Vísir - 05.07.1962, Síða 6
VISIR
Fimmtudagur 5. júlí 1962.
Horfur á góðri að-
sókn að Hólaskóla
Vísir átti viðtal í síma við Árna
Guðmund Pétursson skóiastjóra á
Hólum f Hjaltada! og kvað hann
vel horfa um aðsókn að skólanum
í vetur og hefðu umsóknir byrjað
að berast fyrir nokkru.
Hann kvað skólann starfa með
sama fyrirkomulagi í vetur og áð-
ur, þ.e. í tveimur deildum, yngri
deild og deild fyrir bændaefni, en
reynt verður að auka verklega
námið að mun, bæði að því er
tekur til vélfræðináms, véianotkun
ar og smfði, og enn fremur verður
lögð áherzla á að þjálfa bændaefni
til þess að dæma um búfé.
Skólastjóri kvað innan héraðs
vera um feikna áhuga að ræða fyr-
ir að starfrækt yrði miðskóladeild
að Hólum í vetur, en fyrir hana
er mjög brýn þörf í héraðinu, en
að sjálfsögðu verða búnaðarnem-
endur að sitja fyrir, og því er mjög
áríðandi, að umsóknir um skólann
berist sem fyrst. — Auglýst hefur
verið eftir tveimur kennurum, f
stöðu þá sem skólastjóri hefur
fkipað undangengin 10 ár, og aðra
kennarastöðu til.
Sláttur hafinn.
Vorið var kalt og þurrt og
spretta lítil framan af, en nokkuð
hefur rætzt úr. Sláttur byrjar með
seinna móti, en verður sennilega
almennt byrjaður viku af júlí. Fyr
ii viku byrjuðu þeir fyrstu og
munu það hafa verið bændur á
Efra-Ási og að Uppsölum í Hjalta-
dal.
Verkiegar
framkvæmdir.
Unnið er að mjólkurhúsinu, en
það er nýtt hús f smfðum, og
unnið er að því að koma rafmagns
málum staðarins í viðunandi horf.
Yfirlýsing frá LÍÚ
Vegna yfirlýsingar stjórnar Far-
manna- og fiskimannasambands ís-
lands, sem birtist f dagblöðum og
útvarpi 28. þ. m. vill Landssam-
band fsl. útvegsmanna taka fram
eftirfarandi:
Þann 30. apríl s.l. átti samn-
inganefnd L.Í.O. viðræður við
fulltrúa frá F.F.S.1_ um breytingu
á samningi, um kaup og kjör yfir-
manna á fiskibátaflotanum frá 14.
febrúar 1961, án uppsagnar varð-
andi kjör skipstjóra á síldveiðum
með hringnót. Tillaga L.Í.O. um
breytingu á samningnum var þann-
ig, að í stað þess að skipstjóri fái
8% af brúttóafla, þá fái hann 2
hásetahluti. Á öllum öðrum veið-
um, en síldveiðum hefur skipstjóri
2 hásetahluti og væri því fyrr-
greind breyting mjög til samræmis
við aðra kjarasamninga.
segir, að margra vikna samninga-
umleitanir hafi átt sér stað milli
L.Í.O. og F.F.S.l. um kaup og kjör
yfirmanna á síldveiðum, en samn-
ingar ekki tekizt.
Varðandi þann þátt yfirlýsingar
F.F.S.l. að það telji sig samnings-
bundið L.Í.Ú. verður ekki rætt hér
frekar en gert hefir verið hér að
ofan, en lítt er það skiljanlegt, að
telja nú heimildina til uppsagnar
vegna gengisbreytingarinnar ekki
gilda eftir að hafa oftsinnis hótað
á s.l vetri af framkvæmdastjóra
F.F.S.Í. í umboði stjórnar F.F.S.Í.
að segja samningnum upp á þessu
sama ákvæði til fulltingis kröfu um
breytingu á öðrum greinum samn-
ingsins.
