Vísir - 27.06.1962, Blaðsíða 2
VISIR
Miðvikudagur 27. júní 1962.
“T
&
5UP
Dr=j i=a
tfn
m
Þetta er Ármannssveitin sigursæla, sem „snarbakaði“ allar aðrar sveitir 1 hinum skemmtilegu
boðsundum (náttfata og blöðru) á sundmótinu á laugardaginn var. Kempuoiar eru taldar frá
vinstri: Guðbrandur Guðjónsson, Pétur Kristjánsson, Ólafur Guðmundsson og Siggeir Siggeirsson.
Lið SBU kom
í gærkvöldi
1 gærkvöldi kom flokkur sjá-
lenzkra knattspyrnumanna hingað
tjl Reykjavíkur á vegum KR. Leika
þeir 4 leiki hér í Reykjavlk, þann
fyrsta í kvöld við Fram, sem er ná
efsta liðið í 1. deild. Annar leikur-
inn er svo á föstudagskvöldið við
KR og þá leikur Þóróifur Beck i
fyrsta sinn á íslenzkri grund frá
því hann gerðist atvinnumaður
með skozka knattspyrnufélaginu
St. Mirren s.l. haust. Þórólfur hef-
ur verið hér um nokkurra vikna
skeið í sumarfríi, en hefur haldið
sér við með því að æfa með sínum
gömlu félögum í KR. Er ekki að
efa að margir munu vilja sjá Þór-
ólf leika. Þriðji leikurinn er gegn
Akranesi á sunnudag en að öllum
líkindum mætir Akranes með Rík-
Öryggi á vinnustöðum
harð, Svein Teitsson, Þórð Jóns-
son og aðrar viðlíka kempurog að
lokum sfðasti leikurinn gegn úr-
vali landsliðsnefndar, og fer sá leik-
ur fram á miðvikudaginn.
Dönsku leikmennirnir eru allir
vanir leikjum í úrvalsliðum og
enda þótt fæstir séu þeir í I.
deildinni dönsku er ekki að efa að
hér er á ferðinni gott lið.
Ekki er ólíklegt að seinna í
sumar megi hjá byggingarverka-
menn, þá sem vinna við háhýsin
hér í Reykjavík bera öryggis-
hjálma. Öröggistæki eða líkams-
hlífar, eins og það er kallað, er
sífellt verið að taka meira og
meira í notkun, enda eru augu
manna almennt að opnast á nauð-
syn þeirra. Má í þessu sambandi
nefna mynd þá, sem birtist í Vísi
fyrir nokkrum dögum af slysi, sem
varð þegar bíll ók á bifhjól. Sýndi
myndin greinilega, hvernig hjálm-
ur sá, sem ökumaður bifhjólsins
bar, tók af mesta höggið og bjarg-
aði þannig bcinlínis lífi hans. Vakti
myndin mikla og verðskuldaða at-
hygli og um leið menn til um-
hugsunar um þessi efni.
Þar sem mörgum leikur forvitni
á að vita, hvað gert hafi verið í
slíkum öryggismálum, sneri blaðið
sér til Þórar Runólfssonar hjá Ör-
yggiseftirliti ríkisins.
Þórður tjáði okkur, að starfandi
væri norræn svonefnd líkams-
hlífanefnd, sem hann sæti í sem
fulltrúi Islands og hefði nefnd
þessi á prjónunum ýmisleg áform
um aukna notkun líkamshlífa.
„Reyndar hefur notkun líkams-
hlífa nú þegar rutt sér mjög til
rúms á Norðurlöndum,“ sagði
Þórður, „en í ráði er að fylgja
fordæmi þeirra hér á landi alveg
á næstunni. Erfitt er að koma sam-
an reglugerð, svo að vel sé, og
hefur þetta þyf dregizt nokkuð af
þeim sökum.
Hér á landi 'er öllum, sem vinna
í jarðgöngum, skylt að bera ör-
yggishjálm og þeir, sem vinna hátt
uppi, svo sem í staurum eða öðr-
um þeim stöðum sem hætta er á,
að menn geti fallið niður, eru
skyldir til að nota öryggisbelti —
eða línur.“
— Þar með allir þeir, sem vinna
við byggingiji háhýsa?
„Já. Verkstjórar á hverjum stað
verða að úrskurða hvort hætta sé
á vinnustað, og eru ábyrgir fyrir
því að líkamshlífar séu í notkun,
þar sem þörf er á.“
— Og hvenær er von á að þetta
komist á?
