeim af áhuga
og farið vestur um haf,
ýmsir þeirra, til þess að
kynna sér það ásamt öðrum
nýjungum á vettvangi
kennslumálanna. Jónas B.
Jónsson fræðslustjóri
Reykjavíkurbæjar, er einn
þeirra skólamanna, sem hafa
fengið nokkur kynni af
skólasjónvarpinu vestra.
Leit ég inn í skrifstofu
hans nú í vikunni og spurði
hann um kynni hans af
skólasjónvarpinu.
— í Bandaríkjunum,
sagði Jónas B. Jónsson, en
þar hefi ég haft tækifæri
til þess að kynnast þessu
nokkuð, var fyrst hafizt
handa um stofnun sérstakr-
ar sjónvarpstöðvar til
kennslu árið 1954. Árlega
hafa margar stöðvar bætzt
við síðan svo að segja má, að
her sé um sjónvarpsnet að
' ræða, er nái til allra lands-
hluta. Fyrst var byrjað að
nota sjónvarp til kennslu í
einstökum námsgreinum og
1957 í Hagerstown, Mary-
land-ríki var byrjað á fram-
kvæmd fimm ára áætlunar
með símasjónvarp og lýkur
framkvæmd þeirrar áætlun-
ar á hausti komanda.
— Og hver er reynslan?
— Mér virðist það hafa
gefið mjög góða raun. Þegar
fimm ára áætlunin hófst
náði skólasjónvarpið til
12.000 nemenda og var gert
ráð fyrir, að það næði til
20—30.000, er framkvæmd
hennar lyki. Kennarar sem
starfað hafa og starfa að
þessari tilraun kenna eina
klukkustund á dag. Hafa
þeir því góðan tíma til und-
irbúnings. Allt eru þetta
'valdir, reyndir kennarar,
færustu menn, hver í sinni
grein. Það er í rauninni eins
og sjónvarpskennarinn sé
með í hópnum í kennslu-
stofunni.
— Er það í vissum náms-
greinum að eins, sem sjón-
varpið er notað til kennslu?
— Sjónvarp er mikið
notað við háskóla vestra til
kennslu í líffærafræði,
skurðlækningum o. s. frv.,
og sjálfsagt víðar, en að því
er ég bezt fæ séð mundu
verða ágæt not að sjónvarpi
við kennslu í hvaða grein
sem er. Ég hef verið við-
staddur þar sem sjónvarp
var notað til kennslu í
mannkynnssögu, lífeðlis-
fræði, náttúrufræði, tungu-
málum, söng og fleiri grein-
um. Kostir þessa kennslu-
Fyrir vertíðina
Sjóstakkar rafsoðnir þrjár stærðir, hagstætt verð
Ödýrir frystihússtakkar
Frystihússtakkar
Frystihússvuntur hvítar
Sjófatapokar tvær tegundir
Ermar og ermahlífar.
Vinnuvettlingar þrjár tegundir
Næl. styrktar nankinsbuxur á karlmenn og unglinga
margar stærðir
Herranærföt margar gerðir
Röndóttar sportpeysur
Herrasokkar margar tegundir
Sokkar grillon og ull fjórar stærðir
Þessar vörur eru til afgreiðslu strax
Sími 2 2 1 60.