Leiðarþing
Gísla
GÍSLI JÓNSSON alþingismaður
hélt um helgina leiðarþing á
Patreksfirði og ræddi þar um lands
mál og héraðsmál. Om þessar
mundir eru 25 ár síðan hann bauð
sig í fyrsta skipti fram og um 20
ár síðan hann náði fyrst kosningu
í Barðastrandarsýslu.
Á eftir ræðu hans urðu almennar
umræður og talaði þar m. a. Ari
Kristinsson sýslumaður Barðstrend
inga.
Meðan Gísli var þingmaður
Barðstrendinga hafði hann það fyr-
ir sið að heimsækja hvern bæ, en
eftir að kjördæmið stækkaði og
nær yfir alla Vestfirði getur hann
ekki komið því við lengur, en held-
ur þá í staðinn leiðarþing. Hann
hefur ferðazt um Strandasýslu.
Síðar í sumar mun hann halda Ieið-
arþing í Isafjarðarsýslu og Isafirði.
— Fréttaritari.
Héraðsmóf
á HóEmavík
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í
Strandasýslu verður haldið á
Hólmavík sunnudaginn 8. júlí kl.
8,30 e.h.
Ingólfur Jónsson, landbúnaðar-
ráðherra, og Sigurður Bjarnason,
ritstjóri, munu flytja ræður á
þessu móti. Þá verur sýndur gam
anleikurinn „Heimilisfriður“ eftir
Georges Courteline, í þýðingu
Árna Guðnasonar, magisters. Með
hlutverk fara leikararnir Rúrik
Haraldsson og Guðrún Ásmunds-
dóttir. Enn fremur verður einsöng-
ur og tvlsöngur. Flytjendur eru ó-
perusöngvararnir KHstin'n 1 'Halls-
son og Þórunn Ólafsdóttir og pí-
anóleikari Skúli Halldórsson. Dans
leikur verður um kvöldið.
Konur mótmæla
Auglýsið í Vísi
Á nýafstöðnum fulltrúafundi
Kvenréttindafélags Islands var
mótmælt harðlega úthlutunarað-
ferðum á listamannalaunum í ár
og undanfarin ár, bæði almennt, en
þó sérstaklega að því er tekur til
listamannalauna kvenna.
Ekki verður séð, að úthlutunar-
nefndin starfi eftir neinum reglum,
nema þá eftir einhverjum einka-
sjónarmiðum, pólitískum eða
bundnum við fjölskyldur og vini.
Ein er þó sú regla, sem allar þessar
nefndir virðast hafa farið eftir, og
hún er sú, að konur skuli koma
hér sem allra minnst til greina og
viðurkenning á þeim sem lista-
mönnum svo handahófskennd, að
hreinni furðu gegnir.
Á erlendum vettvangi á islenzk
skáldkona smásögu í úrvali smá-
sagna frá öllum löndum heims. I
því safni eru aðeins 48 smásögur
valdar úr 100.000 sögum, sem voru
sendar. Saga þessi hefur nú verið
þýdd á 10 tungumál, en ekki hefur
skáldkonan talizt hæf til þess hér
heima að komast t. d. í næsthæsta
flokkinn hjá úthlutunarnefnd lista-
mannalauna.
Ein er sú tegund skáldskapar,
sem liggur sérstaklega vel fyrir
konum af eðlilegum ástæðum. Það
eru barna- og unglingabókmenntir,
ljóð, sögur og leikir. Þessi grein
bókmenntanna hefur aldrei fundið
náð fyrir augum úthlutunarnefnd-
anna, og má reyndar segja, að það
sé sama, hvort um karl- eða kven-
rithöfund er að ræða. Þjóðin styn-
ur undir útgáfu sorprita, sem hellt
er yfir dómgreindarlitla unga Ies-
endur. En það þykir ekki verð-
launavert að skrifa góðar barna-
bækur, sem eru eftirsóttar af æsk-
unni og hollum lestur, bæði að
málfari og efni. Má í því sambandi
minna á, að á úthlutunarskrá lista-
mannalauna í ár hefur verið strik-
uð út kona, sem aðallega hefur
helgað skáldgáfu sína þessu starfi,
skrifað 20 viðurkenndar, góðar
barnabækur og verið ritstjóri
barnablaðsins Æskunnar i 26 ár.
