Vísir - 03.02.1962, Qupperneq 11
Föstudagur 2. febrúar 1962
V I S 1 K
II
Djarflegt póstrán
í járnbrautarlest.
„Sjúklingur og hjúkrunar-
maður“ framkvæmdu fyrir
nokkru djarflegt rán í járn-
brautarlest í Bretlandi.
Þannig var mál með vexti,
að kvöld eitt seint fylltust
starfsmenn Waterloo-stöðvar
innar í London mikilli samúð
með sjúklingi, sem fluttur var
í stöðina í hjólastól, en gat
hvergi komizt inn í lest, sem
þaðan átti að fara, þar sem
hvert sæti var skipað og
meira en það. En til þess að
gera manninn og hjúkrunar-
mann hans ekki afturreka,
var ákveðið, að þeim skyldi
komið fyrir í póstvagni lest-
arinnar, þótt það væri í raun-
inni andstætt öllum lögum og
reglum.
Segir svo ekki af ferð lest-
arinnar fyrr en hún er komin
vel á leið, og stöðvaðist við
Próf í Eyjum.
Lokið er sjómannanám-
skeiði, sem fram fór í Vest-
mannaeyjum á vegum Sjó-
mannaskólans.
Námskeið þetta veitir rétt-
indi til að hafa á hendi stjórn
skipa, sem eru allt að 120
rúmlestum. Sextán menn
gengu á námskeiðið og stóð-
ust 14 prófið Hæstur varð
Garðar Sigurðsson. Stjórn-
andi námskeiðsins var Guð-
jón Petersen úr Reykjavík.
rautt Ijós milli stöðva. Þá
varð hinn sjúki skyndilega al-
bata, og hann gat þá ekki að-
eins gengið heldur hafði hann
afl til að hjálpa „hjúkrunar-
manni“ sínum við að yfir-
buga og binda verði póst-
vagnsins. Síðan opnuðu þeir
vagnhurðina og fleygðu út
um hana fimm póstpokum,
sem í vagninum voru, en
stukku síðan úr vagninum og
fóru með pokana upp í bif-
reið, se mbeið þeirra á þess-
um stað. í póstinum voru pen
ingasendingar, sem í voru
samtals 20.000 pund.
Átta létust
Hnefaleikasamband Banda-
ríkjanna hefur birt skýrslu
yfir síðasta starfsár. Þar er
greint frá því að 8 menn hafi
látið lífið í hnefaleikum á s. 1.
ári, bar af fimm atvinnu-
menn. Er þetta í minna lagi,
en hefur þó verið lægra tvö
ár, þ. e. 1954 og 1956 þegar
sex hnefaleikamenn létust
hvort árið. .
Á s. 1. ári fóru fram 28
heimsmeistarakeppnir í ýms-
um þungaflokkum hnefaleika,
af þeim voru 16 haldin í
Bandaríkjunum.
• lbúatala Kanada var um 18,4
milljónir um síðustu úramót.
Þjóðinni fjölgar um ca. 2% ár-
lega.
Kristilegar samkomur
„Fjall-göngur með Drottni".
Sunnudag kl. 5 í Betaníu, Reykjavík
Mánudag kl. 8,30 i Tjarnarlundi, Keflavík
Þriðjudag kl. 8,30 í Strandar-skóla, Voganum
Fimmtudag kl. 8,30 í Kirkjunni, Innri Njarðvík.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Helmut L. og Rasmus Biering P. tala.
Vtiggfesting
LAUGAVE6I 90-92
SELJUM 1 DAG:
Chevrolet 1956. 2ja dyra
sportmódel.
Vauxhall 1955. Mercedes
Benz 1957. Studebaker ’53,
sportmódel, selzt ódýrt,
mjög góð kjör.
Ford Junior 1947 í ágætu
lagi, engin útborgun.
Gjörið svo vel og skoðið
bílana. Þeir eru á staðnum.
Dodge Weapon óskast til
kaups, yngri gerð. Má
vera ógangfær.
Ef þér viljið kaupa bíl,
ef þér viljið selja bíl,
þá hringið i síma
23900
eða gjörið svo vel og
lítið inn.
Hæsti vinningur i hverjum flokki
1/2 milljón krónur
Dregið 5 hvers mánaðar.
Lögfræöingur óskast
nú þegar til starfa hjá opinberri stofnun. Tilboð,
sem skoðast trúnaðarmál, skulu send afgreiðslu
blaðsins eigi síðar en 8. þ. m., merkt „Lögfræð-
ingur“.
----------------1--------------------,/
I KJÚRBINGÖ
að Hótel Borg á morgun, suimudaginn 4. febrúar
klukkan 8,30 er meðal kjörvinninga:
Sófasett
Husquama-saumavél
Farseðill til Kaupmaimahafnar
Auk þess margir dýrmætir og
gagnlegir munir.
BIN G Ó - kvöldverður framreiddur frá kl. 19.
Borðapantanir í síma 11440.
Ókeypis aðgangur.
Dans til kl. 1.
Skemmtinefnd St. Rv.
Skreiðarframleiðendur Útflytjendur
Við erum meðal stærstu innflytjenda ofangreidr-
ar vöru í Nígeríu. Ágætustu meðmæli fúslega
veitt áreiðanlegum útflytjendum. Algjör heiðar-
leiki í viðskiptum í 20 ár.
VÖRUR YÐAR ERU ÖRUGGAR HJÁ OKKUR
Snúið yður til Messrs. A.A. Momson & Company,
22a Lewis Street, P. O. BOX 270,
Lagos, Nigeria. West Africa.
Símnefni: ,,MOMSON“ — Lagos.
FÉL. ISL. BIFREIÐAEIGENDA,
Austurstræti 14, sími 15659.
Kvikmyndasýning
um umferðamál
Félag • íslenzkra bifreiðaeigenda hefur kvik-
myndasýningu í Gamla Biói í dag kl. 3.
Sýndar verða 3 umferðamyndir, meðal annars
um akstur í hálku og slæmu færi. Félagsmönn-
um og öðrum áhugamönnum heimill ókeypis að-
gangur meðan húsrúm leyfir.
Stjóm F.I.B.
IVIælum upp — Setjum upp