Vísir - 24.03.1962, Síða 16
VISIR
Laugardagurinn 24. marz 1962.
200 þús.
kr. sekt
Brezki togaraskipstjórinn
Percy Bedford af Wyre Mariner
var í gær dæmdur í 200 þús. kr.
sekt fyrir ólöglegar veiðar inn-
an landhelgi. Hafði hann viður-
kennt brot sitt. Auk þess voru
veiðarfæri sem voru metin á 75
þús. kr. gerð upptæk. Enginn
afli var í skipinu, þar sem það
var nýkomið á miðin er það var
tekið. Alls varð útgerðin að
setja 350 þús. króna tryggingu
fyrir sektum, upptöku og máls-
kostnaði.
Bedford skipstjóri hafði áður ,
verið tekinn og dæmdur fyrir;
landhelgisbrot. Þó hafði það '
ekki ítrekunaráhrif til hækkun-
ar sektarinnar, þar sem fyrra
brotið féll undir hina almennu
sakaruppgjöf, sem veitt var
þegar landhelgisdeilunni laulc.
Hinn nýskipaði sendiherra Frakka á Islandi, Jean Strauss, sést
hér, er hann var að afhenda Ásgeiri Ásgeirssyni forseta embætt-
isskilríki sín á Bessastöðum í gær. Á milli þeirra stendur Guð-
mundur í. Guðmundsson utanríkisráðherra. Strauss sendiherra
hefur haft kynni af íslendingum sem verið hafa í París. Mun hann
m. a. vera vel kunnugur Albert Guðmundssyni forseta Alliance
Francaise og hyggur sá félagsskapur á gott samstarf við hann.
4 slys
í gær
í gær var sjúkralið slökkviliðs-
ins hvað eftir annað kallað á vett-
vang til að flytja slasað fólk í
slysavarðstofuna.
Fyrsta slysið varð um hádegis-
leytið í Túngötu, er 4ra eða 5 ára
gamall drengur, Gunnar Stefáns-
son, Garðastræti 33 varð fyrir bif
reið.
Nokkrum mfnútum seinna varð
annar drengur á svipuðu reki, Ein-
ar Guðmundsson fyrir bifreið á
Njálsgötu.
Þriðja slysið varð klukkan langt
gengin sjö í gærkveldi á mótum
Þórsgötu og Baldursgötu. Maður
að nafni Meyvant Guðmundsson,
Hringbraut 56 var þar að bora fyr-
ir handriði en féll niður af stiga-
palli og slasaðist á höfði.
Um svipað leyti var sjúkralið
slökkviliðsins beðið að flytja
mann i Slysavarðstofuna, sem fall-
ið hafði milli skips og bryggju
við Grandagarð.
iHAflDTEKINNi
AFTUR
Borgarmálaráðstefna
Heimdallar byrjar
Borgarmálaráðstefna Heim-
dallar hefst kl. 14 í dag
laugardag í Valhöll við Suð-
urgötu. Ráðstefnan mun
standa yfir helgina og ljúka
á sunnudagskvöld, í kvöld-
verðarboði borgarstjórans í
Reykjavík.
Hér er um að ræða fræðslu
ráðstefnu um málefni Reykja
ÚRANUS Á
SVO sem menn mun reka
minni til, var togarinn Úranus
á útleið, er hið ægilega fárviðri
gekk yfir V-Evrópu um miðjan
febrúar. Urðu á skipinu miklar
skemmdir er brotsjór kom á
það aftanvert. Var það tekið til
viðgerðar ytra, þegar að afla-
sölu lokinni, hófst viðgerð á
skipinu. Hefur hún staðið yfir
siðan, eða í um það bil mánað-
artfma og þar til í gær. í gær-
kvöldi barst togaraútgerð Júpi-
ters & Marz skeyti um að við-
gerð væri lokið og Úranus
hefði lagt af stað heimleiðis í
gærkvöldi.
víkur og er dagskrá hennar
í stórum dráttum á þessa
leið: Laugardagur kl. 14: Ráð-
stefnan sett af formanni
Heimdallar Birgi Isleifi Gunn
arssyni. Síðan flytur Geir
Hallgrímsson borgarstjóri
erindi um framtfðarverkefni
og fjármál borgarinnar. Þá
flytur Jóhannes Zoega verk-
fræðingur erindi um Hita-
veitu Reykjavíkur. Klukkan
17 mun ráðstefnan skipta sér
í hópa og mun innan hvers
hóps fara fram viðræður við
borgarstjórnarfulltrúa um
gang mála í borgárstjórn. Kl.
18 flytur Jónas B. Jónsson
fræðslustjóri erindi um
fræðslu-, íþrótta- og æsku-
lýðsmál.
Sunnudagur 25. marz. Fund
ir hefjast á ný kl. 14 og mun
þá Gústav E. Pálsson borgar-
verkfræðingur svara fyrir-
spurnum um verklegar fram-
kvæmdir í Reykjavík. KI. 16
verður lagt upp í kynnisferð
um borgina og verður leið-
sögumaður í þeirri ferð Gísli
Framh. á 10. síðu.
