Vísir - 24.03.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 24.03.1962, Blaðsíða 8
8 VISIR Laugardagurinn 24. marz 1962. Útgefandi: Biaðaútgáfan VtSIR. Ritstjöí-ar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstaðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjórar: Sverrir Þórðarson, Þorsteinn G. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 178. Auglýsinga: og afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði. í lausasöiu 3 kr. eint. Simi 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edd a h.f. Landhúnaöur Sovétríkjanna Fundur sá í æðsta ráði Sovétríkjanna, sem hald- inn var í byrjun mánaðarins í Moskvu, var að flestu hinn fróðlegasti. Hann sýndi nefnilega, að varlega skulu menn trúa prósentutölum þeim, sem kommún- istár eru alltaf að birta um stórfelldar framfarir þar eystra. Þrátt fyrir allar framfarirnar er ástandið ekki betra en það, að nú er erfiðara að metta milljónirnar, sem landið byggja, en fyrir nokkrum árum — með öðrum orðum: landbúnaðurinn er í þvílíkum ólestri, að ekkert vandamál er erfiðara viðfangs í þessu sælu- ríki kommúnismans. Dæma verður kosti þjóðskipu- lagsins á því, hversu vel því tekst að metta borgar- ana, sem við það búa, og á þessu prófi hefir sam- yrkjufyrirkomulagið nú beðið algert skipbrot, þótt kommúnistar ætli að reyna að viðhalda því enn um hríð, því afnám þessi mundi í rauninni tákna afnám einnar undirstöðu kommúnismans. Landbúnaðarfundurinn sýnir þá þetta: Skipulag kommúnismans getur ekki tvennt í senn, séð þegn- um sínum fyrir mat og staðið undir hinum metnað- arfullu tilraunum stjórnarherranna til að ná heims- yfirráðum. #>oð er ekki kreppall Þess er ekki getið, að menn hafi hnigið í ómegin við ræðu Krúsévs um vandræði í landbúnaðinum, eins og þegar hann sagði sannleikann um Stalin forðum. En hitt er víst, að það hefir ekki verið fögur lýsing, sem hann hefir gefið á ástandi og horfum, þar sem hann neyddist til að segja, að þó væri ekki um „kreppu“ að ræða. En hvers vegna slær hann þann varnagla? Vit- anlega af því, að algert öngþveiti er ríkjandi í þess- um.efnum, þótt hann, sem tók sérstaklega að sér að koma landbúnaðinum á traustan grundvöll, gæti ekki viðurkennt, að kreppa sé árangurinn. Það væri of hættuleg játning fyrir hinn mikla mann, en væri þó í samræmi við sannleikann. Vandræði Moskvudeild- arinnar En Moskvumenn eru víðar í vanda en heima fyr- ir. Hér er svo komið fyrir þeim, að þeir óttast að verða þurrkaðir út í kosningunum í vor, og ekki að ástæðulausu. Þess vegna ganga þeir nú fyrir hvers manns dyr og biðja sér liðveizlu. Eins og nú standa sakir, táknar „vinstri sam- staða“, sem þeir vilja koma á, aðeins björgun Moskvu- deildarinnar frá algjöru hruni. gíiiU Yfirlitsmynd yfir uppgröft langhússins í Lance aux Meadows. Enn er mikið starf eftir. Ræmumar sem ganga þvert yfir tóftina em tilraunauppgröftur. í kjölfar Leifs heppna TTalten liggur aftur fyrir akk- eri út af grænum engjum Lance aux Meadows, eftir Ianga kennunarferð norður með Labrador-strönd. Meðan við vorum í sigling- unni hafði Anna Stína unnið að fornleifarannsóknum sínum með hópi aðstoðarmanna. Og hún fann þarna uppi á bakkan- um rústir eftir stórt hús, sem lofa góðu. Nú tökum við , allir þátt í uppgreftrinum:"'^""'" Það líður að hausti og er að - verða svalara í lofti. Út við eyj ar blár vagga fiskibátarnir, því að þarna heldur golþorskurinn til. Upp til landsins sjást kýr á beit og í ásnum