„Væntanlega seinni hluta sum-
arsins. Ef til þess kemur verða at-
vinnuveitendur skyldugir til að
kaupa hlífarnar handa starfsmönn-
um sínum. Eins og nú er háttað,
verða menn hver og einn að kaupa
sér sjálfir hjálma, ef þeir álíta, að
þeir þurfi þá til öryggis."
Kostar hver hjálmur um 1300
krónur í búð.
„Hins vegar,“ segir Þórður,.
„skiptum við okkur ekki af öku-
mönnum bifhjóla, hvort þeir nota
hjáima eða ekki.“
Það er gleðilegt, að nú skuli
loks lcomast skriður á þessi mál.
Af vinnu, sem f ram fer f háum
byggingum, er augljós hætta, bæði
fyrir þá, sem vinna, og reyndar
einnig lílca vegfarendur. Er það
aigeng sjón að sjá spýtnarusl eða
annað þess háttar hrynja niður úr
þessum byggingum, ef því er þá
ekki beinlínis kastað.
Er vonandi, að áðurnefnd reglu-
gerð verði tilbúin hið fyrsta.
Liö Fram
í kvöld
í gærkvöldi var búizt
við að Fram stillti upp
sama liði og verið hefur:
(talið frá markv. — v.-úth.)
Geir Kristjánsson, Guð-
jón Jónsson, Birgir Lúð-
víksson, Ragnar Jóhannes-
son, Halldór Lúðvíksson,
Hrannar I-Iaraldsson, Bald-
ur Scheving, Guðmundur
Óskarsson, Grétar Sigurðs
son Ásgeir Sigurðsson og
Hallgrímur Scheving.
Guðmundur og Hrannar
voru þó á sjúkralista eftir
leikinn við KR, en báðir
fengu slæm leggjarspörk í
þeirri hörðu viðureign. —
Batt þjálfari þeirra þó góð-
ar vonir við fullan bata
þeirra.
Heimsmeistararnir brazilisku
fara innan skamms í ferð um Evr-
ópu og fjölda marga leiki í ferðinni.
ferðinni.
Bandaríkjamaðurinn Harold
Johnson vann Þjóðverjann Bubi
Scholz í fyrrakvöld í keppni um
Hættan liggur í að
iðka EKKI íþróttir
Fyrir viku síðan kvölddu síð-
ustu gestir okkar íþróttafrétta-
ritaranna á Rvíkurflugvelli.
Hér höfðu þeir dvalizt f rúma
viku, en þessa 7 daga höfðu
þeir meira en nóg að gera við
störf 8. ráðstefnu norrænna
íþróttafréttamanna, sem nú var
haldin f fyrsta sinn í Reykja-
vfk. Fimm mikilsverð málefni
voru tekin fyrir á fundunum,
mannvirki og náttúruundur
skoðuð, og ágætar veizlur ým-
issa aðila og fyrirtækja setnar.
í dag og næstu daga verður
birt nokkuð af því sem rætt var
um á ráðstefnunni og blöðum
við í minnisbók vorri í þeirri
röð, sem atburðimir gerðust.
Borgarstjóm hafði móttöku
fyrir fulltrúa þingsins, 11 Svía,
6 Danir, 4 Finna, 2 Norðmenn
og 14 íslendinga alls 37 fulltrúa,
en það eru allir þeir, sem í ís-
lenzk dagblöð rita um íþróttir.
Var fulltrúum sýndur fundar-
salur borgarstjórnar og minja-
safn borgarinnar í kjallara
Skúlatúns 2. Höfðu þeir gaman
af mörgu á safninu og vakti
minnispeningasafn Magnúsar
Guðbjömssonar mikla athygli
þeirra, en Magnús hefur-gefið
safninu allt verðlaunasafn sitt,
sem er geysimikið að vöxtum.
íþróttabandalag Reykjavíkur
hélt fulltrúunum hádegisvetðar-
boð í Þjóðleikhúskjallaranum
þennan fyrsta dag ráðstefn-
unnar.
Eftir hádegið var 8. mót
íþróttafréttamanna svo sett f
Háskólanum af formanni félags
íþróttafréttamanna f Rcykja-
vík, Atla Steinarssyni, en strax
að setningu hans lokinni hófust
umræður um efnið: „Eru íþrótt-
ir skaðlegar?“ íþróttalæknir,
Jón Eiríksson, flutti framsögu-
erindi og tók fyrir læknaskýrsiu
sem samin var eftir Vetrar-
olfympíuleikana f Oslo 1952.