Svona var metið starf hennar fyrir
yngstu lesendurna.
Othlutun listamannalauna til
kvenna er svo tilviljunarkennd að
furðu sætir. Skáldkona hefur t. d.
fengið listamannalaun í nokkur ár,
svo er hún fyrirvaralaust strikuð
út, og það alveg eins fyrir því, þó
að bók hafi komið út eftir hana
það árið engu síðri en xær, sem
hún hefur áður skrifað. Svo er hún
kannske sett inn aftur næsta ár
án sýnilegra nýrra verðleika, og
svona getur þetta gengið koll af
kolli
Með ýmsa karlmenn er það aftur
á móti svo, að hafi þeir einu sinni
komizt inn á skrána af einhverjum
ástæðum, þá sitja þeir þar áfram,
þó ekkert nýtt verk komi frá þeim
um langt árabil. Þeir geta jafnvel
hækkað í flokkum, án þess að hafa
sýnt nokkra nýja verðleika eða
Frámh. á 2. síðu.
Nýtt Sjálfstæðisfélag
Laugardaginn 23. júní kl. 4 e. h.
var settur á Húsavík fundur sjálf-
stæðismanna í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Fundarstjóri var Þórhallur
B. Snædal, byggingarmeistari,
Húsavík og fundarritari Páll Þór
Kristinsson, viðskiptafræðingur,
Húsavík.
Fundurinn hófst með því að Jón-
as G. Rafnar, alþingismaður, skýrði
Fulltrúar F.F.S.Í. óskuðu eftir
þvf, að tillaga þessi til breytinga á
samningnum yrði send F.F.S.Í.
bréflega og frestur yrði veittur til
þess að kanna undirtektir skip-
stjóra við tillöguna. Þann 2. maf
var F.F.S.l. send tillagan og frestur
gefinn til 8. maí til svars. Skriflegt
svar barst ekki fyrir tiltekinn tfma,
en framkvæmdastjóri F.F.S.l. tjáði
fulltrúa L.l.O. 9. maí, að fyrrgreind
breyting myndi ekki ná fram að
ganga án uppsagnar á samningn-
um.
Stjórn L.l.Ú. samþykkti því 10.
maf að segja samningnum upp
með eins mánaðar uppsagnarfresti
samkvæmt heimild f samningnum,! 3
sem er svohljóðandi: i 4
„Verði breyting á lögskráðu
gengi íslenzku krónunnar, er samn
ingur þessi uppsegjanlegur með 1
mánaðar uppsagnarfresti.“
Samningurinn er undirritaður 14.
febrúar 1961, en gengisbreyting
varð 4. ágúst 1961 og telur stjórn
L.l.O. því fyrrgreint uppsagnar-
ákvæði í fullu gildi.
I bréfi dags. 10. maí var F.F.S.Í.
tilkynnt uppsögnin, og að samn-
inganefnd L.Í.Ú. væri þá þegar til-
búin til viðræðna hvenær sem
F.F.S.Í. óskaði.
Margftrekað var gengið eftir
svari frá F.F.S.l. um hvenær hægt
væri að hefja viðræður og sfðast
bréflega 22. júnf, en ávallt árang-
urslaust.
L.Í.Ú. telur, samkvæmt framan-
sögðu, forsendur bráðabirgðalag-
anna fullkomlega réttar, þar sem
Ákærð en ástfangin
Þessi mynd var tekin af kvik-
myndaleikkonunni Sophiu Lor-
en og manni hennar, kvikmynda
stjórar» n Cario Ponti, er það
fréttist fyrir nokkrum dögum,
að höfðað yrði mál gegn þeim
á Ítalíu, honum fyrir fjöl-
kvæni og henni fyrir hlutdeild.
Hámarkshegning, sem yfir þeim
gætf vofað, er fimm ára fang-
elsi.
