Vísir - 01.06.1962, Blaðsíða 9

Vísir - 01.06.1962, Blaðsíða 9
Föstudagur 1. júní 1962. VISIR Uppreisn ungu skáldanna — Hver ert þú? — Ég er förumaður. — Já, en í hvaða samtökum, hvaða verkalýðsfélagi, hvaða samyrkjubúi eða verk- smiðju? — Ég tilheyri engum samtök- um, enginn sendir mig. Ég er aðeins maður, sem gengur um Rússland að gamni sínu. — Aðeins maður? Nei slíkt þekkist ekki hjá okkur. Farðu Iiið bráðasta burt. TjMnnst mönnum nokkuð sér- stakt við þetta litla brot úr órímuðu ljóði? Það túlkar að- eins venjulega einstaklings- hyggju og frjálsræði förumanns ins, hugmynd sem skáld okkar hafa nærri slitið út. En ljóðið er eftir ungt rússn eskt skáld, Vladimir Soluchin og meðal þjóðar hans hafa þessi orð óvenjulegan dularfull an kraft. Ljóðabrotið er tákn um skyndilega breytingu sem hefur orðið í Rússlandi á síð- ustu tveimur til þremur árum. Við upplestur þess hlýða rússn eskir áheyrendur þöglir á — og tilfinningarnar ólga. Það snertir éitthvað í hjörtum þús- undanna sem hafa verið inn- limaðir í skipulag og samtök sósíalísks þjóðfélags. Og það vekur eftirtekt, í landi þar sem rödd samvizkunnar hefur ekki fengið að tala í áratugi. Einstaklingshyggjan sem felst í þessu litla ljóði er í al- gerri andstöðu við kennisetning ar marxismans og hina vél- reenu fétagsstefnu sósíalismans, sem búin var að útskúfa „mann inum“. Það geymir í sér upp- reisnaranda gegn stjórn og sam tökum, löngun mannsins til að fá að vera aðeins maður, — ekki sósíalísk framleiðsiuhetja. Rússneskt skáld, sem svo hefði ort fyrir nokkrum árum hefði verið útskúfað og sent austur til Síberíu eða tekinn af lifi. í skáldsögunni doktor Sívagó eftir Pasternak birtist hvergi slíkur uppreisnarvilji. Þó var bók hans bönnuð og Pasternak útskúfað. En unga skáldið Vladimir Soluchin fær óhindrað að yrkja áfram og bækur hans eru gefn- ar út, þó kvæðin innihaldi gagn rýni. Hann fær áfram að um- gangast hóp annarra ungra skálda, sem hafa tekið sér það frelsi 1 hugsun að yrkja öðru- visi en gert hefur verið, öðru- vísi en eftir fyrirmælum vald- hafa og rithöfundasambandsins. Hv fvað hefur gerzt í Rússlandi? — Það hefur vissulega orð ið einhver mikil breyting þar og hún er mest í því fólgin, að vestræn áhrif hafa borizt til landsins eins og óstöðvandi elfa, eftir að létt var á höml- um, ferðalög jukust og harð- stjórn Stalíns var fordæmd. Fyrir þremur árum var Krús- év á ferð vestur I Ameríku og sá þar upptöku kvikmyndarinn- ar Cancan. Hann lét vanþókn- un sina I ljós yfir þessum grófa dansi sem hann sagði að höfð- aði til kynferðishvata og væri eitt merki úrkynjunar I heimi kapitalismans. En nú er farið að sýna nektardans, á skemmti- stöðum einskonar næturklúbb- um Moskvu-borgar. Flokksforusta kommúnista hefur á undanförnum árum for- dæmt hinn vestræna jazz, rock and roll og twist. En nú æðir jazzinn um alla skemmtistaði í Sovétríkjunum, jafnvel Krúsév lýsti þvl nýlega yfir við banda- rlska jazz-leikarann Benny Goodman, að sér þætti gaman að jazz og líklega enn skemmti legri ef hann kynni að dansa hann. Og