Harry Venable vörubílstjóri
i hefur verið handtekinn að nýju <
1 þar sem talið er að hann geti ]
, gefið upplýsingar um smyglara-1
hringinn.
Goðafoss var ekki
farínn í gærkvöUi
Goðafoss hafði enn ekki
látið úr höfn í New York
undir miðnætti s.l. nótt (eftir
ísl. címa), þegar Vísír áttí
stutt símtal við Einar Bald-
vin Guðmundsson, formann
Eimskips á hóteli hans þar í
borginni.
Einar kvaðst þó öruggur
um að skipið fengi að sigla.
Ekkert hafði enn verið ákveð
ið um sektarupphæð þá, sem
skipafélaginu ber að greiða,
og má vera, að sektin verði
ekki ákveðin fyrr en skipið
er í hafi.
Formaður Eimskips taldi,
að mál hefðu nú skipazt bet-
ur fyrir félagið en nokkur
gat vonað. Kvað hann yfir-
völd í borginni hafa látið í
það skína, að allt samstarf
við Eimskipafélagið og skips-
menn við að upplýsa málið,
hefði verið ákjósanlegt.
A ðeins Peromstar voru
/ allsherjarverkfallinu
Frondizi hefur fallist á lausn-
arbeiðni Carlos Coll Benegas
fjármálaráðherra.
Allsherjarverkfallinu, sem 62
verkalýðsfélög, sem styðja Per-
onista, stóðu að, lauk í morg-
un. Vinna stöðvaðist í iðnaðar-
Hólaskóli ek’J lagður
niSur — en reistur við!
VÍSIR hefur nú frétt að Gunn-
ar Bjarnason hafi ákveðið að
segja upp stöðu sinni sem skóla
stjóri á Hólum í Hjaltadal. —
Hann mun starfa áfram að fram
faramálum landbúnaðaríns f
landinu.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hver taki við starfinu, en erfið-
leikar bændaskólans á Hólum
stafa af áratugavanrækslu Iand
búnaðarráðherra Framsóknar-
fiokksins. En Hólaskóli á svo
mikil ítök f þjóðinni, að aðgerð
um mun nú verða haldið áfram
til að reisa hann við. Lýsti Ing-
ólfur Jónsson landbúnaðarráð-
herra því yfir fyrir nokkru í
snmtali við Vísi, að Hólaskóli
verði ekki Iagður niður.
★
í áratug átti Framsóknar-
flokkurinn Iandbúnaðarráð-
herra í riklsstjórn En ráðherrar
Framsóknarflokksins vanræktu
mál skólans svo mjög að vand-
ræðaástand ríkti þegar fyrrveV-
andi skólastjóri Kristján Karls-
son lét af störfum. Verður hon-
>un þó ekki um það kennt, þar
sem það voru Framsóknarráð-
herrarnir sem vanræktu að sjá
skólanum fyrir fjárframlagi.
Eftir valdatíð Framsóknar
var svo komið að fjósið lak,
vélar voru úr sér gengnar,
skolpleiðslur bilaðar, rafmagn í
ólagi og öll hús í meiri og minni
niðurníðslu.
Framh. á 10. síðu.
hverfunum í úthverfum borgar-
innar, en inni í borginni gekk
allt sinn vanagang, því að önn-
ur verkalýðsfélög tóku ekki
þátt í því. — 1 sumum úthverf-
um var unnið. Það voru aðal-
lega verkamenn í stál- og vefn-
aðariðnaði sem lögðu niður
vinnu.
//
//
Þorgeir
kemur
heim
Fyrir nokkru fór fram í Leith
í Skotlandi uppboð á íslenzka
fiskiskipinu Þorgeir, sem var
eign Stefáns Franklins og hefur
verið í viðgerð og endursmíði
þar ytra um skeið.
Þorgeir er gamalt stálskip,
smíðað í Hollandi 1925 og er
það 127 tonn á stærð. Hann var
gott sjóskip og hefur nú verið
Framh. á 10. síðu.
Yfirvöldin gripu ekki til
neinna sérstakra öryggisráð-
stafana vegna verkfallsins.
Franska stjórnin birti nokkr-
ar tilskipanir í gær varðandi ^
Alsír, m. a. uppgjöf saka. i
Meðal þeirra, sem fengu sak- ’
aruppgjöf, eru serkneskir
menn, sem fangelsaðir voru í
Frakklandi fyrir stuðning við
FLN. Einnig eru náðaðr fransk-
ir menn, sem dæmdir voru í
fangelsi fyrir sömu sakir.
Sakauppgjöfin nær aðeins til
þeirra, sem hafa rétt til kosn-
inga í þjóðaratkvæðinu, eða
með öðrum orðum Frakka og
Serki sem eiga heimilisfang í
Alsfr.