Vísir - 21.03.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 21.03.1962, Blaðsíða 8
8 VISIR Miðvikudagurinn 21. marz 1962 Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjórar: Sverrir Þórðarson, Þorsteinn G. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 178. Auglýsingai og afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði. í lausasölu 3 kr. eint. - Slmi 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. - Steindórsprent h.f. - Edda h.f. --------------------------------------------------------) Vandræði Framsóknar Framsóknarmenn hafa lengi verið í mestu vand- ræðum, af því að móðuharðindahjal þeirra hefir gert þá að viðundri með þjóðinni. Þó halda þeir áfram að berja höfðinu við steininn og reyna að telja sjálf- um sér og öðrum trú um, að hér mundi ganga hallæri hið mesta, ef ekki hefði verið fyrir ágæt störf vinstri stjórnarinnar sálugu. Svo segir til dæmis á einum stað í Tímanum í gær: „Það er óhrekjanleg staðreynd, að þrátt fyrir samdráttarstefnu ríkisstjórnarinnar varð þjóðarfram- leiðslan með mesta móti á síðastliðnu ári. Þetta er ávöxtur af útfærslu fiskveiðilandhelginnar og þeirri uppbyggingu, sem vinstri stjornin lagði grundvöll að og samdráttarstefnunni tókst ekki að stöðva“. Margt er skrítið í kýrhausnum, var sagt forðum, en fleira þó í Tímanum, og orð þau, sem tilfærð eru hér að ofan, eru sönnun þess, að Framsóknarblaðið vonast tii þess, að menn hafi almennt gleymt við- skilnaði vinstri stjórnarinnar. Sannleikurinn er nefni- lega sá, að það verður að teljast mesta furða, hvað viðreisnin hefir gengið fljótt og vel, þegar á það er litið, hvernig vandræði blöstu við í öllum áttum, þeg- ar vinstri stjórnin flýði. Sannleikurinn er sá, að „uppbygging“ vinstri stjórnarinnar var af því tagi, að hún byggði ekkert upp nema verðbólguna, og ef ekki hefði verið tekið í taumana, þegar gert var, mundu nú sannkölluð „móðuharðindi“ hér á landi. Vísitalan hefði tekið hvert stökkið öðru meira, unz atvinnuvegirnir hefðu stöðv- azt og efnahagur þjóðarinnar hrunið í rústir. Störf vinstri stjórnarinnar áttu ekkert skylt við uppbygg- ingu, því að þau einkenndust af dáðleysi og hræðslu við að horfast í augu við vandamálin, enda ávöxtur- inn af starfi hennar eftir því. Ætti Tíminn að reyna að skilja, að hann ætti frekar að þegja um „afrek“ vinstri stjórnarinnar en minna almenning á setu hennar. I " ' ; Mesti ósigurinn Kommúnistar hafa fundið að undanförnu, að al- menningur er að snúa við þeim bakinu. Það sýna hinir hinir mörgu ósigrar þeirra í verkalýðsfélögum síðustu vikur. Mesti ósigurinn var þó sá, að þeir treystu sér ekki til að bjóða fram í Frama, félagi leigu- bifreiðastjóra. Þar var um uppgjöf að ræða, sem lengí mun í minnum höfð. Það er þess vegna eðlilegt, að kommúnistar eru uggandi vegna væntanlegra bæjar- og sveitarstjórna- kosninga, sem munu verða þeim hið mesta áfall. Þess vegna leitast þeir nú við að fá hjálp og biðla til allra, sem hugsanlegt er, að fáist til að sjá aumur á þeim. En varla ráðast margir á þessa sökkvandi kommún- istaskútu. F orsætisráðherra Serkja er Benjussef Benkhédda í samningunum sem nú hafa tekizt milli Frakka og Serkja er ákveðið að Alsír verði sjálf- stætt ríki. Ef allt gengur sam- kvæmt áætlun mun því ekki 4 líða á löngu áður en valdaskipti 4 verða í landinu og á stofn verð- í ur sett ríkisstjóm, þar sem / serkneskir forustumenn verða i 1 miklum meirihluta. \ Þjóðfrelsishreyfing Serkja i eða FLN eins og hún er kölluð, í er í rauninni samsteypa margra l flokka með hinar ólíkustu skoð / anir. Þegar frá líður og glíman ; hefst við hin mörgu innanrík- l isvandamál má búast við að sú t fylking gliðni og margir flokk- 4 ar hefji starf í landinu. Þegar l slík pólitísk starfsemi hefst er 7 það álit manna, að hinn ungi 7 Mohammed Ben Bella, sem ) verið hefur í fimm ár í fangelsi !í Frakklandi taki við forust- unni. En fyrst í stað meðan við mestu erfiðleikana er að glíma búast menn þó við að sam- starfið muni haldast og útlaga- stjórn Serkja, sem haft hefur aðsetur í Túnis muni flytja heim. Af höfðingjaættum. Forsætisráðherra hennar er Berijússef Benkhedda, 42 ára að aldri. Hann er fæddur 1920 í bænum Blida ’ákáfri'rfit' vfyHF utan Algeirsborg. Benkhedda er af höfðingja- ættum kominn, eins og flestir aðrir forustumenn £ þjóðernis- hreyfingunni, þvl aðrir hafa vart komizt til menntunar í Alsfr. Ætt hans er að nokkru tyrknesk, afi hans og faðir voru kadíar eða dómarar, vel efnaðir og áttu hin beztu sam- skipti við franskt embættis- menn. En það fór líkt fyrir Benk- hedda og ýmsum öðrum serk- neskum höfðingjasonum, sem fengu tækifæri til að ganga menntaveginn, að þeim blæddi í augum niðurlæging þjóðar sinnar. Þeir hefðu getað vænzt hins mesta frama hjá Frökk- um, en völdu fremur leið mót- þróa og uppreisnar. Benkhedda á margar minn- ingar frá veru sinni 1 mennta- skólanum f Blida. Þó 80% af fbúum borgarinnar væru serk- neskir voru aðeins 3 af 30 í bekk hans af serkneskum ætt- um. Bekkjarbróðir hans var Saad Dahiab núverandi utan- rfkisráðherra og f næsta bekk fyrir neðan var Mohammed 7 Yazid upplýsingamálaráðherra. I Lásu byltingarrit. / Serknesku bekkjarfélagarnir / útveguðu sér á launmargskonar 1 byltingarrit og Benkhedda hef- ) ur rifjað það upp, að hann hafi 4 langað til að gráta í sögutfma, 1 þegar kennarinn sagði að Alsír í hefði aldrei verið sjálfstætt / ríki, þegar Frakkar hefðu tekið 1 það 1830 hefði það verið tyrk- ) nesk nýlenda. Að stúdentsprófi loknu lagði hann stund á lyfjafræði við há- skólann í Alsír eins og Ferhat Abbas sem kunnur varð sem fyrsti forustumaður FLN. En Benkhedda varði flestum kvöldum í hópi samlanda sinna við háskólann og þeir ræddu ekki um lyfjafræði, heldur B. Benkhedda stjórnmál. Þeir lásu hvatningar og byltingarrit Voltaires og Rousseaus og þeir íhuguðu hvernig liægt væri að bæta kjör hins serkn. almúga. Byltingar- hreyfing Serkja er ekki sprottin upp af kommúnisma heldur af vestrænni lýðræðishugsjón, þó rauð öfl hafi síðar látið á sér kræla þar. í lok ófriðarins mikla 1945 héldu serkneskir í Alsír mikla friðarhátíð í bænum Sétif. Þeir gerðu sér vonir um að land þeirra fengi sjálfstæði að ó- friðnum loknum og þóttust hafa fengið loforð Bandamanna fyr- ir því. Árásin á Sétif. En þá gerðist það í Sétif, að franskt herlið réðist skyndi- lega á Serkina þar sem þeir héldu hátfð sína. Um 5000 Serkir voru skotnir þar til bana og mörg þúgund voru handteknir, þeirra á meðal Benlchedda. Serkirnir telja að frelsisstríð þeirra hafi f raun- inni hafizt með blóðbaðinu i Sétif, sem var ótrúlega grimmdarlegt og ástæðulaust. Benkhedda var varpað í fang- elsi og sat hann 6 mánuði f hinu hræðilega Barberousse fangelsi f Algeirsborg, sem Serkir hafa nú heitið að rífa til grunna með sama hætti og Bastillan var rifin niður f París. Hann sneri aftur til Blida og var orðinn ákafur þjóðernis- sinni. Hann skrifaði áróðurs- seðla og vann að þvf að mála slagorð á veggi.\Einu sinni mun 7 aði minnstu að hann og félagi / hans væru teknir fastir af Iög- i reglunni, þar sem þeir voru að 4 mála á vegg. Þeir voru fljótir 4 að fela pensla og málningardós t undir síðri skikkju sinni og lög- 7 reglumennirnir héldu að þessir / tveir óhreinu Serkir væru ó- 1 læsir og gætu því ekki hafa \ skrifað slagorðin. ^ Foringi skæruliða t f Algeirsborg. / Þegar uppreisn Serkja brauzt 1 út fyrir alvöru 1954 var Benk- ) hedda handtekinn af Frökkum 4 sem grunsameg persóna. Hann 4 sat nærri heilt ár í fangelsi án t þess að vera leiddur fyrir rétt, 7 Þegar honum var loksins sleppt / hóf hann tafarlaust starf f neð- \ anjarðarhreyfingu FLN. Hann 4 vann í hópi skemmdarverka- 4 manna, sem festu sprengjur í l ljósastaura og köstuðu sprengj- / um inn á veitingahús. Vinir / Benkheddas segja þó að hann \ hafi verið of viðkvæmur til að 4 standa í þessu og hafi hann 4 elzt um mörg ár á skömmum i tíma. Hitt líkaði honum betur / að vera ritstjóri helzta leyni- / blaðs og málgagns FLN-hreyf- \ ingarinnar. \ Benkhedda varð foringi serk- 4 nesku skæruliðanna f Algeirs- i borg og hafði aðsetur sitt 1 7 hópnum hinna harðskeyttustu / manna þeirra á meðal Belka- \ cem Krim. 1 þessum hópi var 4 einnig ung stúlka Salima Haff- 4 af er var Iærð hjúkrunarkona. 4 Hún gegndi starfi sem sendi- 7 maður hópsins. Var hún hand- / tekin af Frökkum og sett í / fangelsi, en síðan sleppt. Henni \ kvæntist Benkhedda nokkru \ sfðar og eiga þau tveggja ára 4 son. 7 Sjálfur hefur Benkhedda 7 sagt, að það sem hafi bjargað honum hafi verið að ekkert ó- vanalegt var við útlit hans og beinlínis að hann virtist ekki mikill fyrir mann að sjá. Hann sat oft á kaffihúsum Evrópu- manna með skjalatösku, sól- gleraugu og lítið yfirvara- skegg og kallaði sig Pierre Georges. En oft hjálpuðu menn af evrópskum uppruna honum og földu hann fyrir lögreglunni. Kveðst hann eiga þeim mikið að þakka. Gagnrýndi stjórnina. Frönsku lögreglunni tókst að vinna bug á skæruliðahópi Benkhedda í Algeirsborg og hvarf hann úr landi 1957 til Túnis, þar sem útlagastjómin hafði aðsetur sitt. Þar varð hann að viðurkenna ósigur sinn í Algeirsborg og missti hann nú um tíma áhrif. En nú tók hann að leika hlutverk gagnrýnand- ans. Hann sakaði foringja Serkja um að þeir væru reikulir 4 og alltof samningsliprir við 4 Frakka. Hann hélt fram misk- 7 unnarlausum byltingarkenning- 7 um og heimsótti Moskva og / Framh. á 5. síðu. )

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.