Vísir - 17.05.1962, Blaðsíða 10

Vísir - 17.05.1962, Blaðsíða 10
70 ----- VISIR 9 leiðangrar í Veitt hafa verið leyfi fyrir níu rannsóknarleiðangra erlendis frá, til að stunda rannsóknir hér á landi, samkvæmt upplýsingum, sem Steingrímur Hermannsson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknarráðs rík- isins gaf blaðinu í morgun. Allir þeir, sem stunda vilja rannsóknir hér, verða að sækja um leyfi hjá Rannsóknarráðinu og liggja all- margar fleiri umsóknir fyrir. Frá Kanada kemur Mr. Peterson, kanadiskur vísindamaður. Hann Versnandli - Framh. af 4. síðu áheyrn í gær og það var þá, sem hann sagði, að eitt aðalmark í ut- anríkisstefnu Frakkiands væri stofnun nýtízku atómhers. Þennan fund sátu margir ráðherrar og um 800 fréttamenn. De Gaulle ræddi einnig önnur mikil markmið, svo sem að efla efnahag og hverskon- ar framfarir, vísindi og listir. Nýtt alsírskt riki bráðlega. De Gaulle kvað r.ýtt, alsírskt ríki verða komið á laggirnar inn- an nokkurra vikna, þrátt fyrir ó- dæðisverk OAS. Berlín. Forsetinn kvað viðnæðurnar um Berlín við Rússa á ábyrgð Banda- ríkjamanna. Hann ræddi einingu og traust milli Frakka og Þjóð- verja til framtíðarörvggis beggja iandanna og álfunni allri — og nauðsynlegt kvað hann að treysta Norður-Atlantshafsbandalagið. kemur hingað í júlí til skordýra- rannsókna. Þann 13. júlí kemur hingað 7 manna hópur frá The Society for exploration og dvelja hér til 14. september, við jökla- og grasa- fræðirannsóknir. Næsti hópur, sem kemur frá Englandi, er allstór hóp- ur kennara og nemenda frá Mer- ton Grange School, sem kemur í júlí. Mun hann dveljast í Hvítár- dal, á svæðinu upp að Húsafelli. Síðan kemur hér Ungfrú Haynes, frá Girton College í Cambridge. Mun hún stunda grasa- og jarð- j fræðirannsóknir við Hagavatn. Frá Hollandi kemur svo sex manna hópur á vegum Minero- logisch Geologisch Institute. Munu þeir verða á Norðurlandi og halda áfram jarðfræðilegum rannsóknum, sem prófessor Rutten hefur stund- að hér svo árum skiptir. Þann 30. júní kemur hingað kona frá Gatty Marine Idboratory í Skot landi. Nefnist hún Helen Blaekler og mun dveljast hér í tvær vikur við rannsóknir í þörungagróðri. Í'júlí og ágúst munu dvelja hér 9 stúdentar frá Glasgow Univer- t sity ásamt leiðsögumanni ,og munu þeir stunda jarðfræðirannsóknir á Vindheimajökli. Frá Svíþjóð koma tveir aðilar. Fyrst Bengt Jonsell frá Uppsala Háskóla, sem mun stunda grasa- fræðilegar rannsóknir og plöntu- söfnun. Síðar kemur Áke Hansten frá Kvarter Geologiska Institution sumar í Uppsala og leggur stund á jarð- fræðirannsóknir við Hvítárvatn og Sandvatn í ágúst. Kjarnorkuknúin flugstöð Bandaríski flotinn hefir nú tekið við fyrsta flugstöðvarskipinu, sem knúið er með kjamorku. Þetta er flugstöðvarskipið Enter- j prise, sem er um 65.000 lestir, en 1 kostnaður við það varð hvorki meira né minna en 450 milljónir dollara eða næstum 2 milljarðar króna. Á Kaupmáttu: sterlingspunds, er var 20 shillingar — eða 100% — árið 1951, er nú aðeins talinn 15 shillingar og 8 pence eða tæplega 79%. Setjið X við D BARNKOMA DANARTALA B O: ? í 2. § p cu 2 o ►t < g o* OH l § 2 o *1 <g < sfi o* cx B o: 2 «/> I í C5 Q* a a 2 o cn < ►u5 «> ________ o. £ Oi Heilsugæzlan Framh. af 8. síðu. ingadeild þurfi að koma við Borgarsjúkrahúsið. Þess má geta í þessu sambandi að fjór ir flokkar sjúklinga hafa allt- af verið óskertir í höndum ríkisins. Það eru berklasjúkl- ingar, geðveikir, fávitar og holdsveikir. Það hefur ekki þótt rétt að breyta þessu, enda væri nær að ný og mynd arleg geðsjúkdómadeild undir stjórn hins unga Tómasar Helgasonar, kæmi í einni álmu Landsspítalans. y^ndstæðingar