Hann er 52ja ára, hún 27 ára,
og þau virðast hafa verið á-
kaflega hamingjusöm f hjóna-
bandinu. — Saksóknari ítalska
ríkisins hafði haft mál þeirra
til ýtarlegrar athugunar og það
var að undangenginni þeirri at-
hugun, sem málshöfðunfn var
ákveðin. Þau voru gefin saman-
í Ciudad Juarez f Mexiko sam-
kvæmt umboði í september
1957.
ítalskur dómari lýsti þá yfir,
að Ponti væri enn kvæntur
fyrri konu sinni Giuliana
Fiastri, sem hann gekk að eiga
1936 i Milano, og lýsti ólög-
lega ógildingu réttarins í Mexi-
kó á þvf hjónabandi tveimur
mánuðum fyrir hjónabandið í
Juarez.
Þegar Ponti frétti um máls-
höfðunina var hann að leggja
af stað til New York til þess að
vera viðstaddur frumsýningu á
kvikmynd sinni Boccaccio og
sagði: „Ég hefi ekkert um þetla
heyrt, en ég treysti fyllilega á
réttlæti á Italíu,
Sophia er f Tirrenia fyrir
norðan Rómaborg vegna þess
að þar er verið að taka innan-
hússmyndir f kvikmyndina
Fangarnir f Altona, sem hún
leikur aðalhlutverk f. „Hvað
svo sem dómstólarnir úr-
skurða," sagði Sophia fyrir
nokkru, „breytir það engu um
tilfinningar okkar“.
frá þeim tilgangi og verkefni fund-
arins að koma á fastri skipan á
flokksstarfið í Suður-Þingeyjar-
sýslu og Húsavík samkvæmt þeim
skipulagsreglum, sem Sjálfstæðis-
flokknum voru settar á landsfundi
flokksins sfðastliðið haust.
Þá flutti Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, erindi um
skipulag og starfsemi Sjálfstæðis-
flokksins og þvf næst flutti Magn-
ús Jónsson, bankastjóri, ræðu um
stjórnmálaviðhorfið. Sfðan voru al-
mennar umræður og tóku til máls
Vernharður Bjarnason, forstjóri,
Húsavfk, Þórhallur B. Snædal, Páll
Þór Kristinsson Hallgrfmur Þór-
hallsson, bóndi Vogum, Jónas G.
Jónsson, kennari, Húsavík og
Magnús Jónsson, bankastjóri.
Fundurinn samþykkti að stofna
Sjálfstæðisfélag Suður-Þingeyinga
og nær félagssvæðið til Suður-
Þingeyjarsýslu og Húsavík. Þor-
valdur Garðar Kristjánsson lagði
fram og skýrði frumvarp að lögum
fyrir félagið, sem síðan var sam-
þykkt. Var það með og samþykkt
að slíta Sjálfstæðisfélagi Húsavík-
ur og meðlimir þess gerðust stofn-
endur hins nýja félags. Voru stofn-
endur félagsins samtals 65 að tölu.
1 stjórn félagsins voru kosnir
Þórhallur B. Snædal, formaður,
Bjartmar Guðmundsson, alþingis-
maður, Sandi, Þorbjörn Áskelsson,
útgerðarmaður, Grenivík, Páll Þór
Kristinsson og Árni Kárason bóndi,
Hallbjarnarstöðum. I varastjórn
voru kosin Kristján Þórhallsson,
bóndi, Vogum, ísleifur Sumarliða-
son, skógarvörður, Vöglum, Vern-
harður Bjarnason, Arnviður Ævar
Björnsson, pípulagningarmeistari,
Húsavík, og frú Ingun Jónasdóttir,
Húsavík. Enn fremur voru Kosnir
fulltrúar félagsins í fulltrúaráð
Sjálfstæðisflokksins fyrir Suður-
Þingeyjarsýslu og Húsavík og full-
trúar í kjördæmisráð Norður-
landskjördæmis eystra. Að af lokn
um stofnfundi félagsins var hald-
inn fundur í fulltrúaráðinu.