twistið hefur fengið óvenjulega viðurkenningu. Fyrir þremur árum var sú hártlzka enn meðal kvenfólks I Moskvu að flétta sig og girða fléttunni I krans kringum höf- uðið. Nú’ hefur vestræn tízka hafið innreið sína og allsstaðar bæði á götum úti og á skemmti stöðum blasa við túberaðir koll- ar stúlknanna, óteljandi útgáf- ur af Brigitte Bardot og Elísa- betu Taylor. Fyrir þremur ár- um klæddu rússneskar konur og karlar sig I pokaleg pils og víðar buxur. Nú sjást hvar- vetna kjólar af Parísartizku, þröngar ameriskar karlmanna- buxur og farið er að halda tízkusýningar. Og því bregður jafnvel við að unglingar sjáist japla á tyggigúmmí. Þannig streyma vestræn áhrif slæm eða holl inn I landið. T> ússland hefur áður tekið á móti vestrænum straum um. Stutt millibilsástand komm únískrar harðstjórnar varð til þess að hindra þessi áhrif og hafði I för með sér stöðnun. En strax og rifa er opnuð I einangrunartjaldið streyma á- hrifin inn að nýju. Tjað er erfitt að segja, hvaða ” þýðingu þetta hefur fyrir stjórnmálaástandið í Sovétríkj- unum. Meira að segja marxism inn er vestrænn innflutningur I Rússland, þótt flestar vestræn- ar þjóðir hafi slðar horfið frá slíkum hugmyndum. Þessvegna er það erfitt fyrir sósíalískt þjóðfélagskerfi að meðtaka mik il vestræn áhrif, þvl að hætt er við að þeim fylgi einnig vest- rænar hugmyndir um lýðræði og manngildi, sem geta grafið undan hinni sósíalísku þjóðfé- lagsskipun. Þvl hefur verið litið á hin ungu skáld I Rússlandi sem vandræðabörn, talið að þeir tilheyrðu hinum ungu reiðu mönnum á Vesturlöndum, bo- hemunum og beatnikunum, sem kommúnistar hafa talið ein- kenni um spillingu kapitalfskra þjóðfélaga, - en er þá spilling in líka komin upp I sósíalísku þjóðfélagi? Gegn því vandamáli standa hinir sóvézku valdhafar nú ráðalausir. Þeir hafa leyft þessum nýju stefnum að vaxa upp á síðustu árum, en vita ekki til hvers þær geta leitt og geta ekki haft pólitíska stjórn á þeim. Enginn veit þó með vissu hvort þetta verður látið viðgangast lengi, eða hvort þetta er upphafið að hruni hins sósíalíska þjóðfélags kerfis. Það hefur vakið athygli á þessum breytingum I Rússlandi, að hið unga rússneska skáld Yevgéni Yevtushenko kom ný- lega I heimsókn til Bretlands. Hann er forustumaður hinnar nýju stefnu og áttu margir við- ræður við hann um þessi nýju viðhorf, og auk þess hefur hann ritað greinar I vestræn blöð. I Rússlandi tíðkast það, að einn dagur ársins 8. októ- ber er haldinn hátíðlegur sem „dagur Ijóðsins". Við hátíða- höldin á þessum degi s.l. ár gerðist það að mannfjöldinn kallaði Yovtushenko fram á Mayakovskytorgi. Rithöfunda- samband borgarinnar hafði efnt til ljóðalesturs á torginu og átti eingöngu að flytja þar „klassísk" Ijóð, það er að segja ort I anda Stalíns-tímabilsins, uppbyggileg ljóð, sem lofuðu dýrð ríkisins og flokksins. En I miðjum klíðum hófu áheyrend ur um 5 þúsund talsins upp hróp og heimtuðu að frægasta kvæði Yevtushenkos, sem nefn ist Babi Yar væri lesið upp. Stjórnendur samkomunnar komust I vandræði, því að upp lesturinn