Vísir - 27.06.1962, Blaðsíða 15

Vísir - 27.06.1962, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 27. júní 1962. VI$IR 15 CECIi SAINT-LAURENT (CAROLINE CHÉRtEl 1-9 og konur þar í röðum til þess að komast að. Meðan Anna- María þvoði sér leitaði Karólína á sér að pyngju sinni, — hélt að hún hefði týnt henni, og var mikill léttir að, er hún fann hana. í henni var nægilegt fé til tveggja daga greiðslu. Hún var orðin smeyk um að týna pyngj- unni og ákvað að fela hana og fann stað til þess í glufu milii loftbjálka. Hún kom pyngjunni þar fyrir og gekk svo aftur til Önnu-Maríu. Eftir á gengu þær svo niður og gegnum göng og sali og út á svalir. Ýmisr ungir menn komu til þess að slá Karólínu gull- hamra, en hún gætti þess, að halda þeim í skefjum — og henni fannst það nú upplyftandi og ánægjuleg tilfinning, að vera svona staðföst og trú Gaston, sem hafði sýnt henni, að hann tók hana fram yfir allar aðrar. Eftir morgunverð fór hún því ein niður í garðinn. Þar var kyrrt. Múrveggirnir um garð- inn voru auður, því að allar vafningsjurtirnar höfðu verið fjarlægðar, og uppistöður þeirra, en slftu hefði getað orðið föng- unum stoð í að flýja. Þegar hún hafði gengið stundarkorn á mal- arbornum gangstígunum heyrði hún hún sagt ungmeyjarröddu: — Hún hlýtur að vera hér, ég sá hana fara hingað. — Ég finn hana sjálfsagt, þakka yður fyrir, ungrfú. Karólína sneri sér snöggt við og sá nú Gaston milli grein- anna. Hann stóð og skimaði eftir henni. Iíún flýtti sér til hans — og var nú allt í einu komin í slæmt skap. — Af hverju stóðstu þarna og vast að tala við þessa ungu stúlku? Varstu að gera hosur þínar grænar fyrir henni? Goston varðveitti ró sína, en horfði á hana hissa og gramur. Þessi unga stúlka var svo vin- samleg að svara fyrirspurn minni. Ertu alveg að brjálast, Karólína? Afbrýðisemin í huga hennar hvarf eins fljótt og hún hafði komið. Hún lagði hcndurnar um háslinn á honum og sagði: — Fyrirgefðu mér, ástin mín, ég beið þín — dreymdi um þig . . . sverðu, að sá dagur muni upp renna, að ég verði konan þín, mig langar til þess að geaa kallað þig manninn minn .... Osjálfrátt yppti Gaston öxlum lítið eitt og reyndi að losa sig: — Vertu nú skynsöm, Karó, — mundu að þú ert gift Georges og að hann .... — Ég kæri mig kollótta um Georges! — Það má vel vera, en sam- félagslega skoðað . . . ! — Eg fyrirlít allt samfélags- legt, — samfélagið skapar bara erfiðleika fyrir þá, tem vilja vera hamingjusamir. Og hvað hafa forustumenn samfélagins fyrir stafni: Þeir fylla fangels- 1 in, byggia fleiri og fjölga högg- stokkunum. — Við skulum ekki þrefa um þetta nú. Eins og sakir standa erum við að reyna að komast yfir örðugan og lífshættulegan hjalla og miðum allt við að reyna að halda lífinu. Ég geri 1 alit sem í mínu valdi stendur ^ til þess að bjarga þér. Og að því er framtfðina varðar. verðum við að bíða átekta. j — Bíða, bíða, allt mitt líf hefi ég verið að bíða — mér var lofað hamingju, en ég yrði að vera þolinmóð, bíða — allt af varð ég að hlíða og bíða og vera eftirlát. Kn ég vil ekki — ég | vil ekki bíða — ég vil vera ham ingjusöm, nú undir eins. Hann kyssti hana á hálsinn og sagði blíðlega: — Kjáninn þinn, af hverju ertu allt af svona erfið? — Gaston, ertu viss urn, að j þú elskar mig, nei svaraðu ekki ' með óljósum ástarjátningum. eins og þú ert vanur, segðu mér hvort þú ert sem dáleiddur af i návist minni, af því einu að I heyra rödd mína, eins og ég I þegar þú ert kominn? Hið milda í andlitssvip hans hvarf og hann svaraði þrálega: — Ég veit ekki betur en ég hafi nýlega lagt þér upp í hend- urnar sannanir fyrir hversu til- finningum mínum er varið. Þú þarft því ekki að spyrja og hald irðu því áfram er það mikill skortur háttvísi. Karólína roðnaði. — Já, það var vitanlega sönn un. Að þú tókst mig fram yfir aðra .... — Þegiðu, sagði hann og gat nú ekki stillt sig lengur. Þín vegna framdi ég skelfilegan varknað. Ég var búinn að kveikja nýja von í brjósti hennar um líf og hamingju — þessari ungu konu, sem á til að bera alla þá kosti, sem þig skortir, því hún er einlæg, góð og holl — og svo sveik ég loforð mitt til hennar þín vegna. Ef hún lætur fíf sitt á morgun .... —. Láttu hana deyja . . . — Fyrirgefðu mér, Karólína, ég, ég ..... . Það var mikið fát á honum, hann hafði misst alla stjórn á1 sér, og rekið henni rokna löðr- ung. Hún hlustaði á það, sem! hann sagði, án þess að geta kom 1 ið upp einu- orði, sov undrandi var hún og lömuð. — Fyrirgefðu