Vísir - 26.05.1962, Síða 2
VISIR
Laugardaginn 26. maí 1962.
JTJ!5T_XPQlTa~fcji
v/////mY////A/m*y////á
w/ /////m'///////////m //////////m y//////
EKKERT MÁ AMA AÐ EF
ÁRÁNGUR Á AÐ NÁST
— segjo Brazilíumenn
Brazilíumenn eru almennt taldir
líklegastir sigurvegarar í HM í
knattspyrnu í Chile. Hafa þeir nú
fyrir skömmu sett niður æfinga-
búðir fyrir landslið sitt í brazilísku
smáborginni Campos de Jordano,
en loftslag þar er næst því sem
það er 1 Chile.
Undirbúníngur Brazilíumanna og
nákvæmni er einstök og standa
fulltrúar hinna 15 þátttökuland-
anna gapandi er þeir sjá hin vís-
indalegu vinnubrögð þeirra. Sál-
fræðingur, tannlæknir, læknar, fót
snyrtingarmaður o.sfrv. Ekkert á
að vera í ólagi hjá leikmönnunum,
þeir eiga að vera í ,,toppformi“
þegar þeir mæta til leikanna, ekk-
ert má angra þá, þvi það kemur
fram í lélegri ieik þeirra. Sé ein-
hver með skemmda tönn, þá er sá
hinn sami þegar sendur til tann-
læknisins í búðum þeirra í Campos
de Jordano og þar er skemmda
tönnin tekin í gegn. Leikmenn
ganga og í gegnum margar lækn-
isskoðanir og sálfræðingar athuga
taugar þeirra og viðbrögð, — og
þjóðrækni. Eftir niðurstöðum sér-
fræðinga þessara verður að mestu
leyti raðað í lið Brazilíumanna er
HM hefst um mánaðamótin.
Og Brazilíumenn hafa líka annað
sem aðrir hafa ekki. Um 20 snill-
inga í knattspyrnu, og nægir þar
að benda á undramanninn Péle og
innherjann Zito, sem nú er á
hraðri leið með að verða stærst
stjarna þeirra. Það sem Brazilíu-
menn eru nú £ mestum vandræum
með er: Hverjir eiga að verða út-
undan?
Keppnin í Chile hefst á miðviku-
daginn.
//
Óþekkt stærð
fundin / dag
í dag kl. 16 hefst 51. íslands-
mótið í knattspyrnu og fara þrír
leikir fram á þrem stöðum á land-
inu. Fyrst er leikur Fram og Ak-
ureyringa á Laugardalsvelli, en
nokkru síðar hefjast svo leikir
milli ísafjarðar og KR á ísafirði
kl, 17) og leikur Akraness og Vals
á Akranesi (kl. 17.30).
Molnr frá Chile:
■jc Fyrsta landsliðið til Chile kom
til Santiago á laugardag og var
fagnað af þúsundum manna í
flughöfninni. Var þetta landslið
Sviss. Koma Itala og Ungverja
seinkaði nokkuð vegna flug-
slyss í Buenos Aires. 5000 ítalir
í Chile höfðu þá safnazt saman
£ flughöfninni en fóru fýluferð
£ það skiptið.
Margar vörutegundir í Chile eru
pú merktar HM-keppninni og £
hljómplötuverzlunum má fá
keyptar plötur með sérstökum
lögum tileinkuðum keppninni.
Sérfræðingum kemur saman um
Braziliu £ fyrsta sæti, en næstu
sæti telja þeir þannig skipuð:
Rússar, Itali'a, Spánn og —
Chile. En þess má geta að sér-
fræðingar eru ekki óbrigðulir.
Rússneska liðið á HM var meðal
áhorfenda á áskorendamótinu £
Curacao, en þar millilentu þeir
á leiðinni til Equator og Costa
Rica þar sem þeir leika undir-
búningsleiki.
„Það sem var gott 1958 verður
gott 1962“, er orðinn málshátt-
ur £ Brazihu. Það þýðir að meist
ararnir ’58 verða góðir ’62. I
liði þeirra frá þv£ f Svfþjóð vant
ar aðeins einn mann, v. fram-
vörðinn Orlando.
Verður gaman að fylgjast með
leikjunum, en utanbæjarliðin eru
ennþá hin „óþekkta stærð“ £ knatt-
spyrnunni, þó leikmenn þeirra £
úrvalsliðinu f fyrrakvöld hafi gefið
góðar vonir.
Leikið verðuf^jí.^eins og £
fyrra, bæði heirpa oe heipan og
eru leikir I. déildar pvi alís 30
talsins.
I dag hefst einnig keppni i 2.
deild með jafnmörgum leikjum og
f I. deild. I Keflavfk leikur heima-
liðið, sem talið er sigurstranglegt
£ keppninni við Hafnfirðinga, sem
hafa verið heldur daufir við knatt-
spyrnuna að undanförnu, en i
Sandgerði leikur heimalið, Reynir,
við Vfking og ekki ósennilegt að
heimamenn vinni, enda hörkutól
hin mestu, en Víkingar heldur ung-
ir og óharðnaðir margir hverjir.
Annars verður mikið fjör £ knatt
spyrnunni f dag og leikirnir munu
vera a. m. k. 16 £ hinum ýmsu ald-
ursflokkum, en Reykjavfkurmót
yngri flokkanna hefst £ dag.
lillfli
Tönn fannst athugaverð £ hinum snjalla framherja Péle og þá
var hafizt handa og gert við tönnina, þvi ekkert má ama að þegar
menn ætla að leika nógu góða knattspymu til að verða heims-
meistarar.
íslandsbikar Fram 50 óra
50 ár eru liðin i næstu viku frá
þvi fyrst var keppt um íslands-
bikarinn, sem tekinn var úr um-
ferð f fyrra. Það var Fram, sem
gaf þennan mikla silfurbikar til
keppni £ byrjun jún£ 1912 og auk
Framara kepptu þá um bikarinn
KR og Vestmannaeyjar, en KR sigr
aði.
Á íslandsmótinu nú verður að
sjálfsögðu keppt um bikar, en enn
er ekki ákveðið hvernig hann lít-
ur út eða hver verður gefandinn,
en eflaust verður sá gripur hinn
myndarlegasti, enda líklegt að
hann verði ekki látinn vera skem-
ur f umferð en Frambikarinn, sem
nú hefur verið hætt &ð veita.
Fyrir utan „villu“ Brazilíu-
manna £ Campos de Jordano, þar
sem Brazilfumennirnir æfðu fyrir
átökin í Chile.
Landsnefnd Skíðalandsgöngunn-
ar 1962 beinir þeim tilmælum til
Skíðaráða og héraðasambanda að
gera sem fyrst skil fyrir seld
merki og þátttökuskýrslur, ef þau
eiga það enn eftir.
Á myndinni er hinn frábæri sundmaður V-Þjóðverja, Gerhard Hetz, sem setti heimsmetið í 40G
metra fjórsundi í gærdag í Moskvu.