eru sauðahjarð gg ir á sveimi. Undir kvöld leita kýrnar heim að fiskiþorpinu og það glymur skemmtilegá í tré- brúnni þegar þær ganga yfi Við höfum líka fengið nýjan gest, það er geysistór borgarls- jaki, sem hefur strandað við Helguey (Sacred Island). Á hverjum degi um kl. 4 síðdegis brestur I honum og minni jakar brotna út frá honum. Þannig heldur hann smámsaman áfram að minnka. efni norrænna frásagna um vin við í Vínlandi. Norrænir menn höfðu ekki fyrr séð squash- ber og það er vert að taka eft- ir því að fiskimenn á Nýfundna landi búa enn til vín úr þeim. Á kvöldin koma venjulega ungir veiðimenn í heimsókn til okkar og setjast inn i tjald til að rabba við okkur. Þeir hafa iiiíiisii! p rasið er hærra og þéttara en T fyrr í sumar. Fallega blá- liljan, iris, sem áður þakti heil svæði er nú fallin og sama er að segja um flest önnur litrík bióm. En nú er kominn berja- tími. Og hér er ótrúlega ríkt berjaland. Mýrlendið upp af rústunum gulnar af múltuberj- um og hólarnir roðna af týtu- berjum. Hér er lika mikið af krækiberjum og sætum bláberj- um. Hér eru einnig ribsber, sól- ber stikilsber og svo maður gleymi ekki hinum rauðu góm- sætu Squash-berjum, en þessi amerísku ber vaxa hér á runn- um og minna að bragði á múltu ber og jarðarber. Hver veit nema þessi ber hafi orðið til- Squash-berin i Lance aux Meadows eru amerisk berjateg- und mjög gómsæt og ágæt til víngerðar. Getur verið að ís- Ienzku sögumar um vínþrúgur eigi við þau? gamla forhlæðinga í ól yfir öxl- ina og við belti hangir púður- hornið .Þegar þeir koma við hjá okkur bera þeir oft stóra kippu af fuglum. I ance aux Meadows héfur ^ boðið Vínlandsförum góða lífsafkomu. Sæfararnir komu frá heimskautalandinu Græn- landi, undirstaða lífsafkomu þeirra var sauðfjárrækt, dýra- veiðar og fiskveiðar. Fyrir þús- und árum þegar náttúran var að mestu ósnert, þá hefur dýra stofninn verið enn stærri og auðugri en nú. Þá er líkiegt að skógurinn hafi sumsstaðar náð fram að sjónum og niður að graslendinu og skógurinn hef- ur verið morandi í hreindýrum og loðdýrum. Já, skógurinn hef ur verið eins og ævintýri fyrir Vínlandsfarana. Þeir komu frá nærri trjálausu heimskauta- landi. Hér var nógur viður í brenni og til bátasmíði. Vinnan við uppgröftinn held- ur áfram hægt og bítandi og smámsaman sjáum við iögun þess,a húss, sem hefur verið í- verustaður fólks endur fyrir lðngu. Það er eins og að lesa hrífandi bók, ' maður bíður spenntur eftir því, hvað gerist f næsta kapitula. T oksins þykjumst við hafa ' fundið heildarmynd skál- ans, þó geysimikið verk sé enn eftir, sem verður að bíða næsta árs. Árangurinn er gleðilegur og óvæntur. Við höfum fundið hérna rústir af stórum bæ, um 22 metra löngum og 15 metra breiðum. í honum eru 5 her- bergi eða hús. Fyrst verður að telja stóran sal, um 16 metra langan, hin herbergin eru við- bætur við hann. Við finnum langelda og palla beggja megin við þá, nokkur eldstæði hlaðin úr steinum, suðugrópar og tvær holur, svokallaðar felholur, þar sem glóðin er varðveitt yfir nótt. Önnur þeirra er í miðj- um langeldinum og er fóðruð með hellusteinum. Bæjarveggirnir hafa verið hlaðnir úr torfi og sést lang- skiptingin enn greinlega. Við finnum ýmislegt annað athyglis vert, sem þarfnast nánari rann- sóknar. Fornminjaathugunin bendir til þess að við stöndum hér við tóftir norræns húss, sem hefur verið langhús með viðbótar- Við rústir nor

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.