Vísir - 01.06.1962, Page 11
Föstudagur 1. júní 1962.
VISIR
11
YOU'KE RI6HT,
RIP. IT'S THE
ENTRANCE TO
A TOMB/
' THIS
CROWBAR
OUSHT TO EE
OURTICKETOF
APMISSION...
THE BURIAL
CHAMBER CAN'T
BE VERY FAR
1) Það sr rétt, Rip, þetta er inn- j
gangur að grafhýsi.
Þessi járnkarl ætti að vera á-
gætur aðgöngumiði fyrir okkur að I
grafhýsinu,
2) Grafhýsið sjálft hlýtur að
vera hér rétt fyrir innan.
3) En úti horfir þorparinn á þau
ganga inn í grafhýsið.
— Nú er tækifærið fyrir mig til
að fara burt, meðan þau fara inn
í grafhýsið.
Helgi Tómasson.
hann Robert Joffrey öðrum fræg-
asta dansmeistara Bandaríkjanna.
Helgi hóf æfingar hjá honum í
des. s.l jg fór svo í sýningarferð
með flokki hans um allt landið
sýndi á 60 stöðum viS frábærar
viðtökur.
Stjórn Heimssýningarinnar 1
Seuttie fór þess á leit við Joffrey
að hann setti upp ballett ás ýning-
unni. Hann taidi, að vestra væri
ekki til nógu margir dansarar ame
rískir í slíkan flokk, vaidi 8 úr sín-
um flokki og fékk hina að, en alls
verða 25 í dansflokknum.
.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W.'.V.V.W.V.V.WWAWM.VW.V.SW.VW.W.V.V.V.V.V.'.V.W.V.V.V.WAW.
„Rekkju'-félagar eru fjórir: —
Leikstjórinn er Klemens Jónsson,
Guðni Bjarnason, og leikendur
Gunnar Eyjólfsson og Herdís Þor-
valdsdóttir. Þau leggja upp í leik-
ferðalag um land allt eftir mánuð
og sýna leikritið „Rekkjuna" eftir
hollenzka rithöfundinn Jan de
Hartog. Leikritið þýddi Tómas Guð
mundsson skáld, og það var sýnt
í Þjóðleikhúsinu fyrir mörgum ár-
um við mikla aðsókn og hrifningu.
Þá léku hlutverkin, sem eru aðeins
tvö, Gunnar Eyjóífsson og Inga
Þórðardóttir. Myndin hér að ofan
var tekin á æfingu Rekkjunnar í
gær og sýnir hjónin, þegar komin
eru á efri ár.
152. dagur ársins.
\æturlæknii er t slvsavarðstot-
unni slmt 15030
Næturvörður lyfjabúða er þessa
viku í Ingólfs Apóteki, Aðalstræti
4, gengið inn frá Fischerssundi,
sími 11330.
Neyðarvakt Læknafélags Reykja-
víkur og Sjúkrasamlags Reykjavík-
ur er kl. 13-17 alla daga frá mánu-
degi til föstudags Sími 18331.
Holts- og Garðsapotek eru optn
alla virka daga frá k 9 — 7 slðd
og á laugardögum kl 9 — 4 sfðd
og á sunnudöeum kl 1—4 sfðd
Útvarpið
Fastir liðir eins og venjulega. —
20.00 Daglegt mál. - 20.05 Efst á
baugi. - 21.00 Tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Háskólabíó,
fyrri hluti. Stjórnandi: Jindrich
Rohan. Einleikari á píanó. Jórunn
Viðar. - 21.45 Ljóðaþáttur: Þor-
steinn Ö. Stephensen les kvæði eft
ir Einar Benediktsson. - 22.00 Frétt
ir og veðurfregnir. - 22.10 „Aðeins
einn lítinn", smásaga eftir Dorothy
Parker (Svala Hannesdóttir þýðir
og les). - 22.30 Á síðkvöldi: Létt
klassísk tónlist. - 23.30 Dagskrár-
lok.
- Áheit og gjafir -
Strandakirkja: S. Þ. 200,00
Tillkynningar um lisfamanna-
laun eru móðgandi
— segir Tónskáldafélagið
ny
Forstjórinn verður reiður, ef
hann sér okkur vera að blaðra
héma hvor við aðra, við skulum
heldur fara inn 1 vélritunarher-
bergið og ráða laugardagskross-
gátuna f Vfsi.
HELGI DANSAR Á
HEIMSSÝNINGUNNI
Helgi Tómasson, íslenzki ballett-
dansarinn, hefir nú hlotið mestan
frama íslendinga á þessu sviði, orð
ið fyrir valinu einn af átta úr ein-
um bezta dansflokki Ameríku,
að koma fram og dansa með ó-
perusýningu „Aida“ á heimssýn-
ingunni í Seattle sem stendur
fram á haust.
