Vísir - 05.07.1962, Blaðsíða 1
VISIR
52. árg. — Fimmtudagur 5. júlí 1962. — 151. tbl.
Samstarfið heldur
áfram áAkranesi
SAMKOMULAG hefur nú íekizt
milli Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins um áframhaidandi
samstarf í bæjarstjórn á Akranesi.
Verður fyrsti bæjarstjómarfundur
inn þar haldinn í dag og þar kos-
inn bæjarstjóri, forseti bæjarstjórn
ar og nefndir. Munu flokkarnir
leggja þar fram sameiginlega yfir
lýsingu um stefnu og framkvæmd
ir í bæjarmálunum. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur 4 bæjarfulltrúa
og Alþýðuflokkurinn 2 eða sam-
tals 6 af 9 fulltrúum.
Flokkarnir tveir hafa orðið á-
sáttir um það að ráða ungan verk
fræing, Björgvin Sœmundsson, bæj
arstjóra. Hann er 32 ára, fæddur á
Akureyri, sonur Sæmundar Steins-
sonar, sem lengi var afgreiðslumað
ur Flóabátsins á Akureyri. Björg-
vin varð stúdent á Akureyri 1950
og stundaði síðan nám í ver .fræði
við Háskóla íslands og Kaup-
mannahafnarháskóla, en 'paðan
lauk hann prófi 1957.
Björgvin hefur verið bæjarverk
fræðingur á Akranesi f 4 ár og
m.a. haft yfirumsjón með hinum
miklu gatnagerðarframkvæmdum
á Akranesi ,sem gerðar hafa verið
síðan Sjálfstæðismenn og Alþýðu-
Framh. á bls. 2
Fyrsta síldin var söltuð á
■ Siglufirði í gær og var hún ljóm-
jandi góð og feit, frá I9'/i% UPP
|í 22%, en meðalfitumagn reynd-
ist 21,4%. Það komu tvö skip
inn af Kolbeinseyjarsvæðinu
með þessa söltunarsíld, Sigur-
fari til Hafliðastöðvarinnar með
300 tunnur og Svanur RE til
Kristins Halldórssonar með 200
tunnur. En von Siglfirðinga um
l söltun snerist á samri stund upp
í vonbrigði, þar eð svo lítil veiði
.er á Kolbeinseyjarsvæðinu, eins
| og sagt er frá á öðrum stað í ?
jblaðinu, að skipin eru að fara
jþaðan aftur og halda austur.
í dag voru mörg skip inni á ^
ISiglufirði, sem komið höfðu af
jStrandagrunnssvæðinu, mörg
ímeð slatta, og munu þau hafa
kvið orð að'fara ekki vestur afturj
íen halda beint austur fyrir Iand.|
JMeðalfitumagn Strandagrunns-|
jslídarinnar er aðeins 15%. Talið^
Jer að síldin, sem veiðist fyriríi
faustan, sé ekki heldur söltunar-|
jhæf. ■
^WWNA/WVWWVWWWWVyWWWWWWVWWVWWVVWVWVWVWÍ*?
Fimleikamenn í fremstu röð
Víðfrægir sænskir fimleika- og
þjóðdansaflokkar eru komnir
hingað til landsins og sýna hér
í "kvöld og annað kvöld. Gefst
mönnum þá tækifæri tii að sjá
beztu tegund fimlcika, þvi hér
er um mjög hæft fólk að ræða,
sem vakið hefir geysilega hrifn-
ingu, hvar sem það hefur sýnt.
Stúlkan á myndinni er 1 fim
leikaflokki „Vikingarna“. Mað-
urinn við hliðina á henni er
einnig í flokknum, en iðkar þó
ekki fimlcikana. Þess í stað
skartar hann í fommannabún-
ingi og er stúlkunum stoð og
stytta á ferðalögum þeirra.
Hann heitir Erik og hefur gælu
nafnið „mascot“. Það mun
þýða verndargripur á íslenzku.
Flokkar þessir ferðast um,
mest á Norðurlöndum, einkum
í þeim tilgangi að sýna og kynna
íþrótt sína. Hingað til landsins
kemur íþróttafólkið alveg á sinn
eigin kostnað, sem mun vera
einsdæmi f íþróttasögu íslands.
Sýnir það áhuga þann sem
býr að baki ferðalagi og erfiði
flokkanna, og verður það ekki
betur þakkað en með þvf að f jöl-
menna á sýningar þeirra. Verða
þær. í Háskólabíói f kvöld og
annað kvöld og hefjast kl. 11.15.
Karlaflokkurinn telur 13 og
Framh. á bls. 2
r
Agreiningur Ben BeSia og Ben Khedda
Þorsteinn Gfslason.
► Goulart Brasiliuforseti hefur
neitað að viöurkenna nýmynd-
aða stjórn Andrade á þeim
grundvelli að hún sé afturhalds-
stjórn. Fréttir hafa síðan borist
um verkföll í landinu og að her-
inn sé hafður til taks.
uggvænleg
Mohammed Ben Bella varafor-
sætisráðherra útlagastjórnarinnar
serknesku er væntanlegur í dag til
Alsír, að þvf er fréttir hermdu i
gær, og kemur hann sem einstakl-
ingur og heldur til fæðingarbæjar
Þorsteinn Gíslason ráðinn
síns. Um allan heim er beðið svars
við þeirri spurningu hvað gerist
eftir heimkomu hans.
Eins og kunnugt er af fyrri frétt-
um neitaði hann að fara með Ben
Khedda forsætisráðherra til Alsír,
er landið fékk sjálfstæði sitt, en
aðrir ráðherrar útlagastjórnarinnar
Sölumiðstöð hraðfrvsti-1 Coldwater fyrirtækisins, er að annar maður eða
húsanna tilkynnti í morg-. dótturfyrirtækis SH í tveir verði ráðnir til að
un, að Þorsteinn Gíslason Bandaríkiunum. Mun hann stjóraa fisksölu í Evrópu.
Verkfræðingur hefði Verið StjÓma fisksölu SH í Þorsteinn Gtslason hefur áður
J unnið um árabil hjá Solumiðstoð-
ráðinn framkvæmdastjóri | Bandaríkjunum, en líklegt | Framh. á bis. 2
Ben Bella
fóru með Ben Khedda, 9 talsins,
og hefur útlagastjómin nú tekið
við sem bráðabirgðastjórn lands-
ins, þar til þingkosningar hafa far-
ið fram.
Það var handtaka yfirmanns for-
ingjaráðs þjóðfrelsishersins, Houari
og tveggja undirmanna hans, höf-
uðsmannanna Menjili og Slimane,
sem leiddi til þess, að í odda skarst
milli Ben Khedda og Ben Bella,
en það var Ben Khedda sem fyrir-
skipaði handtökuna, og sakaði hina
handteknu og þá, sem þeim fylgja
að málum um að áforma, að koma
á hernaðarlegu einræði f landinu.
Samtímis var tilkynnt, að lið
Frakka á landamærum Tunis
myndi ekki hleypa inn í Alsír sveit-
um þjóðfrelsishersins í Tunis, 35
þús., og var talið að það væri að
beiðni Ben Khedda, til öryggis því,
að hann gæti tekið við Alsír af
framkvæmdanefndinni, en í gær
byrjuðu þó þessar hersveitir að fara
Framh. á bls. 2.