Vísir - 01.06.1962, Blaðsíða 7

Vísir - 01.06.1962, Blaðsíða 7
Föstudagur 1. júní 1962. 7 VISIR Hjörleifur á Gilsbakka. Hér koma enn vísur eftir Hjörleif Jónsson á Gilsbakka. Við skál: Breytist margt á langri leið, Ijótt er að kvarta og nauða, nú er bjart og gatan greið gegnum „svartadauða". Meðan aðrir laga ljóð, list og snilli finna, ylja ég mér við aringlóð æskudrauma minna. Líður seint úr minni mér mynd frá ljúfu kveldi þó ég félli fyrir þér freistinganna veldi. Oft er meina brautin bein bæði sveini og sprundi, ástin hreina, hún á ein helga leynifundi. Sætt ég naut við lestur ljóðs, logaði æskublossinn, þegar ég hlaut í faðmi fljóðs fyrsta ástarkossinn. Að kvöldi: Niður í bólið nakinn fer, næði og skjóli feginn. Lífs á hjóli leik ég mér lítið sólarmeginn. Og allt er breytingum háð: Reynist flest í veröld valt, veltur margt úr skorðum. Ég er sjálfur orðinn allt öðruvísi en forðum. Vormorgun: Hamrar, fossar hjallar, skörð, hlíðar, lækir, grundir, hólar, lautir, balar, börð, bjóða góðar stundir. Og tvennir eru tímarnir: Fyrr var ég í syndum sæll, sjafnar vermdur glóðum, en er nú bara aumur þræll yfir köldum hlóðum. En vonin lifir: Þó að margt sé misjafnt spor, manninn hart er reyni. Látum bjartra vona vor vaka í hjartans leyni. Líður daginn óðum á, einn ég plægi og herfa. Þreyttur fæ ég senn að sjá sól í ægi hverfa. \/X/WWWVWVA/\ Sjómannadagurinn n.k. sunnudág í 25. slnn Sjómannadagurinn er' að venju fyrsta sunnudag í júní, og nú verð- ur hann haldinn i 25. sinn, verð- ur þá tekinn í notkun nýr íbúða- áfangi í Hrafnistu og Sjómanna- dagsblaðið kemur út miklu stærra og veglegra en fyrr. Kvöldið áður verður haldin skemmtun fyrir Hrafnistubúa frá kl. 18—21, en að morgni sunnu- dags verða fánar dregnir að hún í Hrafnistu kl. 8, og kl. 10.30 verð- ur hátíðamessa í Laugarásbíó, hr. Sigurbjörn Einarsson biskup pré- dikar. Að messu lokinni verður svo lýst opnun nýrrar vistmannabygg- ingar og þar afhjúpað málverk af Sigurgeir heitnum Sigurðssyni bisk upi, er Sjómannadagurinn afhend- ir Hrafnistu. Verður svo vistmanna byggingin nýja opin almenningi til sýnis fram eftir degi. Kl. 2 e. hefs* "tihátíðahöld við Austurvöll, en nokkru áður leikur þar Lúðrasveit Reykjavíkur og mynduð verður fánaborg. Þá flytja ávörp Emil Jónsson sjávar- útvegsmálaráðherra sem fulltrúi ríkisstjórnarinnar, Ingimar Einars- son fulltrúi útgerðarmanna og Pét- ur Sigurðsson fulltrúi sjómanna. Síðan hefst afhending verðlauna. Veitt verða tvenn afreksbjörgunar- verðlaun, nýir, stó'ir silfurbikarar til eignar, og þá verður Fjalarbik- arinn afhentur. Verða um 10 sjó- menn heiðraðir. Þorsteinn Hannes- son óperusöngvari syngur einsöng. Að hátíðahöldum við Austurvöll loknum fara fram kappróðrar og skíðasýning á höfnuinni og þá enn afhent verðlaun. Sjómannakonur annast kaffiveitingar i Hafnarbúð- um og Sjálfstæðishúsinu, og renn- ur ágóði til jólaglaðnings vistfólks | í Hrafnistu. Um kvöldið verða al-1 mennir dansleikir á vegum Sjó- mannadagsins á sex skemmtistöð- um og að auki sérstakt sjómanna- hóf 1 Lidó. Framkvæmdastjóri Sjómanna- dagsins er Geir Ólafsson, en for- maður Sjómannadagsráðs Pétur Sigurðsson stýrimaður og alþm. Afgreiðsla á Sjómannadagsblað- inu og merkjum Sjómannadagsins verður á laugardag og sunnudag víðsvegar um bæinn og verða af- greiðslustaðirnir og skemmtistað- irnir auglýstir nánar í dagblöðum bæjarins á laugardaginn. Auk venjulegra sölulauna fyrir merki og blöð fá sölubörn að- gönguviða að kvikmyndasýningu í Laugarásbíói. '9' Yfirmaður flughers Frakka hefur birt grein í hernaðartíma- riti og segir þar, að flugherinn verði búinn að fá kjarnaydd flugskeyti í ársbyrjun 1964. * 'f Adlai Stevenson sagði i gær, að Bandarikjastjórn myndi styðja kosningu bráðabirgða- framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, U Thants, er kjörinn verður framkvæmdastjóri fyrir næsta fimm ára tímabil. Mac- millan hefur áður gefið í skyn, að Bretland muni greiða at- kvæði með U Thant, er þar að kemur. 'f' Lögfræðingar Adolfs Eich- manns hafa snúið sér til forseta ísraels cg beðið hann að breyta líflátsdóminum í ævilangt fang- elsi. ’f' Bandaríski hljómsveitar- stjórinn Benny Goodman og sveit hans ferðast nú um Sov- étríkin. Á þremur jazzhljómleik um, sem hann heldur í Moskvu, er allt uppselt fyrirfram. Svo fer hann í sex vikna ferðalag um landið og heldur hljómleika. Afsláttur á flugleiðum Flugfélag Island, hefur ákveðið að gefa afslátt á flug. iðunum milli Akureyrar og Rjykj Ikur, Egilsstaða og Reykjavíkur og Ak- ureyrar og Egilsstaða á tímabilinu frá 1. júní til 30. sept. n. k. Afsláttur þessi nemur 25% frá núv andi einnúðagjaldi, og verða þessi sumarfarg-'öld því sem hé- jir: 1. Re; :javík — Akureyri — Reykjavík :r. 750.00. 2. Reykjavíl — Egilsstaðir — Reykjavík kr. 1.065.00. 3. Akureyri — Egilsstaðir — /‘■'ureyri ’ 580.00. Fargjöld þessi eru háð eftirfar- andi skilyrðum: ^ Það vekur nú miklu meiri at- hygli vestur i Bandarikjunum en venjulegar njónaskilnaðar- fréttir úr „kvikmyndaheimin- um“, að Charles Boyer og Pat kona hans halda upp á 30 ára hjúskaparafmæli ;itt um þessar mundir. | Gagarin geimfari sagði f Tokio á Jögunum, að Rússar væru að „smíða risa-geimfar. sem ekki er hægt að bera saman við þau, sem ég og Titov fórum í kring- um jörðu“. 1 Að keyptur sé tvímiði og hann notaður báðar leiðir. 2. Farseðlar sem gefnir eru út með þessu gjaldi gilda í 1 mánuð frá því að f; helr ' .gur hans er notaður. Farseðla þessa er hægt að fá keypt- hjá 'llum 'jreiðslum og umboðsmönnum félagsins inn- anlands. Þá er annað nýmæli í fargjalda- r-álum sem gengur f gildi 1. júní. Fra þeim tíma taka gildi sérstök áframhaldsfargjöld. Skulu tekin hér tvö dæmi: 1. Flugfarþegi sem þarf að kom- ast frá ísafirði til Akureyrar, (en þar er °ngar flugferðir á milli sem kunnugt er ) sefir orðið að greiða venjuleg. fargjald frá ísa- firði til Reykjavíkur og svo frá R-ykjavík til Akureyrar, eða sam- tals kr. I.OOl.OO. Frá 1 "• „ ,ur viðkomandi farþe^,' flogið þessa leið fyrir kr. 805.00, og getur haft viðdvöl í ueykjav.k allt að 7 daga. 2. Flugf"1 ' gi frá Vestmanna- eyjum ti' Akureyrar hefur orðið að greiða 790 00 fyrir þessa leið, en get nú flogið sö. a leið fyrír öl- Sama máli gegnir um aðrar leið- i og hefur :i ' 'ik gjaldskrá ver- ið gefin út um þær. Ragnar Kvaran (1935). Jón Aðils (1953). Jón Sigurbjörnsson (1962). Þrír Skuggar Skugga Sveinn hefur nú verið sýndur í Þjóðleikhúsinu i vetur við meiri aðsókn en nokkur hefir fengið til þessa, sýning- ar orðnar 51 og* sýningargestir um 31,500. Nú verður enn ein sýning höfð. hin 52. og allra síðasta, Þjóðleikhúsinu kl. 2 siðdegis á sunnudag — til á- góða fyrir styrktarsjóði Félags íslenzkra leikara. Til gamans birtum við hér myndir af þrem síðustu Skugga -Sveinum í Reykjavík. Fyrst kemur Ragnar E. Kvaran, sem lék Skugga hjí Leikfélagi Teykjavíkur i Iðnó á aldaraf- mæli skáldsins séra .atthfas- ar. Þá urðu sýningar 32. Þá var leikstjóri Haraldur Björnsson, sem einnig stjórnaði leiknum í næsta sinn, í Þjóðleikhúsinu 1953, sýningar urðu 40, og lék Jón Aðils þá Skugga. Loks er svo mynd af Jóni Sigurbjörns- syni, sem leikið hefir aðalhlut- verkið • vetur og gerir það n.k. sunnudag í síðasta sinn, sem áðúr segir. leikstióri nú, sem kunnugt er, er Klemens Jóns- son.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.