Helgi byrjaði 8 ára gamall, að
færa dans í skóla Sifjar Þórs og
Sigriðar Ármanns, byrjaði svo í
dansskóla Þjóðleikhússins, um leið
og Bidsted ballettmeistari kom
hingað fyrst. Fór 14 ára til fram-
haldsnáms f f Kaupmannahöfn og
dansaði jafnframt námi í Tivoli
svo og að námi loknu, einnig í
sjónvarpi og f My Fair Lady í
Höfn. Balletmeistarinn heimsfrægi
Jerome Bobbins sá Helga dansa á
æfingu haustið 1959, bauð honum
að koma vestur um haf og dveljast
í hinum fræga skóla sínum, sem
Helgi þáði, var þar vetrarlangt og
aftur næsta vetur. Þá kynntist
Tjón vonum
minna
Rekkjan sýnd á
Tjón á skóglendi varð vonum
minna f skriðuhlaupinu f Laugar-
dalsfjalli, sagði Hákon Bjarnason
við V£~’ í morgun.
Það eyðilagðist þama að vísu
hluti af laglegri spildu, bætti Há-
kon við, spildu sem Norðmenn
gróðursettu árið 1955. Það mun
hafa eyðilagzt þarna um eða innan
við 1 þúsund plöntur, en það voru
plöntur sem höfðu dafnað vel og
var eftirsjá að
Auk þessa eyðilagðist nokkuð
af birki og öðrum gróðri, svo og
skógræktargirðingin á kafla, en
þetta tjón varð minna, en blöðin
töldu að þarna hafi orðið, og Há-
kon kvaðst þess fullviss að þar
sem skriðan sjálf liggur nú myndi
gróður fljótlega myndast að nýju.
Það sem ekki grær er sjálf klöpp-
in fyrir ofan skriðuna. Hún er ljót
og þar vex aldrei gróður framar.
Nýlega var haldinn aðalfundur
Tónskáldafélags íslands. Úr stjóm
átti að ganga Skúli Halldórsson,
og var hann endurkjörinn til næstu
þriggja ára, bæði í stjórn Tón-
skáldafélagsins og Stefs.
Jón Leifs var endurkjörinn for-
maður Tónskáldafélagsins og
Stefs.
Heiðursfélagar voru kjörnir þeir
Helgi Pálsson, Karl O. Runólfsson
og Þórarinn Jónsson.
Fundarmenn færðu formanni
einum rómi „þakkir fyrir allt hans
mikla starf í þágu Tónskáldafé-
lags Islands allt frá stofnun þess.“
Að loknum venjulegum aðal-
fundarstörfum voru samþykktar
einróma þessar ályktanir:
„Aðalfundur Tónskáldafélags Is-
lands færir Vilhjálmi Þ. Gíslasyni
útvarpsstjóra sérstakar þakkir fyr-
ir að stofnsetja Tónskáldasjóð
Ríkisútvarpsins til að auka vöxt
og viðgang og útbreiðslu íslenzkr-
ar tónlistar.
Þar sem þessi sjóður tryggir
með skipulagsskrá sinni beztu sam
vinnu milli Ríkisútvarpsins og ís-
lenzkra tónskálda, og útvarpið hef-
ur hina beztu aðstöðu til að styðja
útbreiðslu íslenzkrar tónlistar I
samvinnu við erlendar útvarps-
stöðvar, skorar aðalfundur Tón-
skáldafélagsins á Menntamálaráð
íslands að fela stjórn Tónskálda-
sjóðsins útbreiðslumál Islenzkrar
tónlistar og fer þess einnig á leit
við menntamálaráðherra, að hann
undirbúi lagasetningu og reglugerð
um fjárveitingar Menningarsjóðs
til tónlistarmála í samrærpi við
Iög þau um Menningarsjóð, sem
ráðherra undirbjó á sínum tíma
og urðu að Iögum einmitt fyrir
hans eindregna tilstilli."
„Aðalfundur Tónskáldafélags Is-
lands leyfir sér að vekja eftirtekt
stjórnarvaldanna á því, að opin-
berar fréttatilkynningar um úthlut-
un og skiptingu listamannalauna í
misjafna flokka verða að teljast
móðgandi fyrir einstaka Iistamenn
og jafnvel fyrir heilar stéttir lista-
manna meðan fyrirkomulagi út-
hlutunar hefur ekki verið breytt
og fjárhæðin aukin.
Fundurinn mótmælir þessu
blygðunarleysi nefndarinnar, sem
þannig hefur tekið sér dómsvald
í málum, sem hana skortir öll skil-
yrði til að geta dæmt um.“
„Rekkjufélagið" nefnist eitt nýj-
asta félagið hér i borginni, leik-
félag, sem hefir á dagskrá sinni
eitt leikrit, sem félagið heitir eft-
ir, „Rekkjunni", og leikendur geta
ekki öllu færri verið — aðeins
tveir.
Peningaþjófnaður
á Selfossi
Nýlega var stolið 5 þúsund krón-
um í húsi austur á Selfossi.
Það var um níu leytið að
kvöldi, að kona þar eystra varð
vör við, að einhver hafði farið inn
í íbúðina, sem stóð opin, og tekið
peninga, sem þar höfðu legið á
glámbekk, og tilkynnti lögreglunni
á staðnum um peningahvarfið. Þeg-
ar Vísir átti tal við fulltrúa sýslu-
manns síðast hafði lögreglan
ekki komizt á snoðir um, hver
þjófnaðinn framdi.
Auglýsið í Vísi