Sjálfstæðis- flokksins hafa heldur Lfnuritið sýnir að meðal Norðurlandaþjóða, sem þó eru taldar einna fremstar á sviði heil- brigðismála, hefur Island hæstu fæðingartölu, en er þrátt fyrir það með lægstan ungbama- dauða, raunverulega betri en Svíþjóð. Miðdálkurinn sýnir allsherjar dámartölu og var ísland þar ríflega lægst. (Heimild: Tidskrift for Sjukskorskar. Sept. 1960. Bls. 655. — í heilbrigð- isskýrslum 1957, sem em þær síðustu sem birzt hafa, koma þessar tölur þó enn glæsi- legar út. Þar er barnkoman 29.2, dánartalan er 7.0 og ungbarnadauði 16.9, sá lægsti, sem nokkum tíma hefur verið skráður hér á landi. „lélegar lummur“ upp á að bjóða í heilbrigðismálum. Enda er erfitt að komast fram hjá þeirri staðreynd að barnadauði er lægstur hér í öllum heiminum, að Svíþjóð undanskilinni. Þrátt fyrir hina miklu slysahættu sem aðalatvinnuvegur okkar, fisk veiðar. hafa i för með sér, er meðalaldur hér á landi með þeim hæsta sem menn vita um. Fimmtudagur 17. nlaí 1962. Þetta em myndir teknar f Vatnajökulsferð Jöklarannsóknafélags- ins. Efri myndin sýnir snjóbílinn og kofa félagsins, sem stendur hæst húsa á íslandi, á Grimsf jalli hjá Grímsvötnum, í 1720 metra hæð. Þar hafa þeir „pósthús“ eftir næstu mánaðarmót og fram um hvítasunnu. Á neðri myndinni er pósturinn að stimpla bréf- in upp á jöklinum. Vorleiðangur á Vatnajökul Tíundi vorleiðangur Jöklarann- sóknafélagsins á Vatnajökuli verð- ur farinn á uppstigningardag, væntanlega 15 manns f 2 snjóbíl- um, og stendur ferðin fram yfir hvftasunnu, í þeim erindum fyrst og fremst að gera aíhuganir á úr- komu og mæla Grímsvötn, og nú f fjórða sinn setja leiðangursmenn upp pósístofu í hási því, sem hæst stendur á íslandi, kofa félags ins á GrímcfjaMi. Nýtt Vatnajök- ulsumslag er nú gefið út með mynd af Sveini Pálssyni náttúru- fræðingi og lækni, á 200. fæðing- arári hans. Ferðinni stjórnar dr. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur og Magnús Jóhannsson útvarpsvirki, sem ásamt formanninum Jóni Ey- þórssyni veðurfræðingi skýrðu fréttamönnum frá ferðinni í stór- um dráttum í gær. Töldu þeir rann sóknir félagsins hafa náð of skammt til þessa, bæði sökum skorts.á starfsfólki og fjármagni, hefði ekki verið styrkt sem skyldi og orðið að afla sér fjár með rekstri „pósthússins“ þar efra, sem hefði oftast gengið ágætlega. En nú, þegar hillir undir virkjun stórfljóta, sem eiga upptök sín undir jöklunum, mætti ætla, að meiri skilningur verði sýndur starfi Jöklarannsóknafélagsins. Verður nú enn mælt yfirborð Grímsvatna, sem hefir hækkað um 10 — 15 metra á ári. Nú hefir félag- ið fengið bor sem kemst 10 metra niður í jökulinn og gerir það verkið ólíkt auðveldara, þar sem þeir áður þurftu að grafa með skóflu. Nýja Vatnajökulsumslagið er, sem áður segir, með mynd af Sveini Pálssyni á 2ja alda afmæli hans, en hann var mestur jökla- rannsóknamaður síns tíma Mynd- in er eftir séra Sæmund Hólm. Af umslögum þessum verða 5000 tölusett og kosta 10 krónur, en ó- tölusett verða um 1000, svo að þetta er lítið upplag og verður fljótt verðmætt. Sala er byrjuð í Radíóbúðinni á Óðinsgötu 2. Þeir sem keypt hafa undanfarin ár, hafa forgangsrétt nú til 23. þ. m., en ekki lengur. Vinnið að sigri Sjálfstæðisflokksins ► ALLT Sjálfstæðisfólk í Reykjavík er hvatt til að starfa fyrir sjálfstæðisflokkinn, bæði á kjördegi og fyr'r kjördag. Skráning sjálfboðaliða fer fram í Sjálf- stæðishúsinu kl. 9—12 og 13—19, og á hverfaskrif- stofum Sjálfstæðisflokksins frá kl. 13—19. ► FÓLK, sem viIJ leggja Sjálfstæðisflokknum lið sitt í kosningabaráttunni, er beðið um að láta skrá sig sem fyrst.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.