mér, Karólína. Ég hefði ekki átt að slá þig. Ég skil það vel, að þú sért af- brýðisöm, en það sem þú sagðir var hræðilegt, sérstaklega þar sem þessi kona, sem þú óskar að dauða, hafði teflt lífi sínu í hættu þér til hjálpar. Karólína starði á hann með hálfopinn munn og spurði sjálfa sig hvort það væri í rauninni svo, að hún hugsaði aldrei um aðra, að eins um sjálfa sig, og hún hugsaði sem svo: Hann hef- ur rétt fyrir sér, en upphátt sagði hún: — Ég elska þig, Gaston. Það var það eina, sem hún gat sagt sér til afsökunar. Næsta hálfan mánuð gerðist ekkert óvanlegt í Maison Belhomme, en aðalumræðuefnið dögum saman var aftaka de Bussez hertogafrúar. Karlotta og Gaston komu í heimsókn til Karólínu eins oft — Það hlaut svo sem að vera að bölvaður báturinn læki. ''that challenge vvas a iVMSTAKE/ SAII7 ICUI7ANM SAÞLV. "VVE HAVEM'TA CHANCE /' I — Þetta er vonlaust verk, sagði Kudami dapurlega. — Þið verðið, að berjast, þótt - -........- - "iP ONLV TO rZESBZVE youz self-kespect!' ekki sé til annars en að verja heið I að visu búnir til orustu, en þeir ur yðar, anzai Tarzan. I voru gripnir glímuskjálfta, þegar Daginn eftir voru hermennirnir þeir heyrðu allt í einu mikinn hófa dyn. ■.■.•■■.V.V.V.V.V.V.V.V.V.*. Barnasagan SCalIi og eldurÍL. Þegar það rann loks upp fyrir Meistara og Tomma, að það voru njósnarar Ruffiano en ekki hinar raargklofnu persónur stýrimanns- iná, sem Kalli var að slást við, létu þeir hendur standa fram úr ermum og slógust allt hvað af tók. Meðan þeir voru í óða önn a ðtoga öll fölsku skeggin af, skaut Ruffiano upp kollinum til að sjá, hvernig gengi með áform hans. Ratskov kom iíka á vett- vang en hafðist ekki að, úr því að hver tilraun til að slökkva splapzky-eldinn var orðin lögleg. En Ruffiano batt sjálfur endi á striðið. Þegar honum varð ljóst, að taflið var tapað, hrópáði hann: „Stanzi. Það er veri að afhjúpa ykkur. Af stað.“ Þegar hann gekk niður í léttibátinn með menn sfna, hrópaði hann: „Hinn rétti stýri- maður er niðri í lestinni, skip- stjóri. Látið hann fara. skipstjóri“ sagði hann, „hann hefir rétt til að slökkva hinn óslökkvandi slapzky- eld. Ef við neitum honum um það, missir rúdianska þjóðin trúna á sögnina." og þau gátu. Kvíði hennar fór vaxandi, er hún varð þess vör, a ðsá dagur var skammt undan, er þau gætu útvegað peninga til þess að greiða dvalarkostnað hennar. Fyrstu vikuna gat Gast- on bjargað málunum, en nú var svo komið, að þau gátu sjaldn- ast greitt nema fyrir einn dag í einu — og var miklum erfiðleik- um bundið, að geta komið því í kring, en Belhomme varð æ erf- iðari viðfangs. Enn jók það á ótta Karólfnu, er tveggja annara fanga biðu sömu örlög og höfðu orðið hlut- skipti hertogafrúarinnar. Sam- tímis hafði hún miklar áhyggjur af Önnu-Marfu, sem sagði henni frá hvernig bræðurnir kvöldu hana. Og Karólína hugleiddi, hvort hún mundi verða neydd til hins sama og Anna-María havað liði, án þess að vinna ann að við það en gálgafret. Þeir mundu brátt verða þreyttir á henni eins og þeir voru að verða á stúlkunni, en Karlotta hafði sannfærtst um að svo mundi verða. Kvöld nokkurt kom hún og sagði henni, að nú hefðu þeir komið og krafist þess, að hún fórnaði sakleysi sínu. En hún neitaði og daginn eftir var farið með hana, föður hennar og bróð ur í fangelsið. Karólína varð mikið um þetta. Henni var farið að þykja inni- lega vænt um hana, leit á hana sem systur, sem var undir hrammi illra örlaga eins og hún sjálf, en hún gat ekki syrgt lengi þessa ungu vinstúlku sína, því að hennar eigin vandmál voru slik, að það virðist hanga á blá- þræði hvort nokkuð yrði henni til bjargar. Daginn eftir að de Forbin og börn hans voru fultt f fangelsið gekk hún út í garðinn, eins og hún jafnan gerði, er hún átti von á Gaston. Fór hún þar inn í lítið garðhús, því að þar gat hún ver- ið nokkurn veginn viss um, að þau gætu verið í næði. Henni til mikillar undrunar kom Gaston ekki, heldur Karlotta, sem var mjög áhyggjufull á svip rétti • henni bréf frá onum. En það f jallaði eingöngu um það, að allur tími hans færi í að reyna | að fá leyfi sitt framlengt og að J útvega fé ti! þess að framlengja ! dvöl her.nar. í Karólína sagði reið og örvænt andi: — Hann hefði þó átt að geta komið svona 2—3 mínútur — hann hlýtur að geta skilið hvern ig mér líður, þegar hann kemur svona sjaldan. Karlotta va rvandræðaleg á svipinn og Karólína varð að hafa mikið fyrir að fá hana til þess I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.