Vísir - 17.05.1962, Blaðsíða 1
VÍSIR
52. árg. — Fimmtudagur 17. maí 1962. — 110. tbl.
kvæmdir síðustu árm
Sundlaug og Luugurduls-
svæðið tekið í notkun
íþróttirnar eru bæði heilsubrunnur og aflgjafi. Fátt
er mikilvægara æsku bæjarins en góð skilyrði til
íþróttaiðkana, ekki síður en þeim, sem eldri eru. Hvað
hefir borgarstjórn Reykjavíkur framkvæmt í íþrótta-
málunum síðasta kjörtímabil undir forystu Sjálfstæðis-
flokksins?
Árið 1959 var vígður fyrsti áfangi hins glæsilega íþróttasvæðis
I Laugardalnum og geta nú um 13.000 manns horft þar á íþrótta-
keppni.
Verið er að byggja á sama stað fullkomnar sundlaugar og
verður þar stærsta sundlaug Iandsins.
I ár verður hið mikla íþrótta- og sýningarhús í Laugardalnum
fokhelt en byrjað var að byggja það 1959. Þar er stærsti salur
landsins og rúm fyrir 2000 áhorfendur að íþróttamótum. Yfir
II milljón krónum var varið til þessara framkvæmda á kjör-
tímabilinu.
Vesturbæjarsundlaugin var byggð og tekin í notkun. Hún kost-
aði 9 millj. krónur.
íþróttafélögunum hefir verið úthlutað lóðum undir íþrótta-
svæði og félagsheimili viðsvegar um bæinn og hefir bærinn styrkt
þau með tæpra 2 millj. króna framlagi.
Hin glæsilega íþrótta- og sýningarhöll, sem nú er í byggingu í Laugardalnum.
Hin nýja og glæsilega Sundlaug Vesturbæjar var reist á kjörtímabilinu. Önnur sundlaug, sú hin stærsta á Iandinu, er nú í
byggingu í Laugardalnum.
ANNAR STYRKUR
Þetta sýnir að Sjálfstæðismenn
í borgarstjóm vinna ötullega að því
að búa í haginn fyrir bæjarbúa á
íþróttasviðinu. Auk þesssemfyrrer
talið hefir borgarstjórn greitt kostn-
að við íþróttanámskeið sem farið
hafa fram á féiagsvöllunum fyrir
ófélagsbundna æsku. Starfsemi
íþróttafélaganna hefir verið styrkt
með 2 millj. króna, auk áðurnefndra
styrkja. A þann hátt tryggja borg-
aryfirvöldin að íþróttafélögin séu
ætíð þess megnug að sjá um að
æska Reykjavíkur geti stundað holl
ar íþróttir við beztu skilyrði.
STEFNUSKRÁIN
Næsta kjörtímabil mun Sjálfstæð
isflokkurinn m.a. stefna að eftirfar-
andi:
Að fullgera sundlaugarnar í Laugar
dalnum, á kjörtímabilinu.
Að hraða byggingarframkvæmdum
við nýja íþrótta- og sýningar-
húsið í Laugardalnum.
Að koma upp vélfrystum skauta-
svellum og bæta þannig aðstöð-
una til skautaiðkunar. Aðstaða
til skíðaiðkana verði bætt.
Að hefja undirbúning að gerð mal-
arvallar i Laugardalnum.
Að koma upp æfingarsvæðum í 4
nýjum borgarhverfum.
Framh. á bls. 5
Kosninga-
fundur á
Akranesi
Sjálfstæðismenn á Akranesi
efndu til kosningafundar í Bíóhöll
inni í gær. Var fundurinn fjölmenn
ur, — hvert sæti skipað, og var
þetta að öllu leyti hinn ágætasti
fundur.
Um það bil 10 manns tóku til
máls á fundinum, ungir og gamlir
Sjálfstæðismenn, þeirra meðal
frambjóðendur flokksins.
Fundarstjóri var Sverre Valtýs-
son lyfjafræðingur.
Tíminn í morgun reyn-
ir að eigna Framsóknar-
flokknum allan heiður-
inn af því að lánsfé
fékkst tii byggingar
nýju stöðvarinnar við
Efra-Sog, Steingríms-
stöðvar, árið 1959. Það
er broslegt að sjá Fram-
sókn stæra sig af því að
hún hafi haft forgöngu
um stærstu velferðamál
Reykvíkinga. Ekkert er
fjær sannleikanum.
Þó er þetta ekki í fyrsta sinn
sem Framsókn reynir að eigna
sér verk annarra. Hitaveitan
var eingöngu verk Framsókn-
ar, sagði Tíminn fyrir nokkrum
árum!
Sannleikur máisins er sá að
sumarið 1956, skömmu áður en
hún fór frá völdum, hafði
stjórn Ólafs Thors fengið lof-
orð um lánsfé til virkjunar
Efra-Sogs. En þegar vinstri
stjórnin, undir forsæti Her-
manns Jónassonar, tók við um
sumarið iokuðust þær lánsfjár-
leiðir. Að sjálfsögðu var það
skylda vinstri stjórnarinnar að
tryggja fé til svo stórfellds og
nauðsynlegs fyrirtækis sem
virkjunarinnar og situr sízt á
Framsókn að stæra sig af því
þrekvirki nú rétt fyrir kosning-
ar.
Það eru borgarstjórar Sjálf-
stæðismanna sem hafa haft for
göngu um allar þrjár virkjanir
Sogsins. Fyrst Jón Þorláksson
um Ljósafossvirkjunina, síðan
Bjarni Benediktsson og Gunn-
ar Thoroddsen um írafoss og
Steingrímsstöð. Reykjavíkur-
bær hafði alla forgöngu um
þessar þrjár virkjanir Sogsins,
enda eini eigandi þess til 1949,
og þær framkvæmdir voru all-
ar gerðar undir forgöngu Sjálf
stæðismanna í bæjarstjórn.
Það virkar þvf mjög spaugi-
lega að sjá Framsókn stæra sig
af verkum annarra. Enginn neit
Framh. á bls. 5