Niðurstaðan var í stuttu máli
sú, að íþróttir eigi að geta haft
góð áhrif í þá átt að auka starfs
löngun barna og unglinga, forð-
að þeim frá hættum og aukið
á lýðræðiskcnnd þeirra og fé-
lagslcgan þroska. Fullorðnir
gætu einnig haft verulegt gagn
af íþróttum til að fylla upp á
það sem mönnum fyndist á
vanta eftir starfsdag. Var þetta
kostahliðin, en lesti kvað dr.
Jón íþróttirnar óhjákvæmilega
hafa. Það er lítil þjálfun, sem er
yfirleitt ástæðan til þess að
menn meiðast, togna og slitna í
íþróttum. T. d. væri mikil hætta
í því falin að maður, sem ekki
hefur lengi iðkað íþróttir færi
skyndilega að taka á af krafti.
Þjálfun hans yrði að koma stlg
af stigi, ef hann ætti eklci að
eiga iþróttaskaða yfir höfði.
Sagði dr. Jón kostahlið
íþróttanna þyngri á metunum
enda þótt nokkur hætta gæti
stafað af íþróttunum, en hratta
getur lika stafað af flestu í dag-
Iegu lífi. Yfirleitt væru íþrótta-
menn hraustari öðrum og færari
um að þola sjúkdóma en aðrir.
Mikið var rætt um þetta efni
og margt kom fram við þær um-
ræður.
Einar Öiseth frá Sportsmand-
en í Oslo taldi að ekki væri sið-
ur ástæða til að iðka íþróttir og
æfa, er farið væri að siga
á efri ár. Torsten Tégner
eigandi og ritstjóri hins mikla
blaðs Idrottsbladet f Stokk-
hólmi, 72ja ára „unglingur“
kvaðst vera staðráðinn f að iðka
íþróttir a. m. k. þar til hann
yrði 99 ára gamall! Hann er
hinn skemmtilegasti, ákafur
íþróttamaður og fróðleiksfús i
meira lagi. Hann er sagður eiga
reiðhjól í einum 4 borgum í
Evrópu og grípur gjarna til
þeirra, er hann er í heimsókn
í viðkomandi borg. Tegner
keypti blað sitt á sínum tfrna,
er það var að gefa upp öndina,
en gerði það að stórblaði. Marg-
ir fleiri tóku til máls, en Tegner
dró saman álit manna í lok
fundarins og sagði: „Við skul-
um snúa spumingunni við og
jafnvel staðhæfa: „Það er
hættulegt að iðka ekki íþróttir“.
• Um kvöldið sátu fundarmenn
veiziu menntamálaráðherra í
ráðherrabústaðnum, en Birgir
Thorlacius ráðuneytisstjóri og
frú hans stvrðu hófinu af
niynduglcik.
heimsmeistaratignina í léttþunga-
vigt í OL-vellinum f Berlín að við-
stöddum 40.000 áhorfendum. Var
sigur Bandaríkjamannsins sann-
gjarn eftir að hann hafði sýnt yfir-
burði út keppnina og í 15. lotu
vann hann á teknisku K.O.
Héðan frá íslandi hélt unglinga-
landslið Tékka til Danmerkur og
hafa nú borizt fréttir af fyrsta leik
þeirra þar í iandi.
Úrvalslið Randersborgar tapaði
fyrir Tékkum með ekki minna en
5:0 sem er mjög í svipuðum dúr
og það sem 3 af okkar liðum
fengu af þessu góða liði.
Um helgina skeði það helzt í
friálsíbróttum að Bandaríkiamað-
urinn A1 Oerter setti nýtt landsmet
í kringlukasti kastaði 61.62 m. sem
er aðeins 2 septimetrum Iakara en
heimsmet Rússans Trusenovs, sem
setti met nú fyrir skemmstu.
Annar árangur á mótinu, sem
fór fram í Kaliforníu, var þessi:
Fjórir menn undir 4 mínútum í
mílunni. Þeir voru Beatty (3.57.9),'
Jim Grelle (3.58.0), Weisiger á
sama tíma, Dotson (3.50.0).
Þetta var í Kaliforníu, en í Finn-
landi reyndi Pentti Nikula að
stökkva 5 metrana en tókst ekki.
að þessu sinni. Hann stökk „að-
eins“ 4.82 m., en landi hans Ankio
var með 4.70, sem ekki þykir
lengur umtalsvert, en er þó hans
bezti árangur. Petterson stökk
þarna 2.08 m. í hástökki.