Vísir - 24.03.1962, Blaðsíða 3

Vísir - 24.03.1962, Blaðsíða 3
Laugardagurinn 24. marz 1962 VISIR 3 Dýrmætur farangur í einni tösku Myndsjá Vísis blrtir í dag einkennilegar myndir er sýna hvemig neyðin kennir fólki að neyta ailra bragða. Þær sýna, hvemig flóttatilraun vestur yfir jámtjaldið var framkvæmd. N/ Það gerðist fyrir nokkrum dögum, að farþegar með jám- brautarlest frá Austur-Þýzka- landi til Vestur-Þýzkalands, skömmu eftir að lestin var komin yfir markalínuna vest- ur á bóginn, tóku eftir því að ungur maður opn- aði allt í einu fremur litla ferðatösku og út úr töskunni steig ung og fögur stúlka, sem varð frelsinu fegin. Þannig hafði farþeginn hjálpað unnustu sinni til að flýja hið lokaða Austur- Þýzkaland. \/ Farþegarnir í lestinni ætl- uðu varla að trúa sínum eig- in augum, það virtist ótrú- legt, að stúlkan hefði kom- izt fyrir i þessari litlu tösku. Var engin furða þó hún and- aði djúpt að sér fersku loft- inu og teygði úr sér eftir að hafa legið svo lengi í loft- lítilli og þröngri ferðatösku. * * ' o s/ © Hér tekur stúlka sér stöðu var rétt tvítug að aldri. í ferðatöskunni. Sú sem flýði Þetta var kærustupar. Pilt- urinn var frá Vestur-Þýzka- landi og hafði fengið leyfi til að heimsækja vinafólk sitt í Thúringen. Þar bjó unnusta hans, hún var reiðubúin að flýja með honum og leggja líf sitt í hættu, yfirgefa allt sem hún átti, jafnvel foreldra sína. Þau nálguðust landamærin og þar steig pilturinn upp í járnbrautarlestina með lög- legt vegabréf og aðeins eina stóra handtösku sem farang- ur. Það munaði litlu að illa færi, er hann var að stíga upp i lestina til að fara síð- asta spölinn, innihald tösk- unnar var þungt og hank- inn slitnaði af. Þá tók pilt- urinn töskuna í faðm sinn og bar hana þannig inn í klef- ann. % Lestin fór af stað og inn- an stundar var komið yfir landamærin inn í frelsið. \/ Myndirnar hér á síðunni sýna, hvernig stúlkan gat © komizt fyrir í ferðatöskunni, ^ .v og hvernig hinn dýrmæti Næst er að leggjast mður, og lata fara litið fyrir sér. stulkanfarangur var borinn framhjá var stúdent í ThUringen og hafði mikið lagt stund á fimleika.austur-þýzkum vörðum. Hjálparmaður hennar kemur, lokar ferðatöskunni og spennir hana aftur með ólum. Það er þröngt í töskunni. o Hinn dýrmæti farangur er borinn upp í jámbrautarlestina. Lífshætta fylgir slíku „smygli".

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.