stöðvaðist. Loks höfðu þeir engin önnur ráð en að spyrjast fyrir um það I há- talara, hvort Yevtushenko væri staddur þar á torginu. — Jú, hann reyndist vera þar I mann- fjöldanum, sem bar hann skjótt á höndum sér að ræðustallin- um. lC'undurinn breytti skyndilega ■*• úm svip, þegar hann hóf lestur kvæðisins. Menn höfðu staðið og hlustað með kæru- leysi á hin andlausu lofgerðar- kvæði um sósíalismann, en allt I einu var eins og orðin megn- uðu að kveikja eld I brjóstum unga fólksins sem hlýddi gagn- tekið og spennt á. Þetta varð ógleymanleg stund þrungin heit um tilfinningum. Kvæðið Babi Yar fjallar um stað einn I Ukrainu, þar sem þýzkir nazistar myrtu 30 þús- und Gyðinga og köstuðu þeim í fjöldagröf. En rússnesk yfir- völd hafa ekki sýnt staðnum neinn sóma, enda er Gyðinga- hatur viðloðandi I Rússlandi, valdhafarnir hafa gerzt sekir Rússneska skáldið Yevtushenko. — Myndin var tekin í Englandsför hans fyrir skömmu. um Gyðingaofsóknir og er gerð ur I kvæðinu kaldhæðnislegur samanburður á þessu. Gkáldskapur Rússa hef ^ reyrður I fjötra I hefur verið reyrður I fjötra I áratugi. Vart er hægt að hugsa sér öm- urlegra hlutskipti, en það hvern ig skáldin hafa verið beygð með hótunum og loforðum um hlunnindi til skiptis. Afleiðingin er sú að bókmenntir sóvéttíma bilsins eru eins og gróðurlaus ■ eyðimörk. Hlutverk skáldanna var það eitt að halda uppi á- róðri fyrir harðstjórnina og framleiða I stórum stíl lofgerð- arkvæði um Stalfn. í áratugi gátu skáldin ekki vikið orð. að sorgum og erfið- leikum þjóðarinnar undir ógn- arstjórninni, ekki nefnt á nafn hin margháttuðu og miklu þjóðfélagslegu vandamái. Þau urðu að horfa þögul á mistök sósíalismans, en þó svaf ekki samvizka þeirra allra. Samvizka Boris Pasternaks var vakandi þótt hann hætti að yrkja og sneri sér að því að þýða leikrit Shakespeares. Strax og losað var um fjötrana spratt hún upp I líki Sívagós. Þó er vart hægt að kalla þá sögu beina þjóðfélagsádeilu, aðeins mannlega sögu um sorgir og óhamingju og erfið- leika. ]C’n nú eru ungu skáldin rúss- nesku fari; að ganga miklu lengra en Pasternak. Þó verða þau að fara varlega, þvl að enginn veit hvenær valdhaf- arnir þreytast á þessu og grípa I taumana. Þau tala I líkingum ljóðsins, segja hálfa sögu I kaldhæðnislcgum orðum og efasemdum. • Ungu skáldin eru stundum ásökuð um and-kommúnisma, en þeir mótmæla því harðlega og segja: Við höldum merki kommúnismans á loft. Því merki hefur verið haldið uppi af flekkaðum höndum, nú vilj- um við hreinsa burt óhreinind- in. En .ar að er gætt kemur I ljós, að lífsskoðun þessara manna er I andstöðu við komm- únismann. Tjegar Yevtushenko var stadd- ur I Englandi nýlega var hann m. a. spurður hvort hann tryðj á Guð. Hann svaraði: — Ég trúi á manninn. Hanr, var spurður hvort það þýddi að hann fylgdi kenning- um Krists? — Nei, ég er ekki fylgismað- ur Krists, en mér líka aðferðir hans, eins og þegar þú ert sleg- inn á nan vangann réttu þá fram hinn. — Þá ertu líka kristin- Framh. á